Vikan - 23.07.1970, Blaðsíða 23
Buff með osti
8 þunnar buffsneiðar (ca. V2 kg)
ca. 125 gr smurostur
olía
salt, pipar
ristað brauð.
Smyrjið osti á helming kjötsneið-
anna. Setjið hinn helminginn yfir og
þrýstið vel saman. Penslið kjötið
með olíu og steikið á báðum hliðum.
Stráið salti og pipar á og berið fram
með ristuðu brauði.
Fiskur steiktur í
álpappír
Steikt er fyrir hvern og einn í
sér pakka.
Smyrjið álpappírinn að innan.
Setjið síðan það magn af fiski (flök)
sem þér áætlið að hver borði, í
hvern pakka. Stráið salti og pipar,
söxuðum tómötum og graslauk (eða
lauk) yfir. Setjið smjörbita yfir og
pakkið inn hverjum pakka þannig
að hann lokist vel. Síðan má setja
pakkana á þurra vel heita pönnu
með loki, baka í ofni við 200° í 25
mínútur eða setja yfir glóð.
BlandaS á teini
Það fer eftir hugmyndaflugi hvers
og eins hvað sett er á glóðartein-
ana. Hér á eftir fara nokkrar tillög-
ur:
1. Nautakjöt, flesksneið, coctail-
pylsa, heilir sveppir, litlir tómat-
ar.
2. Kálfanýru, piparhusltur, nauta-
kjöt, coctailpylsa.
3. Kálfalundir, hailir tómatar, ólíf-
ur, svínalundir.
4. Lambakótelettur, flesk, heillr
sveppir, nautakjöt. (lundir),
kálfanýru.
5. Nautalundir, laukur, flesk, lifur,
heilir tómatar, coctailpylsa, heil-
ir sveppir.
6. Nautalundir, flesk, tómatar,
eplabitar.
3°. tbi. VIKAN 23