Vikan - 23.03.1972, Blaðsíða 4
1
SKARTGRIPIR
UWUWrWLiWl 1 —1
FERMINGARGJÖFIN T ÁR
Modelskartgripur er gjöf
sem ekki gleymist.
- SIGMAR QG PÁLMI -
Hverfisgötu 16a. Sími 21355
6ÖÐ FERMINGARGJÖF!
Það gengur pví fliótar með
Ftamingo
Stórt hitaelement, valírjáls hitastilling 0-80°C og "turbo"
loftdreifarinn tryggja fljóta og bægilega þurrkun. Vegg-
hengja. borðstandur eða einstaklega lipur gólffótur, sem
auðvitað má leggja saman, eins og sjálfan hjálminn.
Veljið um tvær gerðir og fallegar litasamstæðúr.
FLAMINGO er vönduð vara. Kynnið yður einnig verðið.
PQSTURINN
Ást hennar var afbrot
Kæri Póstur!
Eg hef aldrei skrifað þér áður,
en hef mikla löngun til þess
núna. Ég er ekki áskrifandi að
Vikunni, en kaupi hana yfirleitt
á fimmtudögum. Ég hef ákaf-
lega gaman af að lesa hana,
sérstaklega framhaldssögurnar
og Póstinn.
Astæðan fyrir þessu bréfi mínu
er sú, að ég las í Vikunni þann
tuttugusta og fjórða febrúar síð-
astliðinn að ný framhaldssaga
ætti að byrja er hlaut nafnið:
„Ast hennar var afbrot".
Ég er mjög hrifin af því að þið
skulið koma með þessa sögu,
því ég las yfirlit um hana í Les-
bók Morgunblaðsins og var
mjög hrifin af henni.
Að síðustu vil ég spyrja hvern-
ig Tvíburar og Krabbamerkið
passa saman. Ég þakka fyrir
ágætt blað.
Maddama X.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni (ef
það er þá hægt)?
Tviburar og Krabbi eiga yfir-
leitt ágætlega saman. Úr skrift-
inni má lesa dugnað og sóknar-
vilja.
Tvö strik
Kæri Póstur!
Með því að þú leysir oft vel úr
vandamálum manna ræðst ég í
að skrifa þér. Ég fæ stundum í
hendur tékka, sem yfir eru dreg-
in tvö strik. Hvað merkir það?
Þarf maður' ekki að rita nafn
sitt á bakið? Tekur hver sem er
við slíkum tékkum?
Virðingarfyllst,
Ferðamaður.
Það mun merkja að enginn geti
leyst tékkinn út nema sá, sem
hann er stilaður á. — Sjálfsagt
þarf að rita nafn sitt aftan á
hann eins og aðra tékka. Ekki
mun því að treysta að hver sem
er taki við slíkum tékkum.
Annars er ætlazt til þess að tví-
strikaður tékki sé lagður inn á
bankareikning þess sem hann er
stílaður á.
Alltaf er það frískandi tilbreyt-
ing þegar eitthvert bréf verður
til að koma af stað fjörlegum
rökræðum í Póstinum. Bréf frá
„gömlum manni fyrir norðan",
sem birtist hjá okkur ekki alls
fyrir löngu, virðist ætla að verða
eitt slíkt, því að síðan blaðið
með því kom út hafa streymt
inn bréf með umsögnum því
viðvíkjandi. Við birtum tvö í
þessum Pósti:
Eitt ber af þeim
öllum
Kæri Póstur!
Ég vil byrja á að þakka þér fyr-
ir allt gamalt og gott. Mér finnst
þið hafið birt mörg góð bréf
upp á síðkastið. Þó finnst mér
að eitt beri af þeim öllum, en
það er bréf sem var birt í síð-
asta blaði og var frá „Gömlum
manni fyrir norðan". Ekki svo
að skilja að ég hafi verið sam-
mála honum að öllu leyti, öðru
nær.
Nú langar mig til að spyrja þig
hvernig Krabbinn eigi við Stein-
geitina, Vatnsberann, Nautið og
Vogina.
Með fyrirfram þökk og von um
að bréfið fari ekki beint í rusla-
körfuna.
Norðlendingur.
P.S. Hvernig er skriftin? Lestu
eitthvað úr henni?
Krabbi og Steinbukkur: næstum
vonlaust. Krabbi og Vatnsberi:
ágætir möguleikar. Krabbi og
Naut: sæmilegir möguleikar, en
Krabbinn, sem er mikil draum-
vera og hefur auðugt ímyndun-
arafl, þreytist stundum á jarð-
búndnu raunsæi Nautsins.
Krabbi og Vog: Vissir mögu-
leikar, en Vogin er þó full út-
hverf fyrir smekk Krabbans.
Skriftin er fremur lagleg en
ekki laus við viðvaningsblæ. Út
úr henni má lesa tilhneigingu
til vandvirkni en einnig visst
vantraust á sjálfum sér.
Undravert hvað einn
getur blaðrað
Kæri Póstur!
Þegar ég las Póstinn í Vikunni
4 VIKAN 12. TBL.