Vikan - 12.01.1967, Blaðsíða 18
MIKIÐ af blóði hefur runn-
ið til jarðar í fjöllum og
á strönd Ovalau, sem er
ein Fijieyjanna.
Fyrir aðeins sjötíu og fimm ár-
um síðan voru á þessari eyju að
minnsta kosti fimmtíu hof, helg-
uð heiðnum guðum. Og hér
lifðu og starfaði Chakombau
gamli konungur, sem hafði auk-
nefnið „rót stríðsins,“ og hér var
það sem hann — árið 1874 —
afhenti Englendingum kóngsríki
sitt með öllum þess gögnum og
gæðum, kóralrifjum og lónum,
mannætupottum og trumbum,
stríðskanóum og seglum.
Nú heyra heiðnu hofin, manna-
kjötspottarnir og strfðskanó-
arnir fortíðinni til. En Englend-
ingarnir eru ennþá á Fijieyjum,
og sömuleiðis nokkur ,,fundahús“
hingað og þangað úti í þorpun-
um.
Það eina, sem raunverulega
minnir á hina gömlu stríðsdaga
eru trumburnar, lali, sem gerðar
eru úr trjástofnum, sem holað-
ir eru innan, en félagslífið í
þorpunum snýst enn að veru-
legu leyti um þær. Trumburnar
eru barðar með tveimur hörðum
trékylfum, og dofinn og harður
sónn þeirra heyrist víða. Fyrr á
tíð voru trumburnar notaðar til
að kalla fólkið saman til manna-
kjötsmáltíða og herferða. Nú
orðið kalla þær fólk til prédik-
ana í kirkjunum, eða — í höf-
uðborginni Suva — til máltíða
á Grand Pacific Hotel.
Áður fyrr var á Fijieyjum —
og sérstaklega þó á þessari litlu
eyju, Ovalau — iðkað manna-
kjötsát af svo mikilli lyst, að
einsdæmi mun vera í mannkyns-
sögunni.
Stæði svo á, sem sjaldan bar
við, að einn ættbálkur ætti ekki
í stríði við annan, sendi höfð-
inginn einfaldlega nokkra beztu
stríðsmennina af stað til að veiða
fólk í soðið, og þá helzt konur
og börn. Því fylgdi minnst
áhætta.
Sjómenn, sem lentu í skip-
broti við eyjarnar, áttu þar
heldur engu góðu að fagna.
Eyjaskeggjar sögðu að þeir
hefðu „salt í augunum“ og litu
á þá sem gjöf frá guðunum.
Kæmist einhver duglegur sund-
maður lifandi undan hákörlun-
um og briminu, varð það aðeins
til þess að hann fór beint í pott-
inn hjá íbúum eyjanna.
Fyrsti hvíti maðurinn, sem
étinn var á Fijieyjum, var
sænsk-amerískur sjómaður, sem
kallaður var Villti-Kalli. Það
bar við á því herrans ári 1813.
Villti-Kalli kom til eyjanna
með bandarísku briggskipi, sem
strandaði á kóralrifi nálægt
Ovalau. Þótt ótrúlegt sé hlaut
hann góðar móttökur og varð
M eyjar
túristaparadís
moroindaosins?
Suva — höfuðborg Fijieyja og viðskipta- og samgöngumiðstöð á suðvestursvæði
Kyrrahafsins — hefur um þrjátíu þúsund íbúa. Flestir þeirra eru Indverjar,
frumbyggjarnir eru þar aðeins fjórtán af hundraði íbúanna. O