Vikan - 06.04.1972, Qupperneq 34
Þessi litla
tafla
gerir
gervitennurnar
hreinar
á 10 mínútum!
(hún heitir COREGA TABS)
Setjið töfluna í glas með volgu
vatni. Látið gervitennurnar liggja
í vatninu í 10 mínútur. Svo auð-
velt er það. Þér sjáið hve hreinar
þær verða.
Corega Tabs innihalda efni sem
hreinsar, fjarlægir matarleifar og
lykt.
Og þér þurfið ekki að bursta. —
Aðeins eina töflu í glasið.
Corega töflur eru pakkaðar hver
fyrir sig í loftþéttan pappír og
eru því alltaf sem nýjar.
COREGA
COREGA tannlím
— vel þekkt efni, sem held-
ur gómnum á sínum stað,
mjúkt og öruggt.
Kemikalía h.f.
STJÖRNUSPA
HRÚTS-
MERKIÐ
21. MARZ ■
2«. APRÍL
Vertu harður við sjálf-
an þig og' taktu verk-
efnin föstum tökum. Ef
þú gerir það, áttu meiri
tíma afgangs fyrir
sjálfan þig. Geymdu öll
ferðalög til síðari tíma,
en nú væri óhagstætt að
taka til óspilltra mál-
anna varðandi fjármála-
aðgerðir, sem þú hefur
lengi hUgsað.
NAUTS-
MERKIÐ
21. APRIL
21. MAÍ
Láttu þína nánustu ekki
eiga svona auðvelt með
að raska geðró þinni.
Forðastu þá, sem það
reyna 1 sífellu, en auktu
heldur sambandið við
þá, sem sýna jafnaðar-
geð og rósemi. Um helg-
ina verður mjög
ánægjulegt fyrir þig að
fara eitthvað burt.
TVÍBURA-
MERKIB
22. MAÍ —
21. JÚNÍ
Ef þú hættir andartak
að hugsa um peninga,
og snýrð þér að því að
njóta lífsins, verður
þetta ógleymanleg vika
fyrir þig. Þú munt fara
í ferðalag, að vísu ekki
langt, en þeim mun
skemmtilegra. Láttu
fjölskyldu þína njóta
fagnaðarins með þér
eftir föngum.
KRABBA-
MERKIÐ
22. JÚNÍ -
23. JÚLÍ
Þú færð langþráð bréf
með gleðilegum tíðind-
um. Nú eru stjömurnar
hagstæðar með öll fast-
eignaviðskipti af þinni
hálfu og skaltu nú láta
til skarar skríða með
viðskipti á því sviði,
sem þú hefur iengi haft
á prjónunum.
Heillataia er 5.
LJONS-
MERKIÐ
24. JÚLÍ —
24. ÁGÚST
Varastu Ijóshærða
konu með blá augu,
sem um sinn hefur
reynt að grafa undan
fótum þínum. Vertu
fyrri til og ýttu henni
frá þér. Það myndi
reynast þér heillaríkt
að gerast áskrifandi að
blaði, sem þú hefur
lengi haft augastað á.
MEYJAR-
MERKIÐ
24. ÁGÚST-
23. SEPT.
9
Þú ert alveg viss um,
hvað gera skal í
ákveðnu máli, en svo
undarlega vill til, að
útkoman verður mjög
svipuð, hvorn veginn
sem þú velur. Þú skalt
ekki hika við að taka
að þér stór verkefni,
því alit blessast það.
VOGAR-
MERKIÐ
24. SEPT.
23. OKT.
Haltu áfram að sýna
þínar beztu hliðar, en
ekki aðeins útávið,
heldur einnig heima.
Þú getur verið mjög að-
laðandi og átt auðvelt
með að afla þér vina, ef
þú lætur ekki letina og
örlyndið ráða yfir þér.
DREKA-
MERKIÐ
24. OKT.
22. NÓV.
Dæmdu ekkert aðeins
út frá eigin reynslu,
því allir hlutir hafa
fleiri en eina hlið. Ef
þú sýnir nógu mikið
frjálslyndi og forðast
alla hleypidóma, verður
helgin óvenju skemmti-
leg. Ferðalag kann að
vera í aðsigi.
BOGMANNS-
MERKIÐ
23. NÓV.
21. DES.
Það er stundum betra
að iátast heldur en
koma fram og segja
það sem manni býr í
brjósti. Það er stundum
betra að brosa en gretta
sig, þótt manni finnist
eitthvað súrt. Þú getur
þurft að taka á þolin-
mæðinni í þessari viku.
STEIN-
GEITAR-
MERKIÐ
22. DES. —
20. JAN.
Farðu varlega í sak-
irnar með brall, sem þú
hefur haft í huga. Ef tii
vill er ekki tárhreint
mjöl i pokahominu hjó
þér, og það getur kom-
izt upp, ef fyllstu var-
kárni er ekki gætt. Þú
þarft að hafa samskipti
við fólk af öðrum
þjóðernum. 1
VATNSBERA
MERKIÐ
21. JAN. —
19. FEB.
Þú ættir að sýna meiri
tillitssemi þeim sem í
kringum þig eru. Pen-
ingarnir hafa viljað
tolla illa við þig að
undanförnu, og það
stafar af því, hve
gjarnt þér er að láta
aðra hafa áhrif á þig.
Sýndu nú röggsemi og
hafðu sinnaskipti.
FISKA-
MERKIB
20. FEB. —
20. MARZ
Slappaðu nú af og
leggðu að þér að losna
við þessa taugaspennu,
sem hefur hrjáð þig að
undanförnu. Gerðu þér
far um sem eðlilegasta
og óþvingaðasta fram-
komu. Um helgina
muntu geta skemmt þér
mjög vel.