Vikan


Vikan - 23.03.1972, Qupperneq 64

Vikan - 23.03.1972, Qupperneq 64
tal okkar verður stutt eða langt. Hvar er Gérard Laguen? — Ég veit það ekki. Hún sagði þetta rólega. En dómarinn var vanur alls kon- ar undanbrögðum. Hann trúði henni ekki. — Gaeti það ekki verið að þér vissuð það, ef þér hugsuð- uð yður vel um? spurði hann vingjarnlega. En Daniéle lét hann ekki fipa sig. — Nei, sagði hún rólega. — Ég trúi yður ekki. — En það er samt satt, sagði unga konan. En svo fékk sannleiksást hennar yfirhöndina og hún bætti við: — Þegar ég vissi að verið var að leita að honum, lét ég vara hann við. Ég veit ekki hvert hann fór. Dómarinn melti þetta með sér stundarkorn. Eitthvað í rödd Daniéle fékk hann til að trúa henni. En það var nú einu sinni starf hans að sýna tor- tryggni. — Vitið þér hve gamall hann er? surði hann. Daniéle hló háðslega. — Hafið þér séð hann? Dómarinn hallaði undir flatt. Hann gat ekki séð hvað það kom málinu við. — Ég þarf ekki að sjá hann til að vita að hann er ekki myndugur. Hann er ómyndug- ur! — í mínum augum er hann maður, sagði Daniéle. — Ung- ur maður og ég elska hann. Þarna kom ennþá eitt atriði, sem að mati dómarans kom þessu máli ekkert við. Dómar- inn stundi þungan. — Ég get virt ást yðar, sagði hann, til að missa ekki vald á málinu. Hún skellti upp úr. Dómar- inn leit reiðilega á hana. Hon- um fannst nú hann skilja mál- ið. Þessi unga kona var ákaf- lega háttvís í framkomu, en þessar hláturgusur hennar leiddu nú ýmislegt í ljós að hans áliti. — Ég álasa yður ekki fyrir ást yðar á Gérard, sagði dóm- arinn í ströngum tón, — en ég álasa yður fyrir að hafa kom- ið honum undan, að þér hald- ið honum leyndum fyrir for- eldrum hans. Daniéle leit undrandi á hann. Dómarinn virtist vera að tala um barn,' það var greinilega hugarfóstur hans. — Ég ásaka yður fyrir það að koma í veg fyrir að foreldr- ar hans geti náð sambandi við hann. — Þetta er ekki rétt. Til dæmis get ég sagt yður að Gérard hefði aldrei farið til Chamoix nema fyrir mín orð og loforð frá mér um að ég skyldi koma og heimsækja hann. — Þér höfðuð ekki rétt til að lofa því, sagði dómarinn. —- Skiljið þér það ekki? — Nei, sagði Daniéle og nú var hún orðin reið. — Af sömu orsökum, hélt dómarinn áfram í vingjarnleg um tón, — höfðuð þér ekki heldur rétt til að fara til Cha- moix. — Ég varð að gera það, vegna þess að ég var búin að lofa því! Er hún svona heimsk eða þykist hún bara vera það? hugsaði dómarinn, sem nú var orðinn óþolinmóður. Honum fannst hann vera að tala við þrjózkan krakka. Hann gat ekki séð annað en að lagabók- stafurinn væri augljós. — Nei, sagði hann, — þér voruð ekki bundin af loforði, sem þér höfðuð engan rétt til að gefa. — Mér finnst þetta bókstaf- lega hlægilegt, sagði Daniéle. Dómarinn stóð upp og náði i vélritaða örk, sem lá á borði ritarans. — Hvernig er það með börn- in yðar? sagði hann og þóttist ekki leggja mikið upp úr þess- ari spurningu. — Hver annast þau, þegar þér eruð ekki heima? — Hjálparstúlkan mín, sagði Daniéle. Nú var eins og röddin sviki hana, hún varð hrædd. Dómar- inn tók eftir því. Það gat kann- ski orðið til að brjóta þrjózku hennar á bak aftur. — Getur hún annazt þau um lengri tíma? — Ég veit það ekki, sagði Daniéle. Hana langaði mest til að öskra hátt, en hún stillti sig og sagði, eins rólega og hún gat: — Það getur verið . . . — Ef ég skyldi þurfa að setja yður í gæzluvarðhald, sagði dómarinn. — Mynduð þér þá frekar óska eftir því að þau yrðu sett á upptökuheimili? — Ætlið þér að láta taka mig fasta? spurði Daniéle. — Svarið spurningu