Vikan


Vikan - 23.03.1972, Page 38

Vikan - 23.03.1972, Page 38
EF TIL VILL EKKI Á DAGATALINU - EN í TÍZKUNNI SANNKÖLLUÐ £ Vöromarkaðnrinn hf. ARAAULI 1 A • SIMI 86-1 13 höfuðið upp um loftsgatið og sendi henni einhvers konar hnútu eða hnýfilyrði. Og þess vegna var sjálfsagt bezt, að hún hraðaði sér að svara þessu drengilega tilboði, er fólst í bréfi Jóns Þórðar Daðasonar, sem var fremur ein- faldur, freknóttur vinnupiltur á bæ, sem hét að Hjöllum, hin- um megin fjallsins. Hún vissi að hann var vandaður og vinnu- gefinn dugandismaður, þótt ekki væri hann mikið svipaður glæsimennum sumra tindrandi ástasagna. Stundarkorn starði hún út í bláinn og hugleiddi ráðgátur lífsins og handleiðslu guðs. En fram af því fór svo penninn af stað: „Heiðraði bezti vin. Ég fékk bréf frá þér núna á skírdag, sem ég þakka þér fyr- ir, og þó er ég í hálfgerðum vandræðum með að svara því. Það er svo margt í þessu bréfi þínu, sem mér geðjast ekki að, og samt veit ég, að það er ekki af ótuktarskap hjá þér, þó að sumt komi svona út, sem í bréfinu stendur. Mér finnst hálfpartinn óþarfi af þér að fara að koma með þá sneið, að S. dugi ekki mikið. Heldurðu, að þú þurfir að minna mig á það, að hann er bundinn og nýtur sín ekki? En þó að svona færi fyrir okkur, þá er hann mdæll maður samt. Ó, Nonni, ég get aldrei gleymt honum, og ég get ekki heyrt, að neinn hallmæli honum. En hvað snertir Mýrarselið, þá vil ég ekki, að þú sitjir það af þér minna hluta vegna, ef þú getur fengið það til ábúðar, og notazt við mig eins og ég er. Og þó að mér hafi skrikað fót- ur, langar mig til að reynast þér væn kona, jafnt fyrir því. — Þú þarft ekki að hafa nema einn reiðingshestinn, því að kom- móðuna má hafa í öðrum bagg- anum en kistilinn, yfirsængina og koddann í hinum. Brenndu þessu bréfi. Þin einlæg vina, Ingibjörg Þorgeirsdóttir." Hún renndi augum yfir bréf- ið og sá strax, að mikil þörf var á að endurskrifa það, einkum og sér í lagi framan við greina- skilin, — þar sem hjartað af- hjúpaðist. En í þessu bili heyrði hún þrusk inni í göngunum, og þá flýtti hún sér að loka bréf- inu. Og það stóð heima: Þorleifur gamli rak höfuðið upp um lofts- gatið. „Hvern þremilinn ertu að gaufa hér, Imba. Farðu strax að hátta,“ sagði hann. „Held- Framháld á bls. 42.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.