Vikan - 12.01.1967, Blaðsíða 2
BARA HREYFA EINN HNAPP og
H/%B4/%FULIMATIC
SJÁLFVIRKA ÞVOTTAVÉLIN ÞVÆR, SÝÐUR, SKOLAR OG
VINDUR ÞVOTTINN.
S-i/%B*/%FULLMATIC ÞVOTTAVÉLIN FER SIGURFÖR UM ALLA EVRÓPU. -
H A K A GERIR ÞVOTTADAGINN AUÐVELDARI EN ÁÐUR ÞEKKTIST.
SJÁLFSTÆÐ
ÞVOTTAKERFI
1. SuSuþvotlur 100
2. Heitþvottur 90
3. Bleijuþvottur 100
4. Mislitur þvottur 60
5. Viðkvæmur þvottur 60
6. Viðkvæmur þvottur 40
7. Stífþvottur/Þeytivinda
8. Ullarþvottur
9. Forþvottur
10. Non-lron 90
11. Nylon Non-lron 60
12. Gluggatjöld 40
®-fly%»*/*FULLMATIC
AÐEINS H^B^kFULLMATIC ER SVONA AUÐVELD í NOTKUN. SNÚIÐ EINUM SNERLI
OG H AKA SÉR ALGERLEGA UM ÞVOTTINN OC- SKILAR HONUM ÞEYTIUNDNUM. - SJÁLFVIRKT
HiTASTIG OG VATNSMAGN, SEM HÆFIR HVERJU t-VOTTAKERFI. - SJÁLFVIRKAR SKOLANIR. - TÆM-
ING OG ÞEYTIVINDUÞURRKUN. - MEÐ 2 KERFUM AF 12 ER HÆGT AÐ SJÓÐA ÞVOTTINN SVO VÉL-
IN SKILAR JAFNVEL ÓHREINASTA ÞVOTTI TANDURHREINUM. - ÞVOTTURINN KEMUR AÐEINS VIÐ
GLANSSLÍPAÐ, SEGULVARIÐ, RYÐFRÍTT STÁL.
—— ábyrgð
KOMIÐ - SKOÐIÐ - SANNFÆRIST
r
í FULLRI HLVÖRU
Þeir bera mest
úr býtum sem
minnst kunna
Fyrir fáeinum vikum átti ég
þátt í því að fá hreingerningar-
mann til þess að gera hreinan
stigagang í tveggja hæða húsi.
Maðurinn kvaðst taka 800 krón-
ur á dag, en ef verkið tæki 4
tíma, „þá erum við vanir að
taka heils dags kaup“, sagði
hann. Þessi hreingerningarmað-
ur notaði ekki vél og hafði eng-
in tæki önnur en fötu, tuskur
og stiga.
Hann var að vísu ekki 4 tíma
að ljúka verkinu, en taldi það
samt hálfs dags verk og það var
ekki við annað komandi en borga
honum 800 krónur. Með skikkan-
legum vinnutíma er auðvelt
fyrir þennan mann og hvern
annan hreingerningamann að
hafa 1600 krónur á dag. Nú skul-
um við gera ráð fyrir að hann
taki sér frí bæði á laugardög-
um og sunnudögum, en samt
hefur hann 32 þúsund á mánuði
og talsvert meira ef hann nenn-
ir að leggja frekar að sér.
Til þess arna þarf vitaskuld
ekki einu sinni að hafa komizt
fram úr barnaskólanámi, starfs-
reynsla skiptir ekki máli, því
verkið er gersamlega vandalaust
og áhaidakostnaður er nálega
enginn.
Þetta er alveg í samræmi við
svo margt annað í þessu for-
skrúfaða þjóðfélagi, að þeir
sem minnsta hafa hæfileikana
og kunnáttuna, skuli bera mest
úr býtum. Ekkert er auðveldara
fyrir einn hreingerningarmann
með skolpfötu og tusku í hendi,
en að hafa snöggtum hærri laun
en prófessor við Háskóla íslands
eða vísindamaður sem vinnur að
þýðingarmiklum rannsóknum.
Sennilega mega ráðherrarnir
hafa sig alla við ef þeir eiga
að standa hreingerningarmann-
inum snúning.
Til samanburðar má geta þess,
að tungumálakennari við einn
stærsta skóla landsins, fær 150
krónur fyrir að pæla í gegnum
og leiðrétta 100 enska stíla, eða
1,50 kr. á hvern stíl. Tíu sinnum
í mánuði hverjum, vakir hann
fram á rauða nótt yfir stílunum
og fær samtals 1500 krónur fyr-
ir þá aukavinnu, eða heldur
minna en hreingerningamaður-
inn fær fyrir eina dagstund.
G. S.
..........______
2 VIKAN 3- tbl-