Vikan


Vikan - 13.12.1962, Blaðsíða 24

Vikan - 13.12.1962, Blaðsíða 24
FRAMHALDSSAGAN EFTIR LAWRENCE EARL 16. HLUTI Bros Surreys var fremur glaðlegt en að það væri sannfærandi. „Það skiptir ekki svo miklu máli, þetta verður undan straumi lengst af leið- inni, geri ég ráð fyrir. Við skulum ekki vera með það oflæti, að óska eftir munaði, meðan óvíst er hvort við höfum það, sem okkur er nauð- synlegast. Ég ætla að láta mér nægja þá von, að flotholtin leki ekki.“ Og Alison bað í hljóði: „Góður, almáttugur guð, gefðu að flotholtin leki ekki. Gefðu að okkur heppnist þetta .. Vegna þess að Alison hafði rugl- azt í dagatalinu fyrir alllöngu, tók hún nú upp sitt eigið dagatal. Kannski réði tilviljun því, að ekki munaði miklu á þvi dagatali og hinu rétta, kannski munaði líka miklu, en það var henni til viðmiðunar engu að síður. Hún rifjaði upp alla daga og atburði eins og hún frekast mundi og reiknaði og reiknaði, og fastákvað síðan dag, sem hún taldi frá. Eftir þessum nýja tímareikningi hennar, var nú sá fimmti júní — en hvaða vikudagur var, gat hún ekki vitað nema með enn flóknari útreikningum, svo hún lét það liggja milli hluta — og samkvæmt því, og þeirri reynslu, sem hún hafði fengið fyrir langa dvöl sína á þessum slóðum, var tími kominn til að hefja ferðina um vatna- vegu eftir landinu. Og þegar hún reis úr rekkju þenn- an morgun, var hún gripin svipaðri kennd, og líklegt er að gripið hafi Kólumbus, þegar hann lagði upp i siglingu sína í leit að leiðum til Ind- lands, eða Lindbergh, þegar hann eygði eyjarnar úti fyrir ströndum Irlands, niður um skýjarof. „Linroln ...“ kallaði hún. „Des ... Isinn hefur leyst af vat'ninu ...“ Þennan dag varð annríki þeirra meira en nokkru sinni fyrr. Nú var að taka til, það sem þau töldu nauð- synlegt að hafa með sér. Og Alison 24 VIKAN spurði sjálfa sig án afláts, hvort nauðsyn bæri til að taka þetta eða þetta með, eða hvort óhætt mundi að skilja Það eftir. „Nei, við skiijum hann eftir, Des,“ heyrði hún að Lincoln sagði. Alison varð litið upp. Hún sá að Des hafði hríðskotariffilinn i hönd- um. Hún sá að Surrey yppti brúnum, eins og hann skildi ekki í svipinn þessa ákvörðun Lincolns. En svo átt- aði hann sig. „Það er satt,“ sagði hann. „Við erum búnir með riffil- skotin. Og þá er til einskis að taka hann með, þótt hann sé afbragðs vopn ...“ Og hann lét hriðskotariffilinn falla á kofagólfið og tók upp haglabyss- una. „Við eigum enn fimmtán skot í hana þessa,“ sagði hann, „en það eru líka einu skothylkin, sem eftir eru." Og hann bar haglabyssuna og báðar axirnar niður að vatninu. Alison lenti í hvað mestum vanda þegar að Því kom hvað hún skyldi taka með af suðuáhöldum. Loks hafði hún skipt því litla, sem um var að ræða, í tvo flokka — annan, sem hún hugðist hafa með, hinn, sem skilinn skyldi eftir í kofanum. Þar með var sú örðuga þraut ráðin. „Alison ...“ mælti Dahl lágt. Hún leit til hans. Sá að hann hélt á viskýflösku, óupptekinni. Henni kom þetta á óvart, fyrst og fremst vegna þess að hún hafði haldið að Greatorex væri búinn með allt áfeng- ið, en líka — og ekki hvað sízt fyrir það, að henni kom áfengi ekki framar til hugar í sambandi við Lincoln Dahl. Ekki þann Dahl, sem hún þekkti nú. „Við höfum vist ekki neina þörf fyrir hana,“ mælti Dahl rólega. „Ekki frekar en hríðskotariffilinn .. .