Vikan


Vikan - 13.12.1962, Side 17

Vikan - 13.12.1962, Side 17
í Rekkhollinu spila menn billiard í tómstundunum. í matartímanum er æfð knattspyrna á melunum austan við Seaweed.... Matmæðurnar skammta á dallana, um leið og' röðin Jiokast fram hjá þeim. að segja var miklu léttara verk að grafa skurði hjá Almenna heldur en hjá verktökum. Samt fór hann ekki aftur til Almenna, þótt auglýst væri eftir verkamönnum þangað. Kunningi minn góður, Dagur Þorleifsson, nú blaðamaður Samvinnunnar, var samtíða mér á Keflavíkurflugvelli. Hann er hagorður vel, eins og margir vita, og þegar líða tók á vallarveru okkar, orti hann langt kvæði um völlinn, _sem er heldur neikvætt fyrir staðinn og það sem þar er gert. Ég vona, að mér verði ekki tekið það illa upp, þótt ég tilfæri hér nokkur erindi úr þessu kvæði Dags, til þess að sýna hvern hug sumir bera til þessa vinnu- staðar síns. Síðar í þessari grein koma fram jákvæð viðhorf: Til að vernda og styrkja hina veikluðu Evrópumenning, hin vestrænu stórveldi mynduðu heilaga þrenning og lýstu því yfir í mæltu og rituðu máli, þau myndu sig verja af hörku með blýi og stáli. Og fyrir þau ísagrund allmikla þýðingu hafði (hin íslenzka ríkisstjórn varla neitt fyrir þeim tafði): Á ljótasta stað, sem á landinu hægt er að finna þau leigðu sér skika, og þar var svo byrjað að vinna. Og sveinar og meyjar úr sveitum og þorpum og bæjum söfnuðust þar eins og lyktnæmir gammar að hræjum. Meðan sól var á lofti og ei síður er röðull var hniginn af svellandi fjöri var dansinn um gullkálfinn stiginn. Framhald á bls. 4G. VIKAN 17

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.