Vikan - 06.04.1972, Side 5
efni. Vonandi kemur meira af
slíku. — Framhaldssögurnar og
smásögurnar til dæmis eftir
Somerset Maugham, Maupassant
og fleiri mættu vera fleiri, varla
er kostnaður við þýðingar á góð-
um bókmenntum kostnaðarsam-
ari en á væmnúm ástarsögum
úr Hiemmet.
Svo ég minnist á annað, þá er
leiðinlegt að vita hversu marg-
ir -meira að segia kvenfólk) eru
afturhaldsseggir, neikvæðir og
óraunsæir í sambandi við fóst-
ureyðingar, samanber karlfausk-
inn að norðan, sem sendi ykkur
línu um daginn. Það er ekki að
s já að fólki finnist ömurlegri
glæpur að börn líði alla ævina
fyrir að fá að „halda lifi", en
að þau séu ,,deydd" sem nokk-
urra sentimetra stórar frumur.
Auk þess gengur illa að upp-
ræta gamla fordóma um kon-
una og ábyrgð eða ábyrgðar-
leysi hennar. Þótt flestar konur
vildu fórna lífinu fyrir börnin
sin, sem þær hafa fætt eða tek-
ið í fóstur, er ekki þar með sagt
að það sé sjálfsagt að fórna lífs-
hamingju sinni og barnanna fyr-
ir „slysaskot", því engar verjur
eru 100% öruggar nema pillan
og hún er umdeild eins og allir
vita.
Jæja, ég slæ botninn í með
þessari vanalegu hégómaspurn-
ingu manna eða kvenna!!): hvað
lesa spekingarnir úr skriftinni?
Lifið heilir.
Ein að sunnan.
Við þökkum hrósið og gerum
ráð fyrir að hjá okkur birtist
framvegis sem hingað til eitt-
hvað af efni eftir þínum smekk;
stefna blaðsins er að gera sem
flestum til hæfis. Það er alveg
af og frá að við þýðum nokkuð
úr Hjemmet, hvorki væmnar ást-
arsögur né annað. Hins vegar
skulum við ekki fortaka að hjá
okkur hafi birzt eitthvað af sög-
um svipuðum þeim og lesa má
í þessu danska heimilisriti.
Skriftin bendir helzt til þess að
þú sért dugleg, en líklega ekki
sérlega vandvirk. — Það var
gaman að heyra hvað þú hefur
til málanna að leggja um fóst-
ureyðingarnar, sem nú eru svo
mjög á dagskrá. Það væri ekki
nema sjálfsagt að drífa upp sem
líflegastar umræður um það mál
— og fleiri sem eru á döfinni —■
hér í Póstinum. Ekki stendur á
honum að Ijá rúm þeim, sem
vilja koma skoðunum sínum á
framfæri.
í vanda staddar
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær vinkonur í
vandastaddar. Þannig er mál
með vexti að við erum báðar
hrifnar af sama stráknum. Við
þekkjum hann lítið. Önnur okk-
ar hefur verið með honum. —
Hann er mjög feiminn, og talar
sjaldan við okkur, og ef hann
talar við okkur, þá segir hann
mjög lítið. Hann er oft á sama
skemmtistað og við. Kæri Póst-
ur, getur þú sagt okkur hvað
við eigum að gera?
Tvær mjög ástfangnar.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
sérðu úr henni? Hvernig er staf-
setningin?
Eruð þið vissar um að hann sé
svo óskaplega feiminn? Ein-
hvern veginn hefur sú ykkar, sem
„var með" honum, farið að því
að ná honum á krókinn. Hvers
vegna ekki að reyna svipað eða
sama bragð aftur? Nema þá að
ástæðan sé sú, að honum hafi
ekki líkað þetta í þetta eina
skipti og vilji ekki meira af svo
góðu — það er að segja frá
þeirri sömu. En hvernig væri þá
fyrir hina að freista gæfunnar?
Þar sem þið sjáið hann oft og
þekkið hann þetta mikið, ætti
ykkur að vera vorkunnarlaust að
gefa ykkur á tal við hann og
gefa honum hug ykkar til kynna,
svona undir rós. En ef hann
kveikir ekki á því, er hætt við
að lítið þ'ýði fyrir ykkur að
reyna við hann.
Skriftin gefur helz} til kynna
snyrtimennsku, góðvild en ekki
sérlega frumlegt hugarfar. Og
ekki er bréfið alveg villulaust.
Kjarklaus
Kæri Póstur!
Ég les alltaf Vikuna og mér
finnst Pósturinn langskemmtileg-
astur. Ég er agalega hrifin af
strák en ég þori ekki að segja
honum það því að ég er svo
kjarklaus. Og ég veit ekki hvort
hann er hrifinn af mér en ég
held að hann sé það ekki. En
hann er alltaf að stríða mér og
ég þoli það ekki. Hvað á ég að
gera? Hvernig er skriftin?
Ein kjarklaus.
Prófaðiu að stríða honum á móti.
Skriftin er slæm.
Eigum við að
trúlofa okkur?
a
m
2
tn
þessi auglýsing er ætluð
ástföngnu fólki úti á landi.
Kæru elskendur! Það er nú, sem viö í Gulli og Silfri getum gert ykkur þaö kleift
aö hringtrúlofast innan nokkurra daga, hvar sem þið eruð stödd á landinu.
1. Hringið eða skrifið eftir okkar fjölbreytta myndalista sem inniheldureittfalleg-
asta úrval trúlofunarhringa sem völ er á og verður sendur ykkur innan klukkust.
2. Með myndalistanum fylgir spjald, gatað í ýmsum stærðum. Hvert gat er núm-
erað og með því að stinga baugfingri í það gat sem hann passar í, finnið þið
réttu stærð hringanna sem þið ætlið að panta.
3. Þegar þið hafið valið ykkur hringa eftir myndalistanum skuluð þið skrifa
niður númerið á þeim, ásamt stærðarnúmerunum og hringja til okkar og við
sendum ykkur hringana strax í póstkröfu.
Með beztu kveðjum,
dull og ^tífur
Laugavegi 35 - Reykjavík - Sími 20620
14. TBL. VIKAN 5