Vikan - 14.01.1965, Page 32
NILFISK
Nl LFISK
bónvélar
ein* og NILFISK
ryksugur:
Afburða verkfœri
í sérflokki.
verndargólfteppin -
því að hún hefur nægilegt sogafl
og afburða teppasogstykki, sem
rennur mjúklega yfir teppin, kemst
undir lægstu húsgögn og DJÚP-
HREINSAR jafnvel þykkustu gólf-
teppi fullkomlega, þ. e. nær upp
sandi, smásteinum, glersalla og
öðrum grófum óhreinindum, sem
berast inn, setjast djúpt í teppin,
renna til, þegar gengið er á þeim,
sarga undirvefnaðinn og slíta
þannig teppunum ótrúlega fljótt.
NILFISK slítur alls ekki tepp-
unum, þar sem hún hvorki bankar
né burstar, en hreinsar aðeins
með rétt gerðu sogstykki og
nægilegu sogafli.
ASrir NILFISK kostir:
* Stillanlegt sogatl * Hljóður
gangur * Tvöfalt fleiri (10) og
betri sogstykki, áhaldahilla og
hjólagrind mcð gúmmíhjólum
fylgja, auk venjulegra fylgihluta
* Bónkústur, hárþurrka, málning-
arsprauta, fatabursti o. m. fl.
fæst aukalega.
* 100% hreinleg og auðveld tæm-
ing, þar sem nota má jöfnum
höndum tvo hreinlegustu ryk-
geyma, sem þekkjast í ryksugum,
málmfötu eða papírspoka-
* Dæmalaus ending. NILFISK
ryksugur hafa veriö notaðar hér-
lendis jafn lengi og rafmagnið, og
eru flestar í notkun enn, þótt
ótrúlegt sé.
* Fullkomna varahluta- og við-
gerðaþjónustu önnumst við.
* Hagstætt verð.
* Góðir greiðsluskilmálar.
* Sendum um allt land.
ORVAL ANNARRA HEIMILISTÆKJA:
ATLAS kæiiskápar, frystikistur — BALLERUP hrærivélar — BAHCO eld-
húsviftur, tauþurrkarar, gufubaðstofutæki — FERM þvottavélar, þeytivindur,
strauvélar — GRILLFIX grillofnar — FLAMINGO straujárn, úðarar, snúru-
haldarar — ZASSENHAUS rafmagnskaffikvarnir, brauð- og áleggssneið-
arar — Hraðsuðukatlar, vöfflujárn, brauðristar, eldhúsvogir, baðvogir o.fl.
SÍMI 1-26-06
SUÐURGATA 10
REYKJAVÍK
O. KORME R(J P-HA1US
-----------------------------KlippiS hér-----------------------------------
Undirrit. óskar nánari upplýsinga (mynd, verð og greiðsluskilmála)
II
'bUPioap
um:
Nafn ...
Heimili
Stjörnuspáin g'ildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Ilrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Eitthvað, sem þú hefur kviðið fyrir alUengi dynur
nú yfir þig. Eigi að siður þarftu ekki að kvarta, því
þú hafðir möguleika til að afstýra þessu. Þú færð
afar erfitt verkefni til úrlausnar en öllum til furðu,
og þér sjálfum mest, ferst þér það prýðisvel.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú hefur samvizkubit vegna einhverrar ógoldinn-
ar skuldar. Þú ættir að keppa að því að losa þig
við hana. Þér hefur borizt bréf eða smágjöf, sem
hefur komið þér í nokkurn vanda. HeiUatalan
þessa viku er 3.
Tvíburamerkið (22. mai — 21. júnl):
Það steðja að þér allskyns freistingar en yfir-
leitt muntu maður til að standast þær nema
eina .. . Það ber dálítið á tortryggni hjá þér í
garð félaga þinna, en slíkt hugarfar bætir hag
þinn sízt af öllu.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júU):
Þú verður gagnrýndur að ósekju fyrir eitthvað,
sem þú hefur framkvæmt í algjöru grandaleysi.
Til allrar hamingju verða endalokin þér í hag.
Síðari part vikunnar færðu gest, sem þér er frem-
ur hvimleiður.
Ljónsmerkið (24. júU — 23. ágúst):
eMargir meðiimir þessa merkis munu verða ein-
staklega næmir fyrir umferðapestum og liggja af
þeim sökum ef til vill nokkra daga rúmfastir.
Fyrir þá, sem verða heilsuhraustir og í fullu
fjöri er laugardagurinn einkar varasamur.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
©Það hefur borið aUtof mikið á eigingirni í fari
þínu undanfarið, en vegna utanaðkomandi áhrifa
breytist hugarfar þitt og framkoma til batnað-
ar. Vinur þinn, eldri maður, efnir heit sitt, sem
betur fer fyrir þig.
" Vogarmerkið (24. september — 23. október):
PÞú verður mjög bjartsýnn og lifsglaður þessa
viku, enda munu vonir þínar, í sambandi við
atvinnu þína, rætast. Ástvinur þinn virðist vera
nokkuð erfiður í skapinu og verðurðu að sýna
honum meiri tillitssemi og þolinmæði en endranær.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember);
Þér hættir til að beita sjálfan þig of harðri
gagnrýni, þannig að þú verður kjarklaus og hlé-
drægur. Þú færð óvænta og gleðilega heimsókn
gamals félaga. Þér berst tilboð, sem þú ættir að
íhuga nákvæmlega.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. desember):
©Vikan verður mjög skemmtileg, þú hefur nóg að
starfa og nógan félagsskap. Vinur þinn dvelst
fjarri þér um stund og eftirlætur þér skemmti-
legan hlut, til varðveizlu. Fyrir ástfangna skort-
ir ekkert á rómantíkina.
___ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Þú munt eiga margar ánægjustundir við nýtt
áhugamál. Náin ættingi þinn kemur þér á óvart
'•mtgpr með framkomu sinni og gerðum. Þú ættir ekki
að leggja í neitt, sem hefur í för með sér fjár-
útlát í þessari viku.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Þessi vika verður nokkuð með öðrum hætti en
þú haföir gert ráð fyrir, en sízt óskemmtilegri.
Þú hefur verið í mikilli óvissu um nokkurn
tíma, en nú, mjög bráðlega, finnurðu lausnina á
þessu máli. Heillatala er 4.
©Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Gleymska þín á eftir að koma sér nokkuð illa
fyrir þig, en þú veizt að þú getur gert betur.
Varastu dökkhærðan mann, sem talar um við-
skipti. Dveldu sem mest með fjölskyldu þinni
og sinntu áhugamálum, sem þú átt, heimavið.
Til rÖNXX tJ., Suðurgötu 10, Raykjavflc.