Vikan - 06.04.1972, Qupperneq 37
um morðið á eiginmanni Bar-
böru. Tilefnið var augljóst:
það varð að bjarga Barböru
frá 'fjárhagslegu hruni.
Barbara og Bettina Prentiss
eru eineggja tviburar, fæddar
27. janúar 1931 í Belfast. Bar-
bara fæddist að vísu á undan
en þegar þær uxu úr grasi, var
það alltaf Bettina, sem hafði
frumkvæði. Þegar þær voru
börn, skemmtu þér sér kon-
unglega yfir því að fólk þekkti
þær ekki * sundur og notuðu
sér það óspart. Það voru aðeins
foreldrar þeirra sem gátu greint
þær í sundur.
Á táningaaldri göbbuðu þær
oft piltana, sem þær skemmtu
sér með, þannig að þær fóru
sitt á hvað út með þeim, og
höfðu af því mikla skemmtun.
Þær gerðu oft ýmis-legt af
sér í skólanum, en viður-
kenndu aldrei yfirsjónir sínar,
svo að Jokum tók skólastjórinn
það ráð að refsa þeim alltaf
báðum, þegar önnur hafði brot-
ið reglur skólans.
Þegar þær voru nítján ára,
var Bettina einu sinni kærð
fyrir að hnupla úr verzlun.
Faðir hennar fékk lögfræðing,
sem hélt því fram að það hefði
verið farið stúlkuvillt og fékk
því til leiðar komið að þær
voru látnar stilla sér upp við
vegg, ásamt tíu öðrum stúlk-
um. Vitnin tvö treystu sér
ekki til að þekkja þær í sund-
ur. Ákæran var því felld nið-
ur, þar sem ekki var hægt að
kæra báðar fyrir verknað, sem
aðeins önnur hafði framið.
Það sama ár hitti Barbara
Charles Blanchette, sem bað
hennar. Hún játaðist honum,
þótt hann væri mikið eldri en
hún. Henni fannst það miklu
sniðugra að giftast ríkum
manni, þótt hann væri nokkru
eldri, en að þinda sig snauð-
um ungum manni. Charles
hafði verið kvæntur áður og
konan hans var látin. Þau
höfðu ekki átt nein börn. Og
svo flutti Barbara inn í stóra
einbýlishúsið, fimmtán herbergi
og hafði fimm manns í þjón-
ustu sinni. Hún varð fljótt um-
svifamikil húsmóðir og tók
ríkulega á móti vinum hans og
viðskiptamönnum.
Bettina var, aftur á móti,
ekkí svo heppin. Hún hitti
vörubílstjórann Leonard Day
og varð mjög ástfangin af hon-
um. Hún giftist honum og flutt-
ist inn í litla raðhúsið. En
Bettina kvartaði ekki, hún var
ánægð með Sitt hlutskipti. Þau
hjónin eignuðust ekki heldur
börn.
Þegar Leonard Day hafði
hlustað á sögu konu sinnar og
vægast sagt kaldrifjaðar bolla-
leggingar hennar, hélt hann
rólegur áfram að drekka úr öl-
glasinu sínu og sagði:
— Það er enginn vandi. Ég
get keypt arsenik fyrir ykkur
eftir tvo daga í Dublin. Ég
þekki lyfsala þar, sem kann
að halda sér saman. Ég hef
stundum náð í ýmislegt fyrir
hann, svo hann þegir.
Til þess að Charles grunaði
ekki neitt, var Barbara sér-
staklega alúðleg við hann næstu
daga. Hún hagaði sér þannig
að hann héldi að hún væri að-
eins að vinna aftur hylli hans.
Og Charles minntist ekki á
skilnaðinn, þótt Barböru væri
ljóst að hann hitti hina kon-
una, þar sem hann fór út tvö
til þrjú kvöld í viku og sagð-
ist ætla í klúbbinn sinn.
Það var miklu auðveldara að
gefa honum arsenikið, en Bar-
bara hafði haldið. Þegar kom-
ið var að því, varð hún tauga-
óstyrk, en Bettina stappaði í
hana stálinu. Hún varð að láta
til skarar skríða, áður en hann
kæmi henni út úr húsinu. Og
Barbara setti arserfikið bæði í
kaffið og ölið, til að vera viss.
Hann drakk hvorttveggja og
þegar hin grátandi Barbara tók
á móti lækninum, lá Charles í
rúmi sínu. Hann leit út fyrir
að vera sofandi, en hann var
dáinn.
—- Við sátum í dagstofunni,
sagði Barbara við lækninn, —
c g Charles stóð upp til að ná
i eitthvað að drekka. Þá tók
hann skyndilega um brjóstið og
sagðist hafa fengið hjartakast.
Ég hjálpaði honum í rúmið og
svo gerði ég það 'sem þér hafið
sagt mér að gera, gaf honum
verkjatöflu og konjak. Hann
kyngdi töflunni með konjak-
inu og bað um vatn, því hann
væri svo þyrstur. Þegar ég
kom með vatnið, lá hann svona
og þá hringdi ég til yðar. Ég
reyndi að þreifa á slagæðinni,
en ég fann engan slátt.
Læknirinn rannsakaði hann
lauslega, gaf Barböru svefn-
töflu, svo hringdi hann til móð-
ur hennar, sem var ekkja og á
heimleiðinni kom hann við hjá
Bettinu og bað hana um að
fara til systur sinnar og reyna
að róa hana.
í dánarvottorðinu stóð áð
Charles Blachette hefði látizt
úr hjartaslagi. Og hvað var
eðlilegra? spurði lögfræðingur
læknisins síðar við . réttarhöld-
in. Hinn látni hafði verið hjart-
veikur og eftir lýsingu konu
Þér lærió nýtt tungumál á 60 tímum!
Llnguaphone
lykillinn að nýjum heimi
Tungumálanámsheið á hljámplötum
eða segulböndum:
ENSKA. ÞÝZKA, FRANSKA, SPANSKA.
PORTUGALSKA, ITALSKA, DANSKA,
SÆNSKA. NORSKA, FINNSKA,
RÚSSNESKA. GRlSKA, JAPANSKA o. fl.
Verð aðeins hr. 4.500-
AFBORGUNARSKILM'ALAR
Hljódfœrahús Reyhjauíhur
Laugaucgi 96 simi: I 36 56
|ip=
ii i\\l hv
DiQUOTvl
IFILIU’iriNrimŒS
IMEEKJI
u
Bezta lausnin er tví-
mælalaust
PIRA-SYSTEM
ÓD.ÝRT - TRAUST -
ENGIN SKRUFA EÐA
NAGLI í VEGG
HÚS OG SKIP
NORÐURVERI
HATUNI 4A.SÍMI 21830
14. TBL.VIKAN 37