Vikan


Vikan - 23.07.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 23.07.1970, Blaðsíða 34
 FRÁ RAFHA RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla. - ÓDÝRASTA RAFMAGNSfcLDAVÉLIN á markaðinum. - Heim- keyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322 I ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. LITAVER GpStóVEGI 22 - 24 »30280-32262 STJ'I ÍRNUSPÁ*$fc Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Þú þarft að taka á þig nokkra ábyrgð fyrir nokkra félag i þina. Eldri persónur hlaupa undir bagga með bér mikið liggur við. Sýndu samferðamönnunum meiri tillitssemi og reyndu að vera skemmtilegur. AdgggH* wW Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Nú losnarðu bráðum við nærveru persónu er hefur gert þér lífið leitt að undanförnu. Reyndu að nota þér fjarveru hennar og koma þér vel fyrir, svo til fleiri árekstra þurfi ekki að koma ykkar í millum. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Maður er þú átt nokkur viðskiptl við kemur fram við þig á mjög drengilegan hátt, er vissir hlutir ganga úrskeiðis fyrir þér. Þú œttir að leggja meiri rækt við félaga þína og leita frétta af þeim. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): Það eru margir sem álíta að þú svíkist um siðferðis- legar skyldur þínar, en þú ert neyddur til að halda striki þínu áfram enn um sinn. Þú færð skemmti- lega heimsókn og góða hjálp frá nánu skyldmenni. qjj* Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst): Vinir þínir taka sig saman og aðstoða þig við um- fangsmikið verk. Vikan verður mjög skemmtileg. Ýmsir verða til að ráðleggja þér að hætta við fyrir- ætlanir þínar, en útlit er fyrir að sigurinn verði þinn. UtP Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Einhver verður til þess að hnupla frá þér hlut sem pér er nokkuð annt um. Yfirmaður þinn er fremur úriliur og viðskotaillur þessa dagana og skaltu láta sem minnst fyrir þér fara til að forðast árekstra. Vogarmerkið (24. september — 23. október): Viðskipti sem þú hefur átt hluta í upp á síðkastið valda þér vonbrigðum, og væri réttast fyrir þig að losa þig úr þeim áður en það er of seint. Þú dvelur líklega fjarri borginni um tíma. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú átt ánægjulegar samverustundir með félögum þínum á kyrrlátum stað. Heppnin verður að mörgu leyti með þér og þú nýtur lífsins í ríkum mæli. Varastu að eiga of náin samskipti við amor. ##> Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Þú verður mjög fljótur að Ijúka af ákveðnum skyldu- störfum þínum og getur þess vegna notað tíma þinn til éigin þarfa. Vinur þinn reynist þér nokkuð tor- ráðinn, en þú skalt ekki inna hann eftir neinu í bili. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Þú ert nokkuð spenntur að vita um úrslitin á vissu máli og má segja að þau komi öllum á óvart. Náin skyldmenni þín taka sér vafasamt athæfi fyrir hend- ur. Þú dvelst um stund við sveitastörf. A# Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): i Þú ert grænn af öfund vegna tækifæris sem kunn- | ingjum þínum hlotnaðist um síðustu helgi. Með góðu móti ættirðu að geta komið þér í svipaða aðstöðu. Gamall kunningi þinn hjálpar þér í viðskiptalífinu. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): ‘ Láttu engan vita um næstu fyrirætlun þína í sam- U p bandi við starf þitt, því það eru margir sem gætu 1 hagnýtt sér hana og eyðilagt fyrir þér. Ýmislegt 1 gamalt og gleymt rifjast upp i kunningjahópi. 34 VIKAN 30. tbl.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.