Vikan - 13.12.1962, Blaðsíða 12
%
Japönsku vélaverksmiðjurnar Janome, hafa framleitt sauina-
vélar í fjóra áratugi. Janome-saumavélarnar eru seldar í 62 þjóð-
löndum.
Reynsla og þekking ásamt stöðugum tæknilegum framförum hafa
gert Janome að viðurkenndustu verksmiðjum sinnar tegundar
í Japan.
Heildverzlunin HEKLA h.f.,
Hverfisgötu 103. — Sími 11275.
JÓLAUNDIR
Hvert heimili ætti að eiga sína föstu jólasiði og ýmsa hluti, sem ár
eftir ár eru eingöngu notaðir á jólunum. Þessir siðir lifa í minningu
barnanna, og þegar þau seinna eignast heimili, verða hátíðahöldin
oft með sama sniði og þau vöndust í æsku. Skemmtilegt er að bæta
einhverju við á hverjum jólum, einhverju skrauti, sem fjölskyldan
hefur búið til eða átt þátt í að útvega, og sem verður hjartfólgin
sameign allra á heimilinu.
Teppi undir jólatréð.
Auðvelt er að búa til teppi undir jólatréð með því að líma klipptar
myndir úr filti á litaðan striga, og getur öll fjölskyldan tekið þátt í
því sköpunarverki, og ekki sízt börnin, en fátt er skemmtilegra en
barnateikningar. Myndirnar þurfa allar að vera af svipaðri stærð og
eru settar u. þ. b. 10 cm frá brúninni. Myndirnar eru þá fyrst teikn-
aðar á pappír, mynztrið síðan lagt á mislitt filt og klippt. Augu,
munn og ýmislegt fleira þarf oftast að sauma á myndirnar áður en
þær eru límdar á. Berið ekki of mikið lím á, svo að filtið gegnblotni
ekki, því að annars koma blettir á það. Líka má varpa myndirnar
á teppið, en það er seinlegra. Teppið sjálft er faldað með skábandi.
Slaufur.
Þannig eru margfaldar slaufur úr stífu silkibandi búnar til, en þær
prýða hvern jólapakka.
Smekklega innpakkaðar jólagjafir veita
báðum jafnmikla ánægju, gefanda og
þiggjanda. Það er ótrúlega gaman að búa
til alls konar skrautlega pakka, og lítil
gjöf fær meira gildi, ef umbúðirnar sýna
að gefandi hefur lagt vinnu og hugkvæmni
í það, að gera pakkann sem glæsilegastan.
Oft má miða útlit við eitthvað í fari
þess, sem á að fá pakkann, t. d. mundi
pakki til barns líta öðru vísi út en annar til ungrar stúlku, og er hér
mynd til hliðsjónar.
i
O
12 VIKAN