Vikan

Issue

Vikan - 19.08.1965, Page 46

Vikan - 19.08.1965, Page 46
VIKAN OG HEIMILIÐ ritstjóri: Gudridur Gisladóttir. Prjónuð föt á I—2 ára Mál. Brjóstvldd: 56—58 sm. öll sídd: 28—32 sm. Buxnavídd: 54—56 sm. Buxnasídd: 25—27 sm. Efni: Um 250 gr. af fjórþættu, meðalgrófu ullargarni. Prjónar nr. 2'/2 og 3 og aukaprj. nr. 3 til hjálpar köðlunum. Prjónið það þétt, að 30 I. prj. með sléttprjóni á prj. nr. 3 mæli 10 sm. Standist þessi hlutföll, má prjóna eftir uppskriftinni óbreyttri, annars verður að breyta prjóna- eða garngrófleika. Munstur I. Umferðir 1, 3, 5, og 7: (rangan) * 3 I. sl., 4 I. br. Endur- takið frá * og endið með 3 I. sl. Umferðir 2, 4 og 6: (réttan) * 3 I. br., 4. I. sl. Endurtakið frá * og endið með 3 I. br. 8. umf.: * 3 I. br., látið næstu 2 1. á aukaprjón og látið vísa fram, 2 I. sl., takið nú aukaprjón- inn og prjónið af honum 2 I. sl., við það snýst kaðallinn. Endurtakið frá * og endið með 3 I. br. 9. og 11. umf. eins og 1. umf. 10. og 12. umf. eins og 2. umf. 13. umf. eins og 1. umf. Munstur II samanstendur af 6 I. 1. umf.: (réttan) 1 I. br., 4 I. sl., 1 I. br. 2. umf.: (rangan) 1 I. sl., 4 I. br., 1 I. sl. 3. umf.: látið 2 I. á auka- prjóninn og látið hann vísa fram, 2 I. sl. og síðan 2 I. sl. af auka- prjóninum, 1 I. br. Umferðir 4, 6 og 8 eins og 2. umf. Umferðir 5, 7, og 9 eins og 1. umf. 10. umf. eins og 2. umf. Endurtakið munstrið frá 3. umf. PEYSAN. Bakstykki: Fitjið upp 66—80 I. á prjón nr. 3. Takið þá prjón nr. 21/2 og prj. munstur 1 í 13. umf. Takið þá prjóna nr. 3, og prj. sléttprj. að undanskyldum 6 I. báðum megin við 8 miðlykkjurnar. Prjónið þessar 6 I. til hliðanna með munstri II alla leið upp. Aukið nú út 8—3 I. með jöfnu millibili báðum megin við 20 miðlykkjurnar (16—6 I. í einni umf.). Prjónið 2 I. til endanna Framhald á bls. 49. Lakkið kápurnar á matreiðslu- bókunum einu sinni yfir með glæru Iakki, þannig losnið þið við fitublettina, sem óhjákvæmi- Iega setjast á slíkar bækur. ★ Til þess að teppið á stiganum endist lengur, ætti að kaupa það einum 4 tommum lengra en þörf er á. Það á þá að vera of langt að ofan og afganginum brett inn undir sjálft sig eða lagt undir teppið á stigapallinum. Þegar líkur eru til að teppið fari að slitna, má draga það aðeins neð- ar, svo að brúnirnar færist til, og sé það þegar byrjað að slitna á tröppubrúninni, sést slitið furðulítið á tröppuveggnum und- ir brúninni. Það mætti t. d. flytja það í fyrsta áfanga um tvær tommur og láta hinar tvær enn vera afgangs uppi, og þegar teppið byrjar svo aftur að slitna, er þetta bara endurtekið, en end- arnir skornir af að neðan. ★ Ef þið eigið teborð eða annað borð á hjólum, er hentugt að hafa það hjá sér, þegar þvottur- inn er straujaður, raða honum þar í bunka, eftir því hvert hann á að fara, og rúlla honum svo herbergi úr herbergi í skápa og skúffur. ★ Þar sem smábörn eru, er nauð- synlega að loka á einhvern hátt rafmagnsístungum á veggjum. Glært límband er betra en ekk- ert til þess. ★ Setjið 1 bolla af matarsalti í 10 bolla af vatni og skolið nælon eða dacrongluggatjöldin í þess- ari blöndu áður en þau eru hengd upp, þá verða þau stíf og falleg á eftir. Athugið að saltið drepur grasið, séu tjöldin þurrkuð úti, og breiðið því eitthvað undir. Líka koma blettir á gólfin, sé ekkert til að hlífa þeim. ★ Hafi tyggigúmmí klínzt í fötin eða á skóna, getur verið erfitt að ná því af. Setjið skóna eða flík- ina í frystinn í ísskápnum nokkra stund (plastpoka utan um, ef þess þarf) og látið kólna vel. Þá er auðvelt að skafa það burt. Sé flíkin of fyrirferðarmikil í skáp- inn, má nudda blettinn með ís- mola, þar til hann er kaldur og harður. VIKAN 33. tbl.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.