Vikan - 06.04.1972, Síða 27
Nei, Bernadetta lét ekki sjá sig á Pressuballinu, eins og sumir höfðu
reyndar spáð. En það kom ekki að neinni sök. Menn skemmtu sér
konunglega án hennar fram á rauðanótt. Einar Ágústsson,
utanríkisráðherra, flutti óundirbúið aðalræðu kvöldsins og sagði
skemmtilega sögu um samskipti Bernadettu og Blaðamanna-
félagsins. Hún var í stuttu máli á þá leið, að maður nokkur fetaði í
fótspor Hemingways og fór til Afríku, en varð að hafa konu sína
og tengdamóður með sér. Dag nokkurn týndist tengdamamma,
en fannst loks úti í skógi skammt frá öskrandi ljóni. Er hún bað um
hjálp, svaraði tengdasonurinn á þessa leið: „Nei, ljónið hefur sjálft
komið sér í þessa kiípu, — og getur því komið sér úr henni
líka!“ — Þannig varð fjarvera ungfrúarinnar tilefni gamanmála,
sem entust ballið á enda. Og á þessum síðum sjáum við nokkrar
svipmyndir af prúðhúnu fólki að skemmta sér á Pressuballi. —
Myndirnar tók Ijósmyndari Vikunnar, Egill Sigurðsson.
Valdimar Jóhannesson, ritstjórnarfulltrúi Vísis, og kona háns, Fanney Jónmundardóttir,
ræða við Þorstein Thorarensen, rithöfund, og konu hans, Sigurlaugu Bjarnadóttur,
borgarfulltrúa.
Svavar Gests og Elly Vilhjálms, söngkona, hlýða á píanóleik
Philip Jenkins. Fremst til vinstri er María Bergmann, eigmkona
lEinars Árnasonar.
Gengið var undir lúðrablæstri inn á Mímisbar, en þar hófst Pressuballið með kokkteil. Á miðri myndinni er Tómas Karlsson, ritstjóri
Tímans.
Svipmynd frá borðhaldinu: Ingólfur Sigurz, fulltrúi, kona hans og fleira fólk. Axel Kristjánsson, forstjóri, og Páll Sæmundsson, kaupmaður, og Prúðbúnir gestir ganga upp stigann að loknum kokkteil á Mímis- Stefán islandi, óperusöngvari, gæðir sér á isnum.
konur þeirra. Til vinstri er Eygerður Björnsdóttir, kona Páls, en bar. Á miðri myndinni sést Geir Hallgrímsson, borgarstjóri.
til hægri Sigurlaug Arnórsdóttir, kona Axels.
26 VIKAN 14. TBL.
14. TBL. VIKAN 27