Vikan - 19.08.1965, Side 14
:
-
icv ' ' :
L* ^ !
' >
n .
' 9
••
.
• Það er eins og hún þjáist af
dálitilli minnimáttarkennd og ekki
laust við að hún skammist sín fyrir
eitthvað. Kannske er það mamma
gamla, sem hefur ráðin í hendi
sér. Mest langar hana til að vera
í heilurn sundbol, en það er ekki
í tízku, svo að það er ekki hægt.
Hugsar sér bikini, en það er of
djarflegt. Það gengur ekki. Þessi
tvískinnungur bendir til þess, að
hana langi til að fara að gifta sig.
• Sennilega er hún sænsk
þessi. Hún vili augsýnilega láta á
sér bera. Þá vill hún líka lítið þurfa
að hafa fyrir lífinu og elskar skjót-
fenginn gróða. En eitthvað skamm-
ast hún sin fyrir, það sýnir hattur-
inn, sem nær niður fyrir augu. Hún
veit örugglega, að einhver takmörk
eru fyrir öllu.
• Fyrir nokkrum árum var þessi
klæðnaður það allra djarfasta, sem
hægt var að sýna sig í. í dag klæð-
ist stúlkan honum án þess að blikna.
Þrátt fyrir það, hefur hún sína
„komplexa". Það sýnir hnúturinn á
lendunum. Þetta er sýnilega þrosk-
uð stúlka, sem góðs er af að vænta
fyrir þann, sem giftist henni.
• Þessi er eins og opin bók
fyrir manni. Eitthvað hefur verið
bogið við uppeldið. Hana langaði
í fegurðarsamkeppni, en hefur ekki
komizt í úrslit. Hún dregur sig oft
í hlé. Fussar og sveiar við karlmönn-
um, en langar þó í félagsskap
þeirra. Getur verið glaðvær í vina-
hópi, en undir kátínunni er einhver
óljós ótti.
Síðan iíðait
Sezt Robert
Kennedy
I forsetastól ?
Þeir, sem fylgjast með stjórnmál-
um í Washington, hafa alltaf beint
augunum að Robert Kennedy öld-
ungadeildarþingmanni New York-
fylkis. Upp á síðkastið hafa þeir
látið það einróma í I jós, að Kennedy
hafi hafið herferð sína til útnefn-
ingar sem forsetaefni Demokrata
fyrir forsetakosningarnar árið 1972,
hægt og hægt muni herferðin
harðna, unz Kennedy hefur náð
takmarki sínu. Auk þessa hefur
sextíu og átta siðna auglýsingarit
verið gefið út og ber það titilinn:
„Róbert Kennedy sem næsti forseti
Bandaríkjanna". Auglýsingaritið,
sem Kennedy hefur ekki viðurkennt
opinberlega, segir frá ástæðunum
fyrir herferðinni og fullyrðir eftir-
farandi.
í fyrsta lagi getur enginn svipt
Lyndon B. Johnson, núverandi for-
seta útnefningunni við næstu kosn-
ingar og það er heldur engin þörf
á því að gera nokkrar ráðstafanir
varðandi Kennedy þetta kjörtímabil.
Ef Johnson forseti andaðist fyrir
1968, mundi Hubert Humprey vara-
forseti verða eftirmaður hans.
í öðru lagi er Johnson við góða
heilsu, og allt bendir í þá átt, að
honum auðnist að halda sínu sæti
allt til ársins 1972. Allar líkur
benda til þess, að þá muni hann
mæla með Humprey sem eftirmanni
sínum, en fráfarandi forseti hefur
ekkert sérstakt vald til að velja
næsta forsetaefni og vel skipulögð
áróðursherferð gæti auðveldlega
komið í veg fyrir það, að Humprey
hreppti hnossið. Þótt svo færi, að
Kennedy biði lægri hlut fyrir
Humprey, en við það væri ekki svo
mikill skaði skeður, þar sem
Kennedy er svo ungur að árum, að
það gerði ekki svo mikið til, þó
að hann yrði að bíða í nokkur ár
enn. En samt ekki það lengi, að
hann verði orðinn gamall og skorp-
inn.
Það er fleira en auglýsingaritið,
sem gefur til kynna, að áróðursher-
ferð Kennedys sé þegar hafin.
Kvikmynd bandarísku upplýsinga-
þjónustunnar um forsetaferil John
F. Kennedys mun líklega ekki verða
VIKAN 33. tbl.