Vikan - 06.04.1972, Side 43
spennti hendurnar yfir magann,
hendur sem voru vafðar í um-
búðir og plástra. Augnlok henn-
ar titruðu í sólskininu og Dani-
éle sá að tárin runnu niður
kinnar hennar.
Daniéle virti hana fyrir sér.
Þessi þögla angist skar hana í
hjartað, en á einhvern óskiljan-
legan hátt létti henni. Hún
hætti að hugsa um sjálfa sig í
bili.
Ein gæzlukonan kom á vett-
vang.
— Stattu upp! öskraði hún.
Hvað á þetta að þýða?
Stúlkan hreyfði sig ekki. Það
var eins og hún hefði ekki
heyrt til hennar.
— Jæja, sagði gæzlukonan, —•
heyrirðu ekki til mín?
Stúlkan opnaði augun og
starði til himins og leit ekki
einu sinni á gæzlukonuna sem
stóð öskrandi við hlið hennar.
— Má ég reyna? spurði Dani-
éle.
Gæzlukonan varð undrandi
og mældi Daniéle með augun-
um. Þessi fangi var greinilega
ekki vændiskona. Já, gæzlu-
konan sá að þetta hlaut að vera
kennslukonan. Já, í öllum bæn-
um, ef hana langaði til að skipta
sér af þessari stelpudruslu.
Svo yppti gæzlukonan öxlum
og gekk burt.
Daniéle féll á kné hjá stúlk-
unni. Hún beið þar til stúlkan
festi á henni augun. Þau voru
spyrjandi og hatursfull.
— Ertu ekki búin að fá nóg,
eða hvað? spurði Daniéle.
Augnaráðið varð ennþá hat-
ursfyllra. — Ert þú kennslu-
konan?
— Já, en hver ert þú? spurði
Daniéle.
— Ég — ég er ekkert.
— Hvað heitirðu?
— Ég er kölluð Slangan ...
Daniéle ætlaði að hjálpa
henni á fætur, en hætti við,
þegar henni varð litið á umbúð-
irnar á höndum Slöngunnar. —
Ég meiði þig kannski. Geturðu
staðið sjálf upp?
Stúlkan stóð fljótt upn og
það var yndisþokki yfir hreyf-
ingum hennar. Hún var samt
óstöðug á fótunum. Hún gretti
sig, en það hafði engin áhrif á
Jaglegt andlitið. Það var eitt-
hvað tært og gagnsætt yfir
svip hennar. Daniéle varð
hrollkalt.
— Líkar þér vel við Slöng-
Una? spurði Cécile síðar um
kvöldið.
— Hún er aðeins barn, svar-
aði Daniéle, sorgmædd.
— Barn! flissaði Cécile með
fyrirlitningu. — Hún er alveg
búin að vera.
— Hefirðu ekki séð hendurn-
ar á henni? Fullar af stungum.
— Stungum?
Cécile mímaði manneskju
sem var að sprauta sig. Daniéle
varð uppmáluð skelfingin.
— Hún er búin að vera, end-
urtók Cécile. Það er ekkert
pláss lengur fyrir stungur á
handleggjunum, ekki á fót-
leggjunum heldur. Hendurnar
eru það eina sem eftir er. Skil-
urðu ekki að hún er búin að
vera?
Daniéle lokaði augunum. Hún
vildi ekki skilja þetta, ekki
heyra heldur ...
Fangelsisbókasafnið var stór
og skuggalegur salur með næst-
um tómum hillum. Fyrir því
stóð Dominikanasystir, sem sat
við borð, með heilmikið efnis-
yfirlit fyrir framan sig.
Daniéle stóð fyrir framan
nunnuna með bók í hendinni.
— Ef ég fengi aðeins annan
klefa, muldraði hún. — Mig
langar svo til að vera í einrúmi.
Hún lokaði augunum.
— Ég skil, sagði nunnan. —
Ég skil jafnvel það sem þér
segið ekki. Ég skal sjá hvað ég
get gert. En meðan þér eruð
með hinum konunum verðið þér
að muna að þær eru fátækari en
þér. Nautnir þeirra er þeirra
eini auður ...
Nunnan gerði allt sem á
hennar valdi stóð til að hjálpa
Daniéle: unga konan fékk að
starfa sem bókavörður. f fleiri
klukkutíma á dag sat. hún inn-
an dökku veggjanna og skoðaði
efnisyfirlitið, sem hafði verið
notað af mörgum kynslóðum
fanga.
Einn daginn kom Slangan
inn á bókasafnið.
Daniéle var rétt búin að velja
bók handa einni af föngunum,
feitri. risastórri vændiskönu.
— Þú ert nú reglulegur hjálp-
arengill, sagði S'angan, — þú
sinnir þeim sem eru í hundun-
um vegna eiturlyfja og færð
hórurnar til að lesa!
Daniéle leit undan. Hún var
þreytt. hræðilega þreytt.
— Og svo, sagði Slangan, —
kærir þú þig ekkert um að
maður bakki þér fyrir það.
Daniéle skellihló. Þegar allt
kom t.il alls, var þetta satt sem
hún sagði.
— Það er rétt...
Hún þagnaði, hana langaði
elcki til að tala um sjálfa sig.
— Viltu fá bók?
— Nei, sagði Slangan þrjózku-
iega.
Trausti
sendillinn.
MERCEDES BENZ sendiferöabíllinn hefur alla þá kosii sem
sendiferðabfll séhvers fyrirtækis þarf til að bera. Þægilegur
(svo að bilstjóranum líði vel), mikið vörurými (svo að hann
þurfi ekki að fara eins margar ferðir), öruggur (svo að hann
komi fljótt aftur til baka).
MERCEDES BENZ ... reiðubúinn til þjónustu.
MERCEDES
BENZ®
Auðnustjarnan á öHum vegum
RÆSIR H.F.
Góðar fermingagjafir
Viðlegubúnaður
Skíði
Veiðistangasett
Ferðabúnaður
Vindsængur
\
VerzliS þar sem hagkvæmast er
Laugavegi 13 - Kjörgarði -Glæsibæ
14. TBL. VIKAN 43