Vikan

Eksemplar

Vikan - 15.07.1965, Side 8

Vikan - 15.07.1965, Side 8
~v READINGS FROM ICELAHDIC LITERATURE WOhO [ TVEIR ÞJÖÐSKÚRUNGAR ÍSLENZKRA RÖKMENNTA HALLDOR LAXNESS DAVID STEFANSSON NOBELSVERDLADNASKALD SKALD FRA FAGRASHOGI Islenzkir rithöjundar il iiljímplötnm Tvær stórmerkar hæggengar hljóm- plötur með upplestri íslenzkra rit- höfunda eru nýlega komnar ó sölu- markað. Er annars vegar hljóm- plata með Halldóri Laxness og Davíð Stefónssyni, og hins vegar plata með prófessorunum Sigurði Nordal og Jóni Helgasyni, og lesa þeir allir úr eigin verkum. Með hljómplötum þessum mun andi og raddir þessara merku manna lifa lengst okkar ó meðal. Allir unnend- ur íslenzkra nútímabókmennta þurfa að eignast þessa þjóðardýrgripi. fÁlKIHN H.F. Hljómplötudeild. (valitetssko fra Danmarks starste skofabrik ermereværdend de koste Söluumboð í Reykjavík Skósalan Laugaveg 1 Einkaumboð: Heildverzlun Andrésar Guðnasonar Hverfisgötu 72. Sfmar 20540 - 16230. Margrét skuldar 30 milljönir kröna. Tony kann ekki við sig hjá hirðinni. • Þegar Margrét Englandsprins- essa giftist Ijósmyndaranum Tony Armstrong Jones voru margir. sem óskuðu þeim til hamingju, en svo voru líka aðrir, sem hristu höfuðið þungt hugsi. Nú er svo að sjá, sem þeir svartsýnu hafi haft rétt fyrir sér. Þó að enginn tali hátt um það, er það opinbert leyndarmál, að ekki er allt eins og það á að vera hjá Snowdon hjónunum heima ( Kens- ingtonhöll. Jafnvel hefur gengið orðrómur um skilnað. Margar ástæður eru sagðar til grundvallar þessari hjónabandsmis- klíð, t.d. viðskiptaleg vandamál og fjárreiður. Vegna eyðslusemi Mar- grétar komst fjölskyldan í skuldir og frelsislöngun Tonys, sem minnk- ar lítið, samræmist ekki vel stöðu hans við hlið Margrétar í hinu op- inbera lífi þeirra. Það er nokkuð síðan tók að brydda á þessu ósam- komulagi þeirra, en í ársbyrjun, þegar Tony tók að láta sig litlu skipta, hvað fréttist um sambúð- ina, byrjuðu sögusagnirnar. Það tók að bera nokkuð mikið á því, að hann skildi Margréti eina eftir heima og færi út með þeim, sem höfðu verið félagar hans fyrir gitfingu hans. Meðan Margrét sat heima hjá börnunum, fór hann einn til að vera viðstaddur opnun nýrr- ar spunaverksmiðju í Glasgow. Þá fór hann einnig með vini sínum Kilbrandon lávarði til Edinborgar. Þeir herramennirnir stunduðu þar leikhús og eyddu jafnan kvöldinu á krám, þar sem kvenfólk er mið- ur vel séð sem gestir. Það hitnaði stöðugt í og orðróm- urinn jókst hröðum skrefum, en fyrst komst skriður á málin, þegar Tony fór til vetrarleikjanna í Klost- ors ( Sviss með þremur vinum sín- um, en lét Margréti sitja heima. Margrét lét einkaritara sinn til- kynna, að því miður gæti hún ekki farið, hún yrði að vera um kyrrt í London, meðan stæði á heimsókn g VIKAN 28. tbl.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.