Vikan

Tölublað

Vikan - 14.01.1965, Blaðsíða 8

Vikan - 14.01.1965, Blaðsíða 8
Sfórkosfleg framför HRUKKUEYÐANDI LOTION NÝTT FRÁ L A SALLE VERKSMIÐJUNUM í BANDARÍ KJUNUM. Mun stærri glös. Mun meira magn fyrir færri krónur. Sléttar úr hrukkunum á 5 mínútum. Algerlega skaðlaust fyrir húðina. Má nota eins oft og hver og einn óskar. Eitt glas endist mánuðum saman. MÚMÍA Á UPPBOÐI Það er hægt að selja allt, ef það er bara auglýst nógu vel. Það áleit að minnsta kosti belgískt uppboðsfyrir- tæki, sem auglýsti uppboð á 3000 ára gamalli múmíu. Fólk streymdi á uppboðið í hundraðatali, en tilboð komu engin. Því hver vill hafa dauða manneskju í sínum húsum, það aldrei nema þótt hún sé dauð fyrir svo sem 30 öldum? Að lokum kom lögreglan á vettvang og tók uppboðsgripinn í sína vörzlu, og forsvarsmenn upp- boðsins voru ákærðir, því samkvæmt belgískum lögum er harðbannað að selja lík þar í landi. Síðan síðast RÚSSNESKUR FÓLKSVAGN Rússnesku blíaverksmiðjurnar afhenda ríkinu framleiðslu sína og ríkið ákveð- ur hvert bílarnir fara: Hversu margir skuli flytjast út, hversu margir til embættismanna ríkisins eða fyrir- tækja og síðan mætir hinn almenni, rússneski bílkaupandi afgangi. Það er hreint ekki óvenjulegt, að menn verði að bíða í tvö til þrjú ár eftir nýjum Moskvits eða Volga, sem þeir hafa pantað. Það er greinilegt að fram- leiðsla eins og bílar hefur v.eriö lát- ið sitja hjá, þegar annars vegar voru þýðingarmeiri, tæknileg atriði eins og geimferðir. Þar hefur hins vegar ekki verið til sparað. Eitt af því sem Krússi sagði þjóðinni, var að hún væri poka- lega til fara og nú hafa þeir ef til vill uppgötvað, að bílarnir mættu líka líta betur út. í fyrsta sinn á síðasta ári tóku Rússar þátt í Monte Carlo kappakstrinum. Nú hafa Rússar hafið framleiðslu á smábíl, sem sýnist vera eitthvað ætt- aður Moskvits, en á raunar að vera einskonar fólksvagn, draumabíll þjóð- arinnar. Hann heitir þjálu og indælu nafni: Saporodjnets 9G6. Að sumu leyti minnir hann á Renault Dauphine með loftinntaki í inndregnu grilli á hliðunum. Hann er 40 hestöfl, há- markshraðinn sagður vera 120 km og útvarpið er standard eins og í öðrum rússneskum bílum. Auðvelt í notkun. — Notkunarreglur á íslenzku fylgja hverju glasi. FÆST í FLESTUM VERZLUNUM LANDS- INS, SEM VERZLA MEÐ SNYRTIVÖRUR. Heildsöl ubirgöir: 0. Johnson & Kaaber h. f. O VIKAN 2. tbl. HVERS VEGNA ERU NEGRAR SV0NA SPRETTHARÐIR? Á alþjóðlegum íþróttamótum standa negrar jafnan mjög framarlega í spretthlaupum, en hins vegar kemur varla fyrir að þeir komizt í úrslit eða jafnvel að þeir reyni að taka þátt í lengri hlaupum en 800 m. í sögu Olympíuleikanna ber hátt negra eins og Jesse Owens, Harrison Dillard, sem sigraði 100 m í London 1948 og Tolan, sem sigraði 100 m 1932. Wilma Rudolph er í sérflokki og sömuleiðis Hayes, sem sigraði í Tokyo. Þar sigraði einnig Henry Carr 200 m, Wyomia Tyus 100 m kvenna og Hayes Jones 110 m grind. Öll eru þau svört.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.