Vikan - 15.07.1965, Page 28
Nú þurfa menn ekki að vera að
hugsa um, að ná sér í frúarefni
upp á gamla mátann, tæknin
hefur haldið innreið sína í hjóna-
TREUfBORG SAFEVRIDE
bandsmálin. Bandaríkin, Vestur-
Þýzkaland og Sviss hafa gengið
á undan með góðu fordæmi, hvað
þessu viðvíkur. Rafeindafræðin
hefur leyst gömlu aðferðina af
hólmi, og komnar eru á markað-
inn svokallaðar hjónabandsvél-
ar. Þjálfaðir menn spyrja fólk
spjörunum úr um persónuleika,
áhugamál, eiginleika, hæfileika,
áætlanir, fortíð, fjárhagsmál og
kynferðismál með sérstökum
spurningakerfum. Upplýsingar
eru síðan látnar til meðferðar
rafeindaheila, og eftir nokkrar
sekúndur sprautar hann lausn-
inni út úr sér, þessi skal giftast
þessari og hinn hinni. Svo er bara
að velja stað og stund fyrir
hjónaleysin til að hittast, og svo
sjá tunglskin og hormónar um
afganginn.
Það varð Almenningsstofnun í
Hamborg, sem fyrst varð til að
uppgötva, að rafeindaheilar geta
komið að góðu haldi í ástamál-
um. Þjóðverjar nota mikið hjóna-
bandsmiðlanir og auglýsingar,
u.þ.b. 40.000 hjónabönd verða til
á þann hátt árlega. Rúmlega
tíunda hvert hjónaband eftir
stríð á upptök sín frá hjónabands-
auglýsingum eða miðlurum.
Þjóðverjum finnst það heldur
ekki á neinn hátt niðurlægjandi
að hafa fengið sinn ektamaka fyr-
ir tilstilli auglýsinga eða miðlara.
Og nú geta þeir bætt við: „Við
hittumst í hjónabandsvél“.
Það er mikið um að vera í
þessum málum í Þýzkalandi eins
og stendur. Flest blöð hafa sér-
stakan dálk, sem ber nafnið
Heiratsmarkt, (giftingarmarkað-
ur), og þar eru langar raðir af
auglýsingum. Mest bar á auglýs-
ingum frá kvenfólki um tvítugt
og karlmönnum um þrítugt. En
auðvitað eru líka til undantekn-
ingar. Nýlega auglýsti 84 ára
öldungur eftir „ósnortinni stúlku,
ekki yngri en 70 ára“.
Hvernig skyldi þetta gefast
hér á íslandi? Dálítið er tekið
er með ávölum brúnum, sem koma í veg fyrir „rásun“ í stýri og gerir bifreiðina óstöð-
uga á vegi. Bremsuhæfni og slitþol SAFE-T-RIDE er mjög mikið. — Berið saman verð.
TRELLEBORG SAFE-T-RIDE er sænsk framleiðsla.
Sölustaðir: Akranes: B. Hannesson. — Stykkishólmur: K. Gestsson. — ísafjörður: Verzl.
M. Bernharðsson. — Blönduós: Hjólið s.f. — Akureyri: Þórshamar h.f. — Egilsstaðir:
Vignir Brynjólfsson. — Reykjavík: Hraunholt Miklatorgi og Vitatorgi.
GUNNAR ASGEIRSSON H. F.
Suðurlandsbraut 16 — Sími 35200.
að bera á hjúskaparauglýsingum
í dagblöðunum, og fyrir nokkr-
um árum var sett á laggirnar hér
hjúskaparmiðstöð, sem lifði að
vísu ekki lengi, en kúplaði þó
nokkrum saman. Hvað sem verð-
ur, vona ég bara, að hið opinbera
taki ekki þessi mál í sínar hend-
ur. Það væri laglegt, ef maður
væri kallaður einhvern góðan
veðurdag niður á skrifstofu borg-
arfógeta og fengi þann úrskurð,
að búið væri að velja manni var-
anlegan lífsförunaut með aðstoð
tækninnar.
Hú fœst lnmingjan í hjúMbmM
2g VIKAN 28. tbl.