Vikan - 23.03.1972, Síða 60
FRÁ RAFHA
RAFHA eldavél, gerð 2650, með föstum hellum, 30 ára reynsla.
— ÓDÝRASTA RAFMAGNSELDAVÉLIN á markaðinum. — Heim-
keyrsla og Rafha ábyrgð.
VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322
síður vegna hreinleikans en
hreinlætisins. En af því að hann
hefur næma tilfinningu fyrir
hreinleika, er hann allra manna
hreinlátastur, ef hann á annað
borð fær skilið gildi hreinlæt-
isins.
Klæðnaður manna er nokkuð
misjafn, þótt segja megi að
sama stíl sé að finna í öllu
iandinu. Algengt er að karl-
menn í borgum, einkum í Bom-
bay, hafi tekið upp vestræn
föt, gangi í skyrtu og buxum,
en á afskekktari slóðum ríkja
enn hinar fornu venjur.
Indversk föt eru yfirleitt
sniðlaus. Fegurð þeirra liggur í
gerð efnis og hvernig þau eru
borin, — hvernig þau fara á
líkamanum. Kunnastur er
kvenbúningurinn, saríið, 5—7
m langur dúkur, sem konan
vefur um sig og þykir fara eink-
ar vel. Sarí geta verið í öllum
íegnbogans litum, oft mikið
skreytt, en flíkur karlmanna
eru yfirleitt hvítar. Algengasta
flík karla er dhoti, eins konar
dúkur, sem vafinn er um neðri
l'.luta líkamans líkt og pils, og
eru sumir utan yfir í þvi, sem
við mundum kalla, síðar milli-
skyrtur með víðum ermum, en
kallast kúrta. Á höfði hafa karl-
menn vefjarhetti, brúna, rauða
eða hvíta, en konur bera sitt
hrafnsvarta hár, sem oftast er
skipt í miðju, og stundum
flaksast sver flettingurinn alla
leið niður í hnésbætur. Sumir
karlmenn ganga með báthúfur.
Á Norður-Indlandi og eink-
um meðal meiri háttar manna
er algengt að vera í síðum
frakka, hnepptum upp í háls og
í afar þröngum buxum. Myndir
sýna fyrirmenn þjóðarinnar
helzt í slíkum fatnaði.
Indverjar eru yfirleitt fast-
heldnir á forna siði. Og lífið í
þorpunum gengur sinn vana-
gang — svo mikinn vanagang,
að þannig hefur það verið í
þúsundir ára. Þessi fastheldni
gengur svo langt úr hófi, að
oft er erfitt að sannfæra bænd-
urna um smávægilegar breyt-
ingar á vinnuháttum, er verða
mundu til mikils léttis. Tilfinn-
ingin fyrir stéttaskiptingunni,
rótgróin skyldurækni og sú
staðreynd, að landið hefur fram
til síðustu ára verið í eign hinna
fáu hefur allt stuðlað að því að
fella mannlegt líf í fastar skorð-
ur. Karlmenn eru fastheldnir,
en konur þó fastheldnari. Marg-
ar konur kæra sig ekki um að
vera annað en skuggi manns
sins. Og á fyrstu árum lýðveld-
isins fengust margar ekki til að
segja til nafns síns við kosning-
ar, þótti það óþarfa hnýsni að
vilja vita um það líka, sögðust
t.d. bara vera kona Sri Gopala-
shari eða móðir, og létu alls
ekki segjast.
Annars er konan ekki öfunds-
verð. Fyrrum voru ekkjur rétt-
indalausar jafnvel brenndar
með líkum manna sinna, eða
látnar búa við kröpp kjör hjá
tengdafólki sínu. En kona, sem
á mann og marga efnilega syni,
er betur sett. Hana hafa guð-
irnir blessað.
Fyrrum var siður að gifta
stúlku, þegar hún var tíu ára
gömul, en hún fór ekki að búa
með manni sínum, fyrr en hún
varð kynþroska. Það hefur ver-
ið siður á Indlandi frá ómuna-
tíð, að synirnir búa á heimili
foreldra sinna með konum sín-
um og börnum, en dæturnar
flytjast til tengdafólks síns, og
teljast eftir það naumast til
sinnar fyrri fjölskyldu. Þess
vegna ber henni heimanmundur
úr búi föður síns, og ef föðurn-
um átti að takast að finna handa
henni efnilegt mannsefni, varð
heimanmundurinn að vera hár.
