Vikan

Útgáva

Vikan - 15.07.1965, Síða 11

Vikan - 15.07.1965, Síða 11
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSS. FYRRV. BISKUP, 76 ARA 1 spurningunni, sem ég er beðinn að svara, eru nefnd „ákveðin tímabil“, og mun ég því nefna fleiri en eitt. Ég staðnæmist fyrst við bemsku mína innan tíu ára aldurs. Hún var gleðitími á heimili for- eldra minna og systkina. Trú mín á Guð lýsti mér. Og til hans leitaði hug- ur minn, hvort heldur var í gleði eða sorg. Ég átti samfélag við hann. Síðan verður mér einkum hugsað til tíma- bilsins, þegar ég var há- skólakennari og biskup. Ég fékk að kenna ung- um mönnum heilög fræði, sem ég helzt mundi kjósa. Og Ijúf var samvinnan við prestastétt íslands. Ást- vinir studdu mig. Ég má taka undir bænar- orðin til Guðs: — Öll er hjálp af þér í hjarta mér. Þannig er spurning- unni að mestu svarað. Ég myndi kjósa bernsk- una aftur og fagna orð- um föðurins á himnum: Nú gjörir þú, barnið mitt, betur. Ég mundi einnig kjósa nýjan starfstíma fyrir kirkju Krists í krafti hans. V._____________________; AUÐUNN ODDSSON, HRAFNISTU 72 ARA Þetta er nokkuð erfið spuming. Það er held ég fátt eða ekkert sem ég kærði mig um að upplifa af því, sem á dagana hefur drifið. Ég hef átt við fátækt, hungur, erfiði og heilsuleysi að striða mestan hluta ævinnar. Ég hef stundað sjó mestan hluta ævinnar og var þó alltaf sjó- veikur. Án þess að mig langi nokk- uð til að fara að rifja það upp eða endurlifa það, leið mér þó alltaf bezt á sjónum, þótt sjóveikur væri. Og þá fannst mér bezt, þegar fisk- aðist og þegar nógu slæmt var veð- ur. Það voru mínar ánægjustundir. V____________________________/ SIGURLÍNA GÍSLADÓTTIR GRUND, 84 ARA Ég held ég myndi velja mér árin frá 19 til 24 ára. Þá var ég í utanlandssiglingum á dönsku skipi og kom víða um heim. Það eru einhverjir skemmtilegustu tímar, sem ég man eftir. Nú, það mætti líka nefna giftinguna og tilhuga- lífið, ég gæti vel hugsað mér að rifja það upp aftur. Að öðru leyti er það fátt sem ég vildi fara að standa í á nýjan leik. v_______________________________; Ég held, að mín beztu ár hafi verið frá 14 og til 18 ára aldurs. Ég hafði þá að- stöðu, sem ekki allir höfðu um það leyti að geta notið skóla- göngu. Ég hafði alveg prýði- legan kennara, sem gerði meira en að kenna okkur það, sem fyrir var sett, en kenndi okkur líka dönsku og söng eftir nótum. Eftir nám- ið heima fór ég til séra Árna Magnússonar og frú Dagnýjar konu hans á Sauðárkróki og var það nokkurs konar gagn- fræðiskóli fyrir mig, þar sem séra Ámi kenndi mér svipað námsefni og nú er kennt í gagnfræðaskólum. Frú Dagný kenndi mér hins vegar allt það, sem ung stúlka þurfti að kunna í þá daga og var eins og hinn bezti húsmæðraskóli í þeim efnum. Svo fór ég líka í gamla hússtjórnarskólann annað árið sem hann starfaði. Mig dauðlangaði að fara í menntaskóla, en á þeim tím- um var það ekki í móð, að kvenfólk legði stund á þau fræði. Ekki hafði ég síður gaman af að skemmta mér, ef tækifæri gafst. Ég var eitt- hvert mesta dansfífl heima og hafði mjög gaman af öllum selskap. Já þessi ár eru mér einna minnisstæðust. Þá var ég ung og lífsglöð og hafði tækifæri til að læra það sem mig lang- aði til og hugurinn girntist. Það voru góðir dagar. SIGURDUR MARfASSON, HRAFNISTU, 72 ARA Mig langar ekki til að skrúfa aidursskrúfuna aft- ur. Vissulega er skemmti- legt að hugsa til stúdents- áranna, en því verður ekki breytt. Hið liðna ei til baka snýr. Hvað er klukkan nú? Klukkan er 11.15 árdegis. Einmitt á þessari mínútu staldra ég við. Ég lifi í augnablikinu. Tek einn dag í einu. Á þessu augnabliki einmitt núna lít ég með þakklæti yfir farinn veg. Ég blessa hugljúfar minn- ingar og nú, er kvöld er komið, vil ég öruggur bíða sólarlagsins. s.______________________________/ SR. BJARNI JÚNSSON VfGSLUBISKUP, 84 ÁRA VIKAN 28. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.