Vikan - 06.04.1972, Síða 19
Ingvi Steinn: GóSur, en . . .
14. TBL. VIKAN 19
Ríó: „Verndararnir
góðu".
nokkur lög saman“. Fyrst var
það „I Can’t Find My Way
Home“ eftir Steve Winwood, af
Blind Faith-plötunni, síðan
gott lag eftir Vigni og loks eitt
„instrumental". Magnúsi fellur
betur að syngja sin eigin lög
(eða var lagið kannski í slæmri
tónhæð?) en engu að síður
gerðu þeir skemmtilega hluti.
Slæmt er hvað Vignir Berg-
mann er lítið áberandi, jafn
góður gítarleikari og hann er.
Sjálfsagt hefur það sitt að segja
að rólegri menn fyrirfinnast
varla.
Baktil á sviðinu stóð Ágúst
Ágústsson, rótari Trúbrots, við
undarlegt apparat. Ég hafði
einhverntíma heyrt að hann
gæti spilað á píanó svo ég
spurði hann hvort hann vildi
spila fyrir mig í hléinu. — Nei,
ætli það, svaraði hann. — En
ég skal sýna þér nýja „mixer-
inn minn. (Mixer er tæki sem
sett er í samband við söng-
kerfi, þannig að hægt er að
stjórna styrk hvers hljóðnema
fyrir sig úr einu og sama tæk-
inu). — Þetta er sex rása tæki,
sagði Gústi, — og er jafnframt
Jiægt að nota það til upptöku,
þannig að það virkar eins og
sex rása borð. Ég er búinn að
reyna að taka svolítið upp á
það og útkoman er fín. Að vísu
er ég ekki alveg búinn með
það, enn vantar plötu yfir allt
saman, en ég fæ hana fljótlega.
Já, ég smíðaði þetta sjálfur —
með bróður mínum. Þetta hef-
ur tekið um það bil ár.
Þetta er ekki eina tækið sem
Gústi hefur smíðað. Áður hef-
ur hann sett saman að minnsta
kosti einn magnara, 200 watta,
og til dæmis notuðu Ævintýri
hann á Árbæjarhljómleikunum
í fyrrasumar. Þá hafa Trúbrot
einnig notað hann nokkuð stöð-
ugt. Gústi sjálfur er fyrrver-
andi bílatöffari sem nú er ein-
staklega góður rótari og mjög
liðtækur við það sem á út-
lendu máli heitir „sound-mix-
ing“. Á dansleikjum hjá Trú-
brot má gjarnan sjá hann sitja
á bak við með heyrnartól og
fiktandi í allskonar tækjum
með óteljandi tökkum.
— Jæja, sagði hann, — ég
má ekki vera að þessu. Jói og
Maggi eru að byrja.
Fagnaðarlætið voru gífurleg
þegar Jóhann Helgason &
Maanús Sigmundsson byrjuðu,
enda eru í Keflavík ótrúlega
Framhald á hls. 47.