Vikan - 23.09.1965, Side 24
-O Heima hjá brúðinni er mikið um að vera. Allt
á tjá og tundri og undirbúningur undir veizluna
er í fullum gangi. Og svo kemur að því að brúðurin
klæðist brúðarkjólnum, og móðir hennar hjálpar.
Iiálftíma áður en athöfnin á að hefjast, ganga
brúðguminn og svaramaður hans til kirkjunnar —
allt samkvæmt settum reglum.
Brúðguminn og svaramaður hans setjast í kór
kirkjunnar. Þeir rísa á fætur í hvert sinn, sem
gestur gengur inn kirkjugólfið, og brúðguminn
heilsar með því að hneigja höfuðið. Þegar gestur-
inn er setztur, má brúðguminn setjast á ný — ef
nýr gestur er þá ekki kominn í kirkjuna.
Athöfnin á að hefjast kl. sex og nákvæmlega á
slaginu kemur brúðurin ásamt föður sínum. Feðg-
in taka sér sæti í kórnum, gegnt brúðgumanum og
svaramanni hans. O
í HEILAGT HJÓNABAND
Heima hjá brúðgumanum er einnig í mörg horn að
líta, og senn kemur að því, að hann fari í smóking-
inn. Móðir hans réttir honum hjálparhönd og lagar
slaufuna. Hann er ef til vill ofurlítið taugaóstyrkur
— en hver er það ekki, undir sambærilegum kring-
umstæðum? -O
Brúðarkjóllinn er tákn sakleysis og hreinleika, hvítur og
fagur, augnayndi hverjum þeim, sem ann fögrum klæð-
um. Hér eru þær systur brúðarinnar að yfirfara búnað
systur sinnar með gagnrýnisaugum.
Og athöfnin hefst. Presturinn, séra [)
Óskar J. Þorláksson, gengur að alt-
arinu. Brúðurin heldur á brúðarvend-
inum, en upphaflega hélt brúðurin á
blómsveig við kirkjubrúðkaup. Hring-
urinn á að tákna eilífðina, en blómin
boða frjósemi, en höfðu áður fyrr
miklu stærra hlutverk í giftingarat-
höfnum en nú. Og blómakransinn or
orðinn að fögrum vendi.
24 VIKAN 38. tbl.
P$
: :