Vikan - 06.04.1972, Qupperneq 41
Með piparmyntukremi
Fæst líka með kókoshnetu-kremi'
Líka með dökku súkkulaði og ljósu
með appelsínu-bragði
Auk þess fæst: OP MIGNON, OP MOCCA og OP MINTTHINS
I heildsölu hjá: V. SIGURÐSSON & SNÆBJÖRNSSON HF. Símar: 13425 og 16475.
éle. — Þau geta líka hrósað
sigri yfir mér, þegar þú ert
sigraður...
— Þetta eru allt eintóm orð,
sagði Gérard.
— En það er samt eitthvað á
bak við orðin. Ef þú ert ekki
frjáls, getur þú ekki barizt. Og
þá koma þau aldrei til með að
skilja hvað það er sem máli
skiptir!
Gérard horfði hugsandi á
ný. Já. Það var allt betra en
þessi hægfara dauði, sem þau
buðu honum og sem kallaður
var líf. En hann hafði engu að
tapa. Það var Daniéle, sem
hætti á það að verða sett í fang-
elsi.
— Ertu viss um að þú viljir
þetta? spurði hann.
— Já.
Gérard stóð upp. Og þar sem
hann hafði ekki hugboð um
hvað fangelsisvist var, þá brosti
hann glaðlegu brosi. Það var
eins og fargi væri létt af honum.
Hann tók Daniéle í faðm sér
og þrýsti henni að sér. Ein-
hversstaðar bak við drungaleg-
an himinn skein sólin.
Gérard fór um kvöldið, en
ekki til Saint-Malo. Daniéle bjó
sig undir fangelsun. Hún þurfti
ekki að bíða lengi...
Fangelsin breytast ekki og ef
þau gera það, þá tekur það
ábyggilega langan tíma. Dani-
éle fannst hún jafnvel hagvön,
þegar hún leit gráa steinvegg-
ina og hinar kaldranalegu gæzlu
konur. Hún fékk sama klefa og
áður og sömu klefafélaga, Renée
og Cecile. Þær voru að borða.
— Fyrirgefið að ég kem
svona seint, sagði Daniéle.
Hún hafði ákveðið með sjálfri
sér að vera sterk og láta ekki a
neinu bera. Konurnar tvæi
virtu hana undrandi fyrir sér.
— Við áttum ekki von á þér!
— Hvað hefir þú gert af þér
núna?
— Það sama og síðast, sagði
Daniéle og settist.
— Hefir strákurinn nú stung-
ið af aftur?
— Já, en í þetta sinn var það
með ráði gert.
Þegar Daniéle hafði tekið upp
dótið sitt, lagði hún sig upp í
rúm. Hún hafði komið of seint
til að fá að borða. Það eina sem
hún gat nú gert, var að reyna
að sofna og hugsa um ástand
sitt, meðan hún beið eftir svefn-
inum. Henni fannst nú hún vera
það sterk að hún gæti tekið þvi
sem að höndum bæri. Henni
fannst nú að hún fengi aukinn
styrk við mótlætið. f þetta sinn
ætlaði hún ekki að gefast upp
Um dagmál vaknaði hún við
að dyrnar opnuðust og komið
var með þetta ljósbrúna salta
sull, sem ekki líktist kaffi á
nokkurn hátt. Daniéle varð
undrandi yfir því hve fljótt
hún hafði gleymt hvernig þetta
var á bragðið.
Klukkutíma síðar voru þær
komnar út í fangelsisgarðinn.
Daniéle stóð hreyfingarlaus og
virti fyrir sér samfanga sína
Svo sá hún að hópur hafði safn-
ast saman um stúlku, sem lá á
jörðinni. Daniéle gekk þangað.
Þegar stúlkurnar sáu hana,
ypptu þær öxlum og dreifðu
sér.
Það var kornung stúlka, sem
lá þarna. Hún var tekin í and-
liti og augun lágu djúpt í blá-
leitum augntóftunum. Hún var
mjög þrjózkuleg á svipinn. Hún
allt fyrir
Verzlunin GELLIR selur v-þýzkar úrvalsvörur
frá ITT SCHAUP-LORENZ. Kynnist tæknilega
fullkominni framleiðslu. Ferðaviðtæki, segul-
bönd, STEREO-hljómtæki og sjónvörp.
Það borgar sig að kaupa það vandaða.
Veitum heiðruðum viðskiptavinum okkar full-
komna varahluta- og viðgerðaþjónustu.
Verzlunin
Garðastræti 11 simi 20080
14. TBL. VIKAN 41