Vikan - 19.08.1965, Qupperneq 26
Nöttln logar af norðurljósum - Einar Kpís
upp endurminningar sínar - 2. hluti - Jah
VID flTTUM AD SEGJ/
í Dresden kom rómantíkin inn
í spiliS.
Ein af söngkonunum við óperuna
kynnti mig fyrir vinkonu sinni,
Martha Papafoti, ungri og laglegri
stúlku, sem átti grískan föður og
suSur-hýzka móður. Faðirinn, sem
var sígarettuframleiðandi, hafði
flutzt til Þýzkalands skömmu eftir
aldamót og átt þar heima síðan.
Ég bauð Mörtu á sýningu í óper-
unni, og ekki leið á löngu, þar til
það rann upp fyrir mér, að ég var
orðinn ástfanginn. Ekki skyggði
það á, að hún spilaði á píanó og var
bráð-músikölsk.
Sumir vilja halda þvi fram, að
listamenn séu rómantískari en ann-
aS fólk, verði allt að þvi heltekn-
ir af yfirþyrmandi ást við fyrstu
sín. — ÞaS held ég sé misskiln-
ingur. Hins vegar vill stundum
bera við, aS gervi-listamenn verði
óumræðilega þykjast-rómantiskir.
ÞaS fór dável á með okkur Mörtu
frá fyrstu kynnum, og ekki féll
henni verr en svo við piltinn, að
tveimur árum síðar, 27. júni 1936,
vorum við gefin saman i litilli skóg-
arkirkju í útjaðri borgarinnar. Til
kirkjunnar ókum við að gömlum
sið í skrautlegum brúðarvagni,
sem fákum var beitt fyrir. — Þang-
að kom einnig drengjakór hirðar-
innar og söng við vígsluna. Þetta
þótti tiSindum sæta, því aS kór-
inn var kaþólskur úr kaþólskri
kirkju. Vissu menn ekki til, að
slíkt hefði gerzt áður, enda án efa
alls ekki á hverjum degi, sem kaþ-
ólskur kór syngur i lútherskri kirkju.
Skýringin var sú, aS ég hafði sjálf-
ur sungið mikið við hirðkirkjuna.
Bæði hafði ég áhuga á kirkjusöng,
og svo var það gömul hefð, að óperan
sæi um söngflutning við kirkjuna.
Hafði sá söngur lent töluvert meira
á mér en flestum öðrum — ef til vill
vegna þess að hægara hefur þótt að
skikka „nýliðann“ frá íslandi til þess
en aðra.
Mér þótti mikið til þessarar vin-
semdar koma. ÞaS var þægileg til-
finning aS finna, að maður hafði ein-
hvers staðar komið sér vel —- já, betur
en aðrir.
Seinna átti presturinn, sem gaf okk-
ur saman, eftir að skíra báðar dætur
okkar.
í tilefni giftingarinnar fókst mér,
eftir nokkurt stimabrak að fá frí í
þær fáu vikur, sem eftir voru af starfs-
tímanum i Dresden. BúiS var að ganga
frá ráðningunni til Stuttgart-óperunn-
ar, og þar beið okkar yndisleg ibúð,
en fyrst á dagskrá var brúðkaupsferð
til íslands og hinna NorSurlandanna.
Strax næsta dag lögðum viS úr höfn
í Hamborg með Milwaukee, skemmti-
ferðaskipi. Ég átti í miklu taugastríði
fyrir brottförina. Hitler var kominn
til valda, og stranglega var bannað
að fara með stærri fjárhæð en tíu
mörk úr landi. Eins og endranær á
ferðalögum liafSi ég pakkað niður
kjólfötunum mínum, því að alls staðar
átti að syngja. í þau hafði ég stungið
5 £, þessum dásamlega þunna, hvíta
seðli, sem ég hafði átt í mörg ár og
átti að vera eins konar varasjóður.
Allan farangur áttu farþegar að afhenda til toll-
skoðunar á afgreiðsluna í landi og biða eftir honum
um borS. Þegar komið var með föggur okkar, vantaði
töskuna með kjólfötunum. Ég var viss um, að seðill-
inn hefði fundizt og brátt myndu birtast „gylltir
hnappar“, sem byðu mér upp á ókeypis samfylgd
i land aftur. Ótti minn reyndist til allrar hamingju
ástæðulaus, þvi taskan kom um síðir, og enginn
hafði tekið eftir neinu.
Martha Papafoti og Einar Kristjánsson nýgengin í
hjónaband.
Lengst til vinstri: Einar í hlutverki Mignon eftir
Thomas.
J
y
Til vinstri: Einar í Óperunni Fidelio eftir Beethoven,