minni! — Nei, sagði Daniéle, — ég myndi ekki vilja láta setja þau á upptökuheimili. Hún lagði áherzlu á orðið ekki. Hún var sannarlega erf- ið. Það er um að gera að sýna þolinmæði, hugsaði dómarinn. Hann leit á örkina, sem hann hélt á. — í morgun, sagði hann, — genguð þér inn á bar. Þér hringduð á járnbrautarstöðina og spurðuð um ferðir til París. — Nei, sagði Daniéle. — Þér Ijúgið, sagði dómar- inn og vár sérstaklega vin- gjarnlegur á svipinn. — Er Gérard í París? — Ég veit ekki hvar Gérard er! æpti hún. — Ég veit það ekki! Ég veit það ekki! Ég veit það ekki! Nú var hún komin að því að brotna. Dómarinn var sýnilega ánægður. Nokkrum dögum síðar var Daniéle tekin föst. Vinkona hennar, frú Jais, kom til að hugsa um börnin. Nábúarnir í íbúðunum fyrir ofan, hölluðu sér yfir stigariðin, til að fylgj- ast sem bezt með, þegar lög- reglan kom, en svo hurfu all- ir, nema frú Jais, sem stóð kyrr. Hún gekk til Daniéle, sem lagði af stað niður stig- ann, eins og í leiðslu. — Gráttu ekki, Daniéle, þú ert hugrökk, það veiztu sjálf. Viltu að ég iáti foreldra þína vita? — Nei, sagði Daniéle. — Það má ekki gera þau hrædd. Mamma þolir það ekki, hún er svo lasin. En viltu láta föður barnanna vita þetta. Og segðu honum að ég komi fljótlega aftur. -— Þú verður að vera sterk, sagði frú Jais. Framhald í nœsta blaði. LETT undir með ■ ■ ■ Framhald af bls. 19. leita að, kemur í leitirnar um leið og við erum að leggja af stað. Okkur líður oft illa á meðan á leitinni stendur. Það er erfitt að taka ákvörðun um hvort leitinni skuli haldið áfram, en vellíðanin eftir vel- heppnaða og árangursríka leit er þess virði.“ „í ÞESSU FANN ÉG HAMINGJUNA" Ketill Larsen er reykvískur leikari. Hann er starfsmaður Æskulýðsráðs Reykjavíkur og hefur undanfarin ár verið for- svarsmaður Leikflokks unga fólksins (sem var stofnaður upp úr leifunum af Leikhúsi æskunnar. í nokkur ár hefur Leikflokkur unga fólksins far- ið á milli ýmiss konar stofnana og skemmt fólki með söng og leik. Hafa þau m. a. heimsótt Kleppsspítalann, Hvítabandið, Skálatún, sjúkrahús og fleiri staði. Á milli 40 og 50 ungmenni á aldrinum 14—25 ára eru starfandi í Leikflokki unga fólksins. „Sumir starfa mikið og aðrir lítið,“ sagði Ketill okkur. „Þetta er svona eins og gengur. Fólk hefur mismun- andi mikinn tíma, en margir úr klúbbnum hafa haldið áfram á leiklistarbrautinni og náð langt.“ Ketill segir það ekki hafa verið af ævintýraþrá, að þau fóru að heimsækja stofnanir hinna ólánssömu, heldur vegna þess að „þörfin var svo brýn. Þetta fólk á ekki kost á mikl- um skemmtunum, sumt reynd- ar alls engum, og okkur þótti gaman að gleðja það. Það fer á mis við svo margt í lífinu og gleði okkar verður margföld, er við sjáum, að því er skemrnt." Af þeim 40-—60 sem starfa 1 Leikflokki unga fólksins, eru þó ekki nema 5—6 sem fara í hverja heimsókn; annað yrði of dýrt og kostnaður við rekst- ur flokksins er einungis ferða- kostnaður, sem viðkomandi stofnun greiðir yfirleitt. Við sáum, að það þurfti ekki nema 5 eða 6 af hópnum til að troða upp í eina til eina og hálfa klukkustund," sagði Ketill, ,,og því förum við svona að þessu. Svo er efnið breytilegt eftir hverjum stað. Við þurfum að breyta og staðfæra það eftir aldri áheyrenda, rými á hverj- um stað og svo fram eftir göt- unum. Það eina sem mér finnst nokkuð svipað hvar sem við komum er, að þörfin virðist alls staðar jafn brýn og undir- tektirnar góðar.“ Leikflokkur unga fólksins er sannarlega „lifandi leikhús" en það hefur verið að þróast í 64 VIKAN 12. TBL.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.