Vikan - 19.08.1965, Síða 46
VIKAN OG HEIMILIÐ
ritstjóri:
Gudridur Gisladóttir.
Prjónuð föt á
I—2 ára
Mál. Brjóstvldd: 56—58 sm. öll sídd: 28—32 sm. Buxnavídd: 54—56 sm.
Buxnasídd: 25—27 sm.
Efni: Um 250 gr. af fjórþættu, meðalgrófu ullargarni.
Prjónar nr. 2'/2 og 3 og aukaprj. nr. 3 til hjálpar köðlunum.
Prjónið það þétt, að 30 I. prj. með sléttprjóni á prj. nr. 3 mæli 10 sm.
Standist þessi hlutföll, má prjóna eftir uppskriftinni óbreyttri, annars
verður að breyta prjóna- eða garngrófleika.
Munstur I. Umferðir 1, 3, 5, og 7: (rangan) * 3 I. sl., 4 I. br. Endur-
takið frá * og endið með 3 I. sl. Umferðir 2, 4 og 6: (réttan) * 3 I. br.,
4. I. sl. Endurtakið frá * og endið með 3 I. br. 8. umf.: * 3 I. br., látið
næstu 2 1. á aukaprjón og látið vísa fram, 2 I. sl., takið nú aukaprjón-
inn og prjónið af honum 2 I. sl., við það snýst kaðallinn. Endurtakið frá *
og endið með 3 I. br. 9. og 11. umf. eins og 1. umf. 10. og 12. umf. eins
og 2. umf. 13. umf. eins og 1. umf.
Munstur II samanstendur af 6 I. 1. umf.: (réttan) 1 I. br., 4 I. sl., 1 I.
br. 2. umf.: (rangan) 1 I. sl., 4 I. br., 1 I. sl. 3. umf.: látið 2 I. á auka-
prjóninn og látið hann vísa fram, 2 I. sl. og síðan 2 I. sl. af auka-
prjóninum, 1 I. br. Umferðir 4, 6 og 8 eins og 2. umf. Umferðir 5, 7,
og 9 eins og 1. umf. 10. umf. eins og 2. umf. Endurtakið munstrið frá
3. umf.
PEYSAN. Bakstykki: Fitjið upp 66—80 I. á prjón nr. 3. Takið þá prjón
nr. 21/2 og prj. munstur 1 í 13. umf. Takið þá prjóna nr. 3, og prj.
sléttprj. að undanskyldum 6 I. báðum megin við 8 miðlykkjurnar.
Prjónið þessar 6 I. til hliðanna með munstri II alla leið upp. Aukið nú
út 8—3 I. með jöfnu millibili báðum megin við 20 miðlykkjurnar (16—6
I. í einni umf.). Prjónið 2 I. til endanna Framhald á bls. 49.
Lakkið kápurnar á matreiðslu-
bókunum einu sinni yfir með
glæru Iakki, þannig losnið þið
við fitublettina, sem óhjákvæmi-
Iega setjast á slíkar bækur.
★
Til þess að teppið á stiganum
endist lengur, ætti að kaupa það
einum 4 tommum lengra en þörf
er á. Það á þá að vera of langt
að ofan og afganginum brett inn
undir sjálft sig eða lagt undir
teppið á stigapallinum. Þegar
líkur eru til að teppið fari að
slitna, má draga það aðeins neð-
ar, svo að brúnirnar færist til,
og sé það þegar byrjað að slitna
á tröppubrúninni, sést slitið
furðulítið á tröppuveggnum und-
ir brúninni. Það mætti t. d. flytja
það í fyrsta áfanga um tvær
tommur og láta hinar tvær enn
vera afgangs uppi, og þegar
teppið byrjar svo aftur að slitna,
er þetta bara endurtekið, en end-
arnir skornir af að neðan.
★
Ef þið eigið teborð eða annað
borð á hjólum, er hentugt að
hafa það hjá sér, þegar þvottur-
inn er straujaður, raða honum
þar í bunka, eftir því hvert hann
á að fara, og rúlla honum svo
herbergi úr herbergi í skápa og
skúffur.
★
Þar sem smábörn eru, er nauð-
synlega að loka á einhvern hátt
rafmagnsístungum á veggjum.
Glært límband er betra en ekk-
ert til þess.
★
Setjið 1 bolla af matarsalti í 10
bolla af vatni og skolið nælon
eða dacrongluggatjöldin í þess-
ari blöndu áður en þau eru hengd
upp, þá verða þau stíf og falleg
á eftir. Athugið að saltið drepur
grasið, séu tjöldin þurrkuð úti,
og breiðið því eitthvað undir.
Líka koma blettir á gólfin, sé
ekkert til að hlífa þeim.
★
Hafi tyggigúmmí klínzt í fötin
eða á skóna, getur verið erfitt að
ná því af. Setjið skóna eða flík-
ina í frystinn í ísskápnum nokkra
stund (plastpoka utan um, ef
þess þarf) og látið kólna vel. Þá
er auðvelt að skafa það burt. Sé
flíkin of fyrirferðarmikil í skáp-
inn, má nudda blettinn með ís-
mola, þar til hann er kaldur og
harður.
VIKAN 33. tbl.