“ Og Alison létti meir en orð fá lýst. LOKS var flekinn fullhlaðinn. Dahl og Surrey gengu frá búlkanum og bundu hann vandlega niður. Grea- torex gamli lá í svefnpoka sínum, þar sem hann var sízt fyrir þeim hinum. Hann hafði fyrst reynt að rétta þeim hjálparhönd, en brátt komizt að raun um, að hann var einungis til trafala. Prowse var skil- inn einn eftir heima í kofanum, allt þangað til lagt skyldi af stað. Ali- son stóð á bakkanum, og einhverra hluta vegna leið henni sem bezt. Það rifjaðist upp fyrir henni, að einhvern tíma endur fyrir löngu, kannski fyrir þúsund árum, hafði hún staðið á ströndu og beðið þess í ofvæni að för hæfist ... Hún virti flekann fyrir sér, og undraðist það, hve lítt hann seig, þrátt fyrir farminn. Það var að minnsta kosti ekki annað að sjá, en að flotholtin væru algerlega vatns- held, hvað svo sem koma kynni í ljós síðar meir, og að þau virtust ekki muna neitt um að halda flek- anum og farminum uppi. Allt í kring heyrðist leysingarnið- ur og gnýr í straumþungum vötn- um. Það var eins og þíðviðrið hefði leyst sjálft lífið úr læðingi, vakið það af vetrarlöngum híðissvefni. Hlíðar fjallanna kváðu við af hjali kristaltærra snjólinda, loftið var þrungið dunum fossa, sem brutu af sér klakaviðjarnar, alls staðar var vaknandi líf, sem rauf af sér fjötra, og hví skyldi hún þá kvíða þvi, þótt hún væri sjálf að brjóta sig úr viðj- um og kveðja vetrarhíðið? Og hví skyldi hún Þá finna til saknaðar, þegar hún var í þann veginn að yfir- gefa þann stað, Þar sem hún hafði orðið að þola hvers kyns þjáning og þrengingar ... Upp frá þessum degi mundi kofinn standa auður og yfirgefinn ... á meðan hann stæði uppi. Kannski mundu brottgeltirnir renna á manna- þefinn og gera sér bústaði i dótinu, sem þau skildu þar eftir. Svo mundi þakið taka að bila og að síðustu brotna niður. Septemberstormarnir tæta burt mosatróðið milli bjálkanna í veggjunum, og engin yrði til að dytta að neinu. Og hvað gerir það þá til? spurði hún sjálfa sig, og það lá við sjálft að henni gremdist áleit'ni þessara hugsana. Hví skyldi ég sakna þessa kofa, sem veitti okkur ekki einu sinni viðunandi skjól fyrir veðrum og frostum? Engu að siður hafði hann veitt þeim það skjól sem dugði til þess, að þau lifðu af veturinn. Engu að síður áttu þau það honum að þakka, að þau stóðu hér nú, albúin að ýta úr vör að hverju gagni sem það svo yrði þeim. Og í rauninni hafði kofinn verið henni heimili — annað heimilið, sem hún hafði átt á ævinni, það hún mundi. Meira að segja það heimili, sem hún hafði sjálf skapað öðrum fremur. Konuríki, hugsaði hún með nokkurri kaldhæðni, um leið og hún var sjálfri sér reið fyrir það, að allt voru þetta hennar eigin vangaveltur, sem hún greip til einungis í því skyni að þurfa ekki að viðurkenna fyrir sjálfri sér hina raunverulegu orsök þess, að hún kvaddi kofann með söknuði, þrátt fyrri allt. Að orsök- in var fyrst og fremst sú — kannski eingöngu sú — að þar hafði hún kynnzt hinum hávaxna, granna, þunglyndislega karlmanni, sem fyrst í stað hafði vakið með henni andúð og hálfgildings fyrirlitningu, en síðan hluttekningu og virðingu, er hún vissi baráttu hans, og loks óskorað traust og aðdáun ... Dahl kallaði til hennar utan af flekanum. „Þá er öllum undirbúningi lokið. Viltu ekki koma um borð?“ Alison hristi höfuðið. „Nei,“ sagði hún. „Eg hjálpa ykkur fyrst að koma Prowse um borð.“ Og enn beitti hún sjálfa sig und- anbrögðum. Það var ekki fyrst og fremst í þeim tilgangi að styðja Prowse um borð, að hún sneri enn einu sinni heim að kofanum. Að hún greip tækifærið til að ganga þangað

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.