Vikan - 12.01.1967, Blaðsíða 23
Með Karate aðferðinni molar Kon-
stantin konungur múrsteina með
olnboganum. Hann er mikill íþrótta-
maður og árið 1960 vann hann gull-
verðlaunin fyrir siglingar á Olym-
piuleikjunum.
Konstantin, sem er snillingur í kar-
ate, er hér að keppa við mág sinn,
spánska prinsinn Don Juan Carlos.
hinum volduga og vinsæla for-
sætisráðherra, Georg Papandreu.
Forsætisráðherrann vildi taka
varnarmálaráðuneytið í sínar
hendur, en þar sem grunur lá á
að sonur forsætisráðherrans,
ætlaði sér að ná hernum í sínar
hendur, ráðlagði konungurinn
Papandroeu að láta einhvern
annan taka við störfum sonar
hans. Papandreou neitaði og
bauðst til að segja af sér, í
þeirri trú að konungurinn léti
í minni pokann. En Konstantin
sá í gegnum hann og hélt fast
við sínar skoðanir og lét forsæt-
isráðherrann fara, þrátt fyrir
róstur í þinginu og óeirðir meðal
kommúnista. Fyrir nokkrum
mánuðum lagði rannsóknarnefnd
fram sönnunargögn þess efnis, að
Andreas Papandreou hafði verið
með það á prjónunum að taka
herinn í sínar hendur og láta
Grikki segja sig úr NATO.
Þótt Konstantin hafi með
framkomu sinni skapað sér álit
sem dugandi þjóðhöfðingi, er
hann ekki auðugur maður á
þjóðhöfðingja vísu. Hann verður
að halda vel á því fé sem hann
hefur handa á milli, og það eru
aðeins árslaun hans, hann á eng-
in persónuleg auðæfi. Hann hefur
17 milljón drökmur í árslaun
(566.666 dollara) en á síðasta ári
afsalaði hann sér 2 milljónum
drökmum ) 66.666 dollurum), til
Framhald á bis. 48.
; :
l' ' :
' \ '' J
■
V
■■