Vikan - 04.11.1965, Síða 43
Sunffesk
APPELSÍ N
SITRÚN
LIME
Svalandi - ómissandi
á hverju heimili
— Spencer, sagði Turner. —
Minnkið flughraðann niður í hundr-
að og tuttugu hnúta, annars kom-
ist þið aldrei niður. Ég endurtek.
Leekkið hraðann niður í hundrað
og tuttugu hnúta! Farið nú varlega
og rólega að öllu!
— Hann sveiflast ennþá, en held-
ur áfram að lækka sig, sagði rad-
armaðurinn með sinni óhagganlegu
rósemi. — Átta hundruð fet, sjö
hundruð og fimmtíu, sjö hundruð . .
Turner kipptist við.
— Ég sagði að þér ættuð að fara
rólega, Spencer. Nú tapið þér hæð-
inni allt of ört! Gefið meira bensín!
Gefið bensín . . . Þér verðið að
halda henni í kringum þúsund fet.
Við hlið George hélt Janet áfram
að fylgjast með lofthraðanum.
— Hundrað, hundrað og tuttugu,
hundrað og tuttugu, hundrað og tíu,
hundrað og tuttugu, stöðugt íhundr-
að og tuttugu. Hafðu hana svona,
George.
— Ég skal reyna, muldraði Ge-
orge milli samanbitinna tannanna.
Hann reif og togaði í stýrið. Skelf-
ing var þessi braggi lengi að svara
öllu.
Flugvélin svaraði ekki stýrishreyf-
ingum hans.
— Hún svarar alls ekki, sagði
hann.
— Hún stígur upp í níu hundruð
fet, sagði radarmaðurinn. — Nú er
hann í þúsund. Láttu hann halda
henni þar.
— Já, haltu henni þarna! æpti
Turner.
Svo sneri hann sér að flugum-
ferðastjóranum.
— Nú er lokakaflinn. Slökkvið
öll lendingarljós, nema á núll átta.
Þá byrjar lokakaflinn, sagði hann
( hljóðnemann. — Og í guðs nafni
hafið auga bæði með hraðanum og
hæðinni.
— Ég hef nú bara tvö augu,
muldraðl George. — Og ég hef
aldrei beðið um þetta, þér skulið
minnast þess Turner!
— Allt í lagi, allt í lagi . . . Turn-
er rak upp einhver hljóð, sem áttu
að líkjast hlátri. — Ég vona að þér
séuð ekki reiður út í mig, gamli
vinur! Yður þykir ég sjálfsagt ein-
um of harður. En ég er hræddur
um að ég megi til. Nú eruð þér
svo að segja kominn niður á jörð-
ina, og þá er hættan afstaðin . . .
— Þér eruð mesti bjartsýnismað-
ur, sem ég hefi nokkurntíman stað-
ið ( sambandi við.
— Jæja, þetta er nóg kjaftæði í
bili, sagði Turner með sinni venju-
legu rödd. — Haldið ykkur í þús-
und fetum, þar til ég segi ykkur
til.
Úti á flugvellinum var slökkt á
hverjum hópnum á fætur öðrum
af lendingarljósunum. Að lokum
voru aðeins eftir tvær raðir, sfn
hvorum megin við lendingarbraut-
ina.
— Reynið nú að koma f beina
línu á lendingarbrautina, sem er
beint fyrir framan yður. Sjáið þér
Ijósin? spurði Turner.
Nýtt útlit
Ný tækni
Málmgluggar fyrir
verzlanir og skrif-
stofubyggingar í
ýmsum litum og
formum.
Málmgluggar fyrir
verksmiðjubygging-
ar, gróðurhús, bíl-
skúra o. fl.
/jjj
MALMGLUGGAR ’/c
LÆKJARGÖTU, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 50022
Framhald í næsta blaði.
VIKAN 44. tbl.