Feður hleyptu sér því oft í
skuldir til að koma dætrum
sínum sæmilega út. Og þess
vegna var það beinlínis fjár-
bagslegt tjón fyrir heimilið, ef
þar voru margar dætur en fáir
synir.
Gestrisni er viðbrugðið í Ind-
landi. Það er líka engin furða,
því að gestur er guð; það er
trú þeirra: gestur er beinlínis
guð. Þegar þú kemur á ind-
verskt heimili, fólks, sem er ó-
spillt og einlægt, þá finnurðu,
að þetta er svo. Gesturinn er
fulltrúi guðsins á heimilinu.
Honum er sýnd öll virðing.
Hann fær allt það bezta, jafn-
vel þótt þröngt sé í búi, því að
hvað yilja menn ekki gera fyrir
sjálfan guð?
Og sumir gestir eru sérstakir
sendimenn æðri máttarvalda í
hugum hinna óbreyttu almúga-
manna: hinir andlegu föru-
menn, sanjasar, sem hafnað
hafa heimi. Þeir íklæðast gulu.
Þeir eiga að koma, þegar búið
er að matast til þess að leyfa
góðum mönnum að gefa til guðs
þakka. Og oft mun vera vel við
þeim tekið, en ekki mega þeir,
ef þeir halda hina eldfornu
hefð, stanza nema þrjár nætur
í hverju þorpi.
Gallinn er bara sá, að misynd-
ismenn hafa stundum tekið á
sig gervi þeirra manna sem
þannig eru álitnir heilagastir
og frómastir allra, og meira að
segja eru brögð að því, að
glæpamenn hafi reynt að leyn-
ast og komast leiðar sinnar und-
an réttvísinni í hinum gula
kufli.
Indverskir almúgamenn eld-
ast snemma. Þeir eru orðnir
gamlir menn um fertugt. Venju-
lega hafa þeir þá tekið einhvern
sjúkleika, sem seinna dregur þá
til dauða, en næringarskortur
drepur úr þeim allt viðnáms-
þrek. Þó eru dæmi um, að fólk
verði afar gamalt, og ekki eru
einsdæmi, einkum af betri stétt-
um, að það nái níræðisaldri.
Þegar dauðann ber að garði,
eru sjaldan höfð mikil umsvif,
áður en líkinu er eytt. Það er
siður Hindúa að brenna lík á
bálkesti, og þeir kunna það vel.
í hinu heita loftslagi er engin
aðferð þrifalegri. Eldsneyti er
raðað að líkinu, og þannig hag-
að til að glóð myndist. Eftir
nokkurn tíma er ekkert eftir
nema askan. Öskunni er þá
gjarnan dreift í fljót eða í sjó,
helzt heilagt fljót, eins og Gang-
es.
Líf hins indverska almúga
manns er vinna. Frá blautu
barnsbeini hefur hann unnið á
ökrunum, og ef frátök eru,
sýslar hann við handiðnir, jafn-
vel lítil börn hjálpa til. Þau
hjálpa til að bera glerung í út-
skurðinn á koparmununum, áð-
ur en þeir eru fægðir og þau
taka vel eftir öllu, því að þetta
eiga þau að læra.
Til þess að geta haft ein-
hverja nasasjón af því lífi, sem
Indland lifir, þarf maður að
hafa séð indverskt þorp, fundið
hinn lygna straum daglegra at-
hafna, hversdagslegra atvika,
er spinna örlagaþræði milljón-
anna, sjá hvernig sólin skín og
hvernig rignir á réttláta og
rangláta þar í landi. Og það
er sama hvort það er i stétt-
ieysingjaþorpi suður við strönd
eða á hinni miklu sléttu norður
undir Himalaja að þrátt fyrir
allan þennan mismun, sem svo
auðvelt er að sýna með tölum
og staðreyndum hlýtur gestur
að verða var nokkurs sameigin-
leika er gefur til kynna hvað
J. Nehru forsætisráðherra
meinti með því að tala um
fund Indlands.
Til þess þyrfti maður að eyða
einum degi úti á sléttunni.
Það er bezt að hugsa sér, að
60 VIKAN 12.TBL.