Vikan - 13.12.1962, Side 49
Ngt*
Nýú
Nýfit
TWÍST-AXLABÖND
nýkomin á markaðinn.
Fást í eflirtöldum verzlunum:
SÍSÍ, Laugavegi 70
IÐA, Laugave-'fi 28
SIF, Laugavegi 44
Hanzkagerð
Guðrúnar Eiríksdóttur,
Bergstaðastræti 1
London, dömudcild,
Austurstræti 14.
á daginn — að þeim lokaðist leiðin
allt í einu á vatni, sem ekki haíði
neitt. afrennsli. Samkvæmt dagatali
Alison — hvort þaö var í rauninni
rétt eða ekki, haíði enga úrslitaþýð-
ingu í þessu sambandi — var sá tólfti
júní í dag. Og áin, sem þau fóru eftir,
varð sífellt. vatnsmeiri og likari stór-
íljóti, svo að sifellt voru meiri líkur
á því, nð hún rynni að lokum til sjáv-
ar.
Það var eins og öll þeirra vandræði
leystust nú af sjálfu sér, hugsaði harin
enn, og það var svo gersamlega ólíkt.
öllu áður. 1 gær hafði Alison til dæmis
komizt að þvi, að bjarnarkjötið, sem
þau höfðu sér til nestis, var tekið að
skemmast. Fyrir nokkrum vikum
mundi það hafa haft hungur eða þá
bð minnsta kosti kvíða og áhyggjur
í för með sér. Nú mátti Þeim i sjálfu
sér á sama standa, því að þau gátu
veitt fisk að vild sinni, og auk þess
var nóg af fugli.
Dahl renndi lásnuin niður og reis
á fætur. Það var dálitið kalt í morg-
unsárið og hann var berfættur. En
hann lét það ekki á sig fá og hljóp
niður að ánni. Var i þann veginn að
ausa vatni i andlit sér til að skola
nóttina úr augunum, þegar hann
heyrði i gæsum uppi yfir.
Og án þess aö hugsa sig frekár um,
hljóp hann til baka og greip til hagla-
byssunnar. Gæsirnar bar beint yfir á
oddaflugi, þegar hann hóf byssuna í
mið og skaut. Gæsin, sem fremst fór,
stöðvaðist eitt andartak á fluginu, en
steyptist siðan niður, og lenti á tjald-
inu.
Það var ekki gott að vita hvort
það var skothvellurinn eða dynkurinn
af gæsimii, sem vakti þau hin af vær-
um blundi. Athygli Dahls beindist
fyrst og fremst að Surrey, sem hrökk
upp með slíkum andfælum að hann
rnundi ekki eftir að hann var í svefn-
pokanum og hugðist sprett.a á fætur.
Dahl hló dátt.
Þennan morgun snæddu þau nýjan
silung og lögðu síðan af stað. Alison
tók að reita gæsina og hafði við það
' snör handtök, oins og hún var vön, |
og þegar golan feykti fiðrinu út á ána, I
mátti sjá hringina, þar sem silungarn-
ir ráku snoppuna upp úr vatninu til
að athuga hvort. þar væri um æti að
ræða.
Sól hækkaði á lofti. Áin féll, vatns-
mikil ög straumþung, milli lágra sand-
eyra, og flekanum skilaði vel áfram.
Og svo dró smám saman úr straumn-
um, og innan stundar eygðu þau dá-
lítið vatn framundan, þar sem hún féll
í gegn.
Þau námu staðar á vatninu um hríð,
snæddu hádegisverð og svipuðust
um. Síðan settust þeir, Surrey og
Dahl, undir árar og reru yfir vatnið.
Þegar flekinn nálgaðist ströndina, þar
sem áin féll aftur úr vatninu, veitti
Dahl því athygli, að þar var í rauninni
ekki um eitt. afrennsli að ræða, heldur
greindist áin þar í tvær kvíslir, sem
féllu hvor í sinn dal, önnur í suður,
hin í suðaustur ...
Alison stóð fremst á flekanum og
svipaðist um. Dahl veitti svipbrigð-
um hennar náin athygli. „Nokkuð
að?‘‘ spurði hann.
„Það er svo að sjá sem tvær ár
falli úr vatninu," svaraði hún.
Dahl til mikillar undrunar var sem
Prowse vaknaði af sjálfsmeðaumkun
sinni. ,,Tvær?“ spurði hann og reis
upp við dogg.
Jafnvel Greatorex gamli leit upp.
„Sagðirðu tvær, dóttir góð? spurði
hann.
„Og hvernig fer, ef við veljum
skakkt?" spurði Prowse.
„Er óhugsanlegt að þær falli sam-
an nokkrum mílum neðar?“ varð
Dahl aö orði.
En Prowse gérði einungis að hrista
höfuðið. Surrey reri, fylgdist vel með
öllu, en lagði ekki orð í belg.
„Lincoln ...“ tók Alison tii máls,
en Dahl sendi henni aðvarandi augna-
tillit og hún þagnaði við. Og hann
vissi að hann mátti treysta því, að
hún léti ekki efa sinn og kvíða i
ijós. Svo vei þekkti hann hana nú
orðið.
Ströndin var nú ekki nema um
tuttugu metra framundan, stórgrýtt
og harðneskjuleg, og jafnlangt að
ósum ánna tveggja. Ilamrarnir, sem
skildu þær að, risu beint fyrir stafni
flekans.
Prowse settist upp, skyggði mag-
urri og fingralangri hendi fyrir augu.
„Þú hlýtur að hata mig fyrir þessa
sifelldu gagnrýni mína og efasemdir,"
sagði hann við Dahl. Rödd hans var
iág og hann talaði seint og letilega,
eins og hann hefði ekki neinn áhuga
á svarinu. Engu að siður hafði hann
haft nægan áhuga til Þess að spyrja.
Dahl varp Þungt öndinni. Um þetta
hefur Prowse þá verið að brjóta heil-
ann að undanförnu, hugsaði hann.
Framhald I næsta blaðL
CCHI
NECCHI eru vélarnar sem allar konur dreymir um a3
eignast.
Þúsundir ánægðra notenda um land alit ber vitnl um gæði þeirra.
Fálkinu li.f.
ViHAN 49
JULIA - Lycia - NQRA
Hinar dásamlegu sjálfvirku rafknúnu vélar.
Auk alls venjulegs saums framkvæma þær þúsundir af mismun
andi saumaskap algerlega sjálfvirkt, með 1 eða 2 nálum.
Bjóða yður einnig yfir 200.000 mismunandi gerðir skrautsaums,
einnig sjálfvirkt.
N E C CIII saumar einnig á hnappa, og að sjálfsögðu einnig
hnappagöt af margvíslegum gerðum og stærðum, algerlega sjálf-
virkt.
Fullkorain kennsla stendur kaupendum einnig
til boSa.