Vikan - 19.08.1965, Blaðsíða 7
um alveg fyrir einum leikaran-
um, Arnari Jónssyni. Viltu nú
ekki vera svo góð að birta fyrir
okkur mynd af honum og segja
okkur eitthvað um hann. Við
verðum fyrir miklum vonbrigð-
um, ef við fáum ekki birta mynd.
Með fyrirfram þakklæti.
Tvær hrifnar.
Það er föst venja hjá okkur að
birta aldrei mannamyndir í póst-
inum, og svo verður einnig að
þessu sinni. Hvernig var það
annars, keyptuð þið ykkur ekki
leikskrá, þegar þið sáuð leikrit-
ið? Ef þið hafið gert það, getið
þið örugglega séð mynd af hon-
um þar og horft ykkur saddar
á hana. Arnar Jónsson er 23 ára
gamall. Hann er fæddur á Akur-
eyri og stundaði nám í mennta-
skólanum þar en hætti og sneri
sér að leiklistinni. Hann innrit-
aðist í Leikskóla Þjóðleikhússins
og tók mjög gott próf þaðan. Síð-
an hefur hann leikið bæði hjá
Þjóðleikhúsinu, Leikfélaginu og
Grímu.
BRÉF TIL FORELDRA.
Ég er ein af þeim mörgu, sem
tek það að mér að vera barn-
fóstra á kvöldin fyrir fók, sem
langar til að fara út. En oft þeg-
ar ég kem, eru bömin sofnuð og
foreldrarnir hafa ekkert sagt
þeim frá því, að þau yrðu ekki
heima um kvöldið. Svo vakna
börnin kannske seinna um kvöld-
ið og þá verður grátur og gníst-
an tanna, þegar foreldrarnir eru
ekki heima, heldur einhver ó-
kunnug stúlka. Þess vegna vil ég
nú biðja foreldrana um eitt. Seg-
ið börnunum frá því, að það
verði barnfóstra hjá þeim, og ef
við höfum adrei séð börnin, þá
leyfið okkur að koma aðeins
fyrr, svo að við getum kynnzt
þeim. Það getur nefnilega oft
verið erfitt að koma þeim í rúm-
ið aftur, ef þau eru komin fram
úr á annað borð. Barnfóstra
Kæri Póstur!
Ég er allt of grönn og reyni
eins og ég get að bæta við mig
nokkrum kílóum. En á hverjum
degi er fólk að minna mig á, að
ég sé allt of grönn, ég verði nú
svo sannarlega að bæta við mig,
ég líti ekki vel út og svona áfram
í það óendanlega. Ég reyni að
brosa á móti, en þetta tal særir
mig og bráðum þori ég ekki að
láta sjá mig meðal fólks.
Af hverju fáum við þessar
grönnu ekki að vera í friði? Við
vitum það vel sjálfar, að við er-
um of grannar og viljum verða
aðeins holdugri, en það er hreint
ekkert auðvelt. Hugsið ykkur, ef
ég segði við einhverja vinkonu
mína: — Mikið hroðalega ertu
orðin feit, þú þyrftir laglega að
grenna þig. — Ég býst við, að
hún myndi taka það nærri sér.
En það er alveg jafn ókurteist
að tala um, að fók sé of grannt
eins og að það sé of feitt. Það
er a.m.k. mín skoðun.
STRAX f HJÓNASÆNGINA,
EÐA ....
Ég er átján ára, og hef verið
með strók í tvö ár. Hann er tví-
tugur. Okkur þykir vænt hvoru
um annað, en hann hefur sagt
það skýrt og greinilega, að hann
sé ekkert að hugsa um að gifta
sig. Allir kunningjar okkar halda
að við ætlum að fara að trúlofa
okkur, og eru alltaf að spyrja mig
að því. Mér finnst ég ekki geta
sagt þeim að hann vilji bara ekki
giftast mér. Ég hef talað um þetta
við hann, og hann segir bara, að
hann hafi alls ekki hugsað sér
að fara að gifta sig. Ég hef svo
miklar áhyggjur af þessu og get
ekki talað um þetta við mömmu,
og því síður vinkonur mínar, svo
að ég bara verð að skrifa þér og
vita hvað þú hefur um málið að
segja. Viltu svara mér fljótt, því
ég get ekki um annað hugsað. Á
ég að halda áfram að vera með
honum, þegar hann ætlar kannski
aldrei að giftast mér?
„í vanda stödd“.
Út af fyrir sig er gott aff heyra
það, aff ekki eru allir unglingar
á íslandi haldnir giftingaræði.
Okkur líst svona í fljótu bragffi
vel á þennan unga mann, sem
er á móti því aff demba sér beina
Ieiff í hjónasængina, enda þótt
þiff séuff búin aff vera saman í
tvö ár, eins og þú segir. Ef til
vill er hann þeirrar skoffunar, aff
þið þurfiff bæði að ná affeins
meiri þroska áffur en þiff látiff
vígja ykkur saman og haldið út
í lífiff fyrir alvöru. Svo er líka
ágætt aff eiga dálítiff af aurum
áffur en þiff hefjist handa. Vertu
bara róleg, og láttu timann skera
úr í þessu vandamáli þínu. Ykk-
ur liggur ekkert á.
Nútíma kona notar
Yardiey fe
Yardley fegrunarvörur eru fram-
leiddar fyrir yður samkvaemt
nýjustu tækni og vísindum, eftir
margra óra rannsóknir og til-
raunir í rannsóknarstofum Yardl-
ey í London og New York.
Yardley veit að þess er vænst
af yður, sem nútíma konu, að
þér lítð sem bezt út, án tillits
til hvar þér eruð eða hvernig
yður líður.
Þess vegna býður Yardley yður
aðeins hin réttu andlitsvötn og
krem, hvernig svo sem húð yðar
er og Yardley tízkul itirnir í
varalitum, augnskuggum og
make up, sem fara yður bezt.
BIÐJIÐ UM YARDLEY í NÝJUSTU
PAKKNINGUNUM.
Innflytjandi GLÓBUS h.f.
fyrir yður f auðvitað... f
VIKAN 33. tbl. fj