Vikan - 06.04.1972, Síða 6
SÍÐAN SÍÐAST
SOPHIA LOREN
TEKUR FÖSTURBARN
Nú hefur Sophia Loren og eig-
maður hennar, Carlo Ponti,
ákveðið að ættleiða litla stúlku.
Síðan leikkonan varð loks móðir
fyrir þremur árum eftir margra
ára löngun og bið, hefur það ver-
ið ósk hennar, að einkasonurinn,
sem er kallaður Cipi, mætti eign-
ast systur.
Sophia Loren missti þrisvar
sinnum fóstur, áður en hún átti
loksins Cipi. Og síðan hann fædd-
ist, hefur hún enn einu sinni
misst fóstur. Læknarnir hafa því
harðlega bannað henni að verða
vanfær oftar.
Það er af ótta við, að Carlo
yngri verði ofdekraður, að þau
hjónin hafa ákveðið, að hann fái
systur eins fljótt og hægt er.
KEMST AF AN MÚÐUR SINNAR
Á meðan Brigitte Bardot heldur stöðugt áfram að eltast við
hina eilífu æsku, lifir ellefu ára gamall sonur hennar, Nicolas,
kyrrlátu fjölskyldulífi með föður sínum, Jacques Charrier. Eftir
að Brigitte og Jacques skildu, fékk faðirinn umráðarétt yfir barn-
inu, og hefur haldið honum síðan. Jacques Charrier tókst aldrei
að ná sér á strik sem leikari. Hann gerði sér það ljóst sjálfur og
sneri sér í staðinn að kvikmyndastjórn. Hann kvæntist aftur fyrir
nokkrum árum Francine Dreyfus og eiga þau tvær dætur.
LIZA MINELLI Á ÝMSUM ALDRI
Ný stjarna hefur skyndilega kviknað á himni skemmtiiðnaðar-
ins og skín nú skærar en nokkur önnur. Það er Liza Minelli,
dóttir hinnar frægu leikkonu Judy Garland. Varla er hægt að
opna blað um þessar mundir, án þess að stórar myndir blasi við
af Lizu. Hér til hægri sjáum við nokkrar myndir af henni á
ýmsum aldursskeiðum, allt frá því að hún var barn og fylgdist
fuil aðdáunar með ferli móður sinnar — og þar til hún hafði
sjálf fetað dyggilega í fótspor hennar.
J
WmMM.
mmmmrnm.
.mmmmm