Vikan - 19.08.1965, Blaðsíða 32
MEÐ
Minolta
fáið þér betri myndir
Minolta
Uniomat
35 mm. filma
Linsa: Rokker f. 2,8/ 45 mm.
Lokari: Frá B 1/8 - 1/1000.
Aðrar fáanlegar 35 mm. myndavélar:
MINOLTA AL
MINOLTA SR—1
MINOLTA HIMATIC—7
MINOLTA REPO
MINOLTA SR-7
MINOLTINA P
• SJALFVIRK/eða
• STILLANLEG
• RAFDRIFIN
IUE
STÆRÐ: 10x2,3x2,0 cm.
MINOLTA 16 R - Einföld - ódýr.
MINOLTA 16 II - Standard gerð.
MINOLTA 16 EE II - Sjálfvirk - fullkomin
Fyrirliggjandi aukahlutir og hjálpartæki
svo sem: Framköllunartankar,
Skuggamyndasýningavélar,
Filmur svart/hvltar og
litfilmur.
• FAST I MYNDAVELAVERZUNUM
UM LAND ALLT.
SALA & VIÐGERÐAÞJÓNUSTA: FILMUR & VÉLAR, SkólavörSustíg 3.
HEILDSOLU-
BIRGÐIR:
]. P. Guðjónsson 09 Sveinn Björnsson & (g.
Skúlagötu 26, sími 11740 — GarSastrætí 35, sími 24204.
*
, 4
Ipioupnair
Stjörnuspáin gildir frá fimmtudegi til fimmtudags.
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú átt í nokkrum erfiðleikum með að komast til
botns í gerðum ákveðinnar persónu og veldur það
þér talsverðum heilabrotum fram eftir vikunni.
Miklar líkur eru á að í vikulokin hafirðu töluverð
verðmæti milli handanna.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú stofnar til kynna við fólk sem þú átt margar
samverustundir með, þótt leiðir ykkar skilji von
bráðar. Ýmsir persónulegir erfiðleikar verða á vegi
þínum og ættirðu að skipuleggja tíma þinn betur en
hingað til.
Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Þú ferð með kunningjum þínum 1 skemmtiferð sem
tekur nokkra daga. Konur sem fæddar eru milli 3—20
munu verða fyrir einhverju eftirminnilegu. Per-
sóna nokkuð yngri en þú kemur talsvert við sögu.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí):
Þú verður fyrir óvæntum skakkaföllum. Þú getur
bráðlega lokið við verk sem þú hefur verið tafinn
frá um tíma. Þú verður fyrir barðinu á einhverjum
slúðrurum en það nær þó ekki að skaða þig.
> v* *
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
©Líkur eru á að þú græðir eitthvað á því að félagi
þinn skorast undan merkjum. Þú verður fyrir ein-
hverju tjóni en getur þó glatt þig við tiltölulega
góða útkomu sökum snarræðis þíns. Heilsufarið
verður með góðu móti.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Einn kunningja þinna hefur mjög undarlega fram-
komu og áttu erfitt með að komast að því hvats hann
hyggst fyrir. Þér er bezt að ganga ekkert á hann
og halda þínu striki. Um helgina dvelurðu mikið
Jútivið.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Undanfarið hefurðu verið mikið utan við þig og
fremur leiðinlegur í umgengni. Þú vinnur mikið við
verkefni sem þarfnast mikillar yfirlegu og mikils
tíma. Hætt er á að þú verðir fyrir nokkrum töfum.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember).
Vinur þinn færir þér fréttir sem leiða af sér að þú
getur slegið tvær flugur í einu höggi. Þú færð smá
upphæð til eigin ráðstöfunar frá lítt kunnum aðil-
um, fyrir lítið viðvik. Þiggðu heimboð á föstudags-
kvöldið.
©
Bogmannsmerkið 23. nðvemker — 21. desember):
Varastu að skemmta þér í of stórum hópi, og ef þú
hyggur á ferðalög ættirðu mjög að takmarka tölu
ferðafélaganna. Óveðursblikur eru á lofti í einka-
málum þínum. Taktu ráðleggingum þér eldri og
vitrari manna.
Steingeitarmerkið (22. dcsember — 20. (anúar):
Þú kemst i erfiða aðstöðu við að velja og hafna, en
sökum tímaskorts þú velurðu auðveldustu leiðina,
þrátt fyrir að hún þýðir e.t.v. nokkurt fjárhagslegt
tjón. Vinur þinn kemur þér til hjálpar á elleftu
stund.
Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar):
Vertu dálítið alúðlegri í umgengni og minnstu þess
að sýna samferðafólkinu tilhlýðilega virðingu, jafn-
vel þótt þér sé það ekki sérlega eiginlegt. Leggðu
mikið kapp á að fullkomna framkomu þína og
háttu. i |.
Fiskamerkið (20. fcbrúar — 20. marz):
Þú lendir í klemmu milli tveggja aðilja sem toga í
þig úr tveim áttum. Þú færð óvænt og e.t.v. óveð-
skuldað hrós fyrir verk þín, en það ætti að verða
til að minna þig á að það borgar sig að vanda sig.
g2 VIKAN 33. tbl.