Vikan - 23.03.1972, Qupperneq 6
SMa síOast
Tíu ára móSir
Mirta Leticia er aðeins tíu ára en hún
á nokkurra mánaða son. Hún býr hjá
foreldrum sínum og tveim yngri syst-
kinum. Móðir hennar hafði'ekki hug-
mynd um ástand telpunnar fyrr en
tveim mánuðum fyrir barnsburðinn.
Hún hélt að telpan væri veik og fór
með hana til rannsóknar á sjúkrahús,
en þá kom í ljós að hún var komin sjö
mánuði á leið. Telpan gat engu til
svarað, þegar hún var spurð um til-
drögin. Móðir hennar segir: „Ég held
hún muni ekki hvað hefir skeð og það
er engin ástæða til að kvelja hana leng-
ur með spurningum“. Enginn veit því
hver er faðir barnsins. Móðir telpunn-
n- umvefur hana með kærleik og nú er
litli sonurinn skemmtilegasta brúðan
hennar.
Myndin til vinstri er af Tito forseta
Júgóslava á skæruliðaárum hans, en
myndin til hægri er af Richard Burton
í hlutverki Titos í kvikmyndinni sem
gerð var í fyrra.
Fjórða kona Gary Grants
verður líka fimmta
konan hans
Gary Grant er nú orðin sextíu og
fjögra ára og það er sagt að hann ætli
að fara að gifta sig einu sinni ennþá.
Hann þekkir reyndar hina tilvonandi
brúði, því að hún er fjórða og síðasta
konan hans og verður nú hin fimmta.
Þau eiga eina dóttur, sem er einkabarn
þeirra. Hún heitir Jennifer' og er nú
orðin fimm ára og hlakkar mikið til
að fá föður sinn heim.
Joan Baez
er æðstiprestur mótmælasöngvanna.
Hún er nú þrítug og hefir verið gift í
þrjú ár, en ætlar nú að skilja við mann
sinn. Eiginmaður hennar, David Harr-
is, sem er aðeins tuttugu og fimm ára,
var tekinn fastur vegna þess að hann
neitaði að fara í herþjónustu, rétt
eftir brúðkaupið. Hann var látinn laus
á miðju ári 1971, en hjónin hafa ekki
búið saman síðan.
Catherine Deneuve
er nú tuttugu og átta ára og eignaðist
nýlega barn með ítalska leikaranum
Marcello Mastrioanni, sem er fjörutíu
og sjö ára og . á uppkomna dóttur.
Catherine átti son fyrir með franska
leikstjóranum Roger Vadim.
Marlene Dietrich
er orðin sjötug og heldur því leyndu
hvernig hún fer að halda sér svo xmg-
legri. Þegar hún er spurð, segir hún
einfaldlega: „Sá sem vill vera ungur,
verður líka ungur. Ég viðurkenni
hreinlega ekki að tíminn líði.“