Vikan

Issue

Vikan - 19.08.1965, Page 26

Vikan - 19.08.1965, Page 26
Nöttln logar af norðurljósum - Einar Kpís upp endurminningar sínar - 2. hluti - Jah VID flTTUM AD SEGJ/ í Dresden kom rómantíkin inn í spiliS. Ein af söngkonunum við óperuna kynnti mig fyrir vinkonu sinni, Martha Papafoti, ungri og laglegri stúlku, sem átti grískan föður og suSur-hýzka móður. Faðirinn, sem var sígarettuframleiðandi, hafði flutzt til Þýzkalands skömmu eftir aldamót og átt þar heima síðan. Ég bauð Mörtu á sýningu í óper- unni, og ekki leið á löngu, þar til það rann upp fyrir mér, að ég var orðinn ástfanginn. Ekki skyggði það á, að hún spilaði á píanó og var bráð-músikölsk. Sumir vilja halda þvi fram, að listamenn séu rómantískari en ann- aS fólk, verði allt að þvi heltekn- ir af yfirþyrmandi ást við fyrstu sín. — ÞaS held ég sé misskiln- ingur. Hins vegar vill stundum bera við, aS gervi-listamenn verði óumræðilega þykjast-rómantiskir. ÞaS fór dável á með okkur Mörtu frá fyrstu kynnum, og ekki féll henni verr en svo við piltinn, að tveimur árum síðar, 27. júni 1936, vorum við gefin saman i litilli skóg- arkirkju í útjaðri borgarinnar. Til kirkjunnar ókum við að gömlum sið í skrautlegum brúðarvagni, sem fákum var beitt fyrir. — Þang- að kom einnig drengjakór hirðar- innar og söng við vígsluna. Þetta þótti tiSindum sæta, því aS kór- inn var kaþólskur úr kaþólskri kirkju. Vissu menn ekki til, að slíkt hefði gerzt áður, enda án efa alls ekki á hverjum degi, sem kaþ- ólskur kór syngur i lútherskri kirkju. Skýringin var sú, aS ég hafði sjálf- ur sungið mikið við hirðkirkjuna. Bæði hafði ég áhuga á kirkjusöng, og svo var það gömul hefð, að óperan sæi um söngflutning við kirkjuna. Hafði sá söngur lent töluvert meira á mér en flestum öðrum — ef til vill vegna þess að hægara hefur þótt að skikka „nýliðann“ frá íslandi til þess en aðra. Mér þótti mikið til þessarar vin- semdar koma. ÞaS var þægileg til- finning aS finna, að maður hafði ein- hvers staðar komið sér vel —- já, betur en aðrir. Seinna átti presturinn, sem gaf okk- ur saman, eftir að skíra báðar dætur okkar. í tilefni giftingarinnar fókst mér, eftir nokkurt stimabrak að fá frí í þær fáu vikur, sem eftir voru af starfs- tímanum i Dresden. BúiS var að ganga frá ráðningunni til Stuttgart-óperunn- ar, og þar beið okkar yndisleg ibúð, en fyrst á dagskrá var brúðkaupsferð til íslands og hinna NorSurlandanna. Strax næsta dag lögðum viS úr höfn í Hamborg með Milwaukee, skemmti- ferðaskipi. Ég átti í miklu taugastríði fyrir brottförina. Hitler var kominn til valda, og stranglega var bannað að fara með stærri fjárhæð en tíu mörk úr landi. Eins og endranær á ferðalögum liafSi ég pakkað niður kjólfötunum mínum, því að alls staðar átti að syngja. í þau hafði ég stungið 5 £, þessum dásamlega þunna, hvíta seðli, sem ég hafði átt í mörg ár og átti að vera eins konar varasjóður. Allan farangur áttu farþegar að afhenda til toll- skoðunar á afgreiðsluna í landi og biða eftir honum um borS. Þegar komið var með föggur okkar, vantaði töskuna með kjólfötunum. Ég var viss um, að seðill- inn hefði fundizt og brátt myndu birtast „gylltir hnappar“, sem byðu mér upp á ókeypis samfylgd i land aftur. Ótti minn reyndist til allrar hamingju ástæðulaus, þvi taskan kom um síðir, og enginn hafði tekið eftir neinu. Martha Papafoti og Einar Kristjánsson nýgengin í hjónaband. Lengst til vinstri: Einar í hlutverki Mignon eftir Thomas. J y Til vinstri: Einar í Óperunni Fidelio eftir Beethoven,

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.