Vikan - 15.07.1965, Blaðsíða 22
<5 Gullþorsti í aug-
um fátæks manns,
sem freistar gæfunn-
ar á Klondyke.
Myndin sýnir Chil-
koot-skarð. Þar fór-
ust hundruð manna.
í sex klukkustundir
samfleytt urðu þeir
að höggva spor I
gaddfreðinn snjóinn
og bera öll áhöld sín
á bakinu.
O Gullóðir menn
leita að hinum dýra
málmi á götum í
Klondyke.
Ef þú skyldir eiga skartgrip úr gulli, sem
fylgt hefur ætt þinni, dýrmætan minjagrip,
skaltu skoða hann vel og lengi unz sú
spurning vaknar, hvaðan það gull muni
vera komið, sem hann er gerður úr, hvern-
ig sem hann annars er gerður, hvar upp-
runnið muni vera þetta óumbreytanlega efni.
Er það ættað úr gullnómu í Suður-Afríku? Ef
til vill, en það gæti líka hafa geymzt um þús-
undir óra f egypzkri konungsgröf, sem ræningj-
ar hefðu komizt í, rænt gripum, brætt þá og
selt gullið. Þá gæti það hafa verið umgerð um
gimstein, sem skreyta átti einhvern af konung-
um Azteka, og einhver af leiguhermönnum
Cortezar stolið þvf og brætt, en síðan verið
sent yfir höf á einu af hinum miklu herskipum
Karls fimmta. Það gæti hafa verið gullband um
háls einhverrar konu þegar óðir hermenn komu
rænandi, slitið af hálsi hennar með engri hæ-
versku . . . Fyrr þrýtur okkur hugkvæmni að
giska á feril gullsins en tæmdir séu möguleikarnir
Því gull er óforgengilegt. Sagnfræðingur sá,
sem á sögu þess kann einna bezt skil, C. H. V.
Sutherland, hefur látið svo um það mælt: „Ég
1896. ÞaS ár hófst síSasta gullæSiS, og nú þustu þeir, sem af
því voru haldnir, tii Alaska, í dal þann sem Klondyke heitir, og
er uppi viS heimskautsbaug. 200000 komu frá ýmsum löndum
jarSarinnar. 50000 komust meS herkjum alla leiS og byrjuSu
þegar aS reisa borgina Dawson City, úr spýtnabraki og tjöru-
pappír. Vetur lagSist snemma aS meS óvenjulegri grimmd.
BirgSaflutningar stöSvuSust. Matarskortur svarf aS, svo aS ein
hreSka var seld á dollar og salt var virSi þunga síns í gulli. En
áfram var haldiS aS grafa á hverju sem gekk. Miklir eldar voru
kveiktir aS næturlagi til þess aS þýSa svörSinn. Engir læknar,
engin lyf: kalnar tær og fingur voru höggnir af meS öxi hit-
aSri í eldi, og meSan jörS var harSfrosin, voru lík geymd uppi
á þökum húsanna. Þremur árum seinna voru námurnar tæmd-
ar og Dawson City auS borg og yfirgefin.
Sagan af góðmálmlnum allt frá
Krössusi tll Klondyke og fram á
vora daga . . .
22 VIKAN 28. tbl.