Vikan - 23.03.1972, Blaðsíða 17
um“ og þótt t. d. skipið „Þing-
vellir“ væri ekki tiltakanlega
hraðskreitt — það gekk rúmar
níu sjómílur — þá var þetta
mikil' framför frá því að ferð-
ast með seglskipunum eða
hjólaskipunum þýzku, sem áð-
ur eru nefnd.
Nóg var af fólki sem vildi
freista gæfunnar í „Nýja heim-
inum“. Alltaf voru skipin full
af farþegum vestur um Atlants-
haf og á Norðurlöndum sáu
menn fram á mikið og vaxandi
gengi Þingvallafélagsins. Árið
1882 bættist félaginu nýtt skip,
er það lét smíða í skipasmíða-
stöð Burmeister & Wain í
Kaupmannahöfn og hlaut það
nafnið „Geysir" og litlu síðar
annað skip af svipaðri gerð er
hlaut nafnið „ísland“. Nokkru
síðar bættist Þingvallafélaginu
enn eitt skip er hlaut nafnið
„Hekla“ og voru öll nýrri skip-
in hraðskreiðari en „Þingvell-
ir“ enda byggð sérstaklega fyr-
ir Atlantshafssiglingar.
Ekki átti þó fyrir „Heklu“ að
liggja að fara margar ferðir yf-
ir Atlantshaf, því skipið fórst
árið 1882 við Noreg, nánar til-
tekið nokkru fyrir utan Osló.
Félagið lét fljótlega fylla í
skarðið og ný „Hekla“ bættist
félaginu tveim árum síðar.
Nú gekk allt vel fyrir Þing-
vallafélaginu um sinn, unz tvö
skip félagsins lentu í hörmuleg-
um árekstri við strendur Ame-
ríku.
Es. „Þingvellir" lét úr höfn
síðari hluta júlímánaðar árið
1888 í áætlunarferð vestur um
haf. Skipið hafði að vanda við-
komu í Osló, sem þá hét Kristj-
anía og Kristjánssund, þar sem
fleiri farþegar bættust við og
þegar látið var í haf frá Nor-
egi voru 455 farþegar um borð,
skipshöfn um 70 manns.
Veður var gott, unz komið
var á Nýfundnalandsbanka, en
þá hreppti skipið suðvestan
ptorm, en þetta var eins og sjó-
ménnirnir sögðu, ekkert sem
orð var á gerandi.
Nú víkur sögunni vestur um
haf.
Es. „Geysir" hafði komið frá
Norðurlöndum til New York
fullhlaðið farþegum. Eftir
nokkurra daga stanz var skip-
ið ferðbúið að nýju og hinn 11.
ágúst lagði skipið úr höfn í
New York. Dráttarbátur að-
stoðaði skipið niður fljótið og
er hann kvaddi veifuðu háset-
arnir og óskuðu skipinu góðr-
ar ferðar yfir hafið. Hvað gat
líka hent stórt nýtízku far-
þegaskip á kumardegi á þessari
siglingaferð?
Laust eftir miðnætti 14. ág-
úst er „Geysir“ staddur vestur
af „Sable Island". Fyrsti stýri-
maður er á stjórnpalli ásamt
hásetanum en Möller skipstjóri
hefur farið til káetu sinnar og
lagt sig. Hann er ef til vill eitt-
hvað uggandi, því hann hefur
beðið 1. stýrimann að vekja sig
klukkan þrjú. Það er suðvest-
an strekkingur og dálítil alda,
en skipið fer vel í sjónum og
ferðin gengur vel. 1. stýrimað-
ur víkur af stjórnpalli og vek-
ur Möller skipstjóra eins og
hann hafði fyrirskipað, en þar
sem ekkert sérstakt er að,
þokulaust og skyggni gott,
ákveður hann að sofa áfram í
eina klukkustund.
Fyrsti stýrimaður fer aftur
á stjórnpall og býr sig undir
að gera staðarákvörðun um
fjögurleytið.
En allt í 'einu sér hann ljós
úti í myrkrinu, fyrst hvítt og
síðan grænt. Stýsimaðurinn
kallar á Möller skipstjóra sem
kemur strax á stjórnpall og
gefur jafnframt skipun um
Framháld á hls. 62.
i
12. TBL. VIKAN 17