Vikan - 06.04.1972, Qupperneq 24
Magnús: ,,Þa3 sem er að nefndinni er fyrst og fremst að hún er skipuð
röngum mönnum, fólki sem ekki hefur verulegan menningaráhuga."
Nýlega var í Gallerí Súm á
Vatnsstíg haldin myndlistar-
sýning af tilefni þess, að gall-
eríið hefur nú verið starfrækt
í þrjú ár. Sýndu þar nokkrir
þeirra Súmara málverk og önn-
ur listaverk. Gallerí Súm hefur
verið athyglisvekjandi og
áhugaverður þáttur í listalífi
höfuðborgarinnar þann tíma,
sem það hefur verið við lýði;
rnargt af því sem þar hefur
komið fram hefur verið um-
deilt en hitt mun ekki ofmælt,
að framlag Súmara teljist að
verulegu leyti vaxtarbroddur
þess, sem íslensk myndlist hef-
ur getið af sér síðustu árin. Af
tilefni afmælissýningarinnar
litum við inn í galleríið og
röbbuðum stundarkorn við
Magnús Tómasson, einn mynd-
h'starmannanna í Súm.
— Hverjir voru annars hinii-
upprunalegu Súmarar, Magnús?
— Það voru fimm ungir lista-
menn, sem upphaflega stóðu að
þessu; það var 1965. Hreinn
Friðfinnsson, Sigurjón Jóhanns-
son, Jón Gunnar Árnason, Jón-
ína Guðnadóttir, Haukur Dór
Sturluson. Takmarkið var að
taka til meðferðar og kynna
nýja strauma í myndlist. Þau
byrjuðu á því að sýna í Ás-
mundarsal. Það var fyrsta Súm-
sýningin. Svo fór þetta að hlaða
utan á sig, og þó ekki fyrir al-
vöru fyrr en galleríið var stofn-
að. Það var gert sextíu og níu.
Þetta kostaði auðvitað mikla
vinnu og fyrirhöfn og allir voru
blankir, en með góðri samvinnu
hafðist þetta.
— Hversu margir eru nú í
Súm?
— Við erum nú rúmlega tutt-
ugu. Og nú eru í samtökunum
ekki eingöngu myndlistarmenn,
heldur og tveir rithöfundar, og
einn kompónisti.
— Er þá hugsunin sú, að sam-
tökin séu ekki einungis fyrir
myndlistarmenn, heldur nái þau
til sem flestra listgreina?
— Upphaflega voru þetta
samtök um sýningar og starf-
semi. Svo fór þetta að breyt-
ast, og starfað var að menningu
á breiðara grundvelli. Raunar
var Súm aldrei stofnað sem fé-
Jagssamtök beinlínis, heldur
grúppa til að vinna saman að
fyrirliggjandi verkefnum. Ekki
félag á borð við Félag íslenskra
myndlistarmanna, t. d. En hins
vegar hefur ákveðnum mönn-
um verið falið að gera hitt og
þetta tíma og tíma, til að hlut-
irnir komist af stað, en reynd-
Nokkuð sniðugt verk eftir Sigurð
Guðmundsson, samansett úr mál-
verki og fleiri hlutum.
VIÐ ERUM
UPPREISN
Rættvið Magnús Tómasson, myndlistarmann,
af tilefni þriggja ára afmælis Gallerí Súm.
Vitaskuld höfum við lærtaf öllum stigum mynd-
listar á undan okkur, þótt við förum aðrar
leiðir. Við leggjum meira upp úr persónulegri
tjáningu, höfðum fremur til vitsmunanna en
að reyna að vera þægilegir.
in er sú að þeir sem eru tiltæk-
ir gera það sem gera þarf. Við
höfum enga sýningarnefnd, en
höfum hinsvegar venjulega haft
formann, gjaldkera og ritara.
— Þið eruð mörg erlendis
eins og stendur?
— Já, í Amsterdam, Þýska-
landi, Kaupmannahöfn og víð-
ar.
— Þið lítið á ykkur sem
avantgardista?
— Það er kannski ekki alveg
ákveðið; við höfum okkar sjón-
armið hvert fyrir sig og vinn-
um eftir þeim á alveg einstak-
lingsbundinn hátt. Það hefur
aldrei verið um að ræða neina
stefnumótun hjá okkur, neitt
manífest.
Magnús Tómasson er þekktastur fyrir flugurnar sínar, líklega einkum
þá tröllauknu sem gnaefði yfir önnur verk á einni útisýningunni á
Skóiavörðuholti. Þessar eru minni, en þess í stað heill her undir svört-
um fána. „Þær eru tákn um múgmennsku, æði, rotnun, til dæmis,"
segir Magnús.
24 VIKAN 14. TBL.