Vikan

Útgáva

Vikan - 04.11.1965, Síða 26

Vikan - 04.11.1965, Síða 26
ég kenndi. Svo einn dag var hún horfin. Ég leitaði um allt, en fann hvergi. Þó fór ég til bronssteypara, sem gert hafði afsteypurnar, Ras- mussen hét hann, og spurði, hvort hann þekkti frummyndina. Ja, ja, jeg kender din mor, sagði hann, og lofaði að láta mig vita, ef hún birtist einhvern tíma hjá honum. Svo liðu 8 ár, þá kom skeyti frá Rasmussen: „Din mor er kommen. Hvad skal jeg göre ved tyven"? Þjófurinn var þekktur myndhöggv- ari í Danmörku, Hefði hann ekki verið svo vitlaus að fara með mynd- ina til Rasmussen, hefði ég aldrei fengið hana aftur. — En elskurnar mínar, þið þurf- ið að fá kaffi, segir Sigurjón og lokar stóru bókinni. Svo vísar hann okkur leiðina inn f aðalíbúðarhús- ið, í gegnum glugga. — Það er eft- ir að setja hurðina, ég held þið getið klofazt þetta, hlær Sigurjón. — Þið eruð nýbúin að auka hús- rýmið hjá ykkur? — Já, það var reyndar hann Ragnar í Smára, sem byggði við gamla húsið, meðan ég var á Reykjalundi. Hann gerir ekki illa við sína menn. Ég veiktist í lung- unum árið 1960 og var 2 ár á Reykjalundi, hef líklega ekki þol- að vinnuna í bragganum, sem ég hafði áður fyrr. Svo byggði ég vinnustofuna, þegar ég kom heim, og líkhúsið þarna byggði ég í fyrra, segir Sigurjón og bendir á Iftinn kofa utangarðs, þar sem hann geymir ýmislegt dót, sem ekki rúm- ast í vinnustofunni. Við göngum út í veröndina í rigninguna. Þar liggur kýrhöfuð og grænt barnshöfuð, og Hallgerður langbrók hallar sér upp að veggn- um. Utar stendur steinn í túni, það er höggmyndin Allir í leik, sem Kópavogur hefur fest kaup á, hún Flölskyldan hélt ég væri aö slæpaisf Fyrir utan vinnustofuna stendur höggmyndin Aliir í leik sem kemur til meS að prýða skrúðgarð Kópavogskaup staðar, þegar fram líða stundir. í vinnustofu Sigurjóns. Listamaðurinn styður sig við minnismerki um Stein Steinarr, í forgrunni eru Einar ríki og ofninn góði. VIKAN 44, tbl

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.