Vikan - 06.04.1972, Qupperneq 44
ið heilmiklu í kring. Daniéle
fékk skipt um klefa og var lát-
in í klefa með Slöngunni.
Daniéle hélt hún gæti gert
mikið fyrir Slönguna. En sér
til mikillar furðu, fann hún að
Slangan gat gert mikið fyrir
hana sjálfa. Þegar hún bar
sjálfa sig saman við þetta ve-
sæla barn, fannst henni að hún
hefði mikið að þakka. Að
minnsta kosti hvað ytri aðstæð-
ur hrærði. Hún átti að
vísu réttarhöld yfirvofandi, en
hvað var hægt að saka hana
um, hana, sem ekkert hafði gert
af sér annað en að elska? Fyrr
eða síðar slyppi hún út og yrði
frjáls aftur.
En Slangan var ekki að bíða
eftir réttarhöldum. Þegar hún
væri búin að afplána í þetta
skipti, beið hennar ekkert ann-
að en eiturlyfin og fyrr eða síð-
ar kæmi hún aftur í fangelsið,
ef hún hefði þá ekki orðið þeim
dauða að bráð, sem hún reynd-
ar þráði.
— Heldurðu að ég geti nokk-
urn tíma orðið eins og þú?
spurði Slangan. — Geti lifað
eins og þú?
— Ja, því ekki það? svaraði
Daniéle. Og svo fór hún að tala,
hægt og rólega, segja henni frá
starfi sínu, unglingunum í skól-
anum. Hún dró ekkert undan,
þegar hún sagði henni frá ást
sinni á Gérard, og Slangan
hlustaði hugfangin.
Þær sátu með krosslagða fæt-
ur á dýnunum, hvor á móti ann-
arri, eins og austurlenzkir spek-
ingar, sem reyna að ráða gátur
lífsins. Enda voru þær líka að
reyna það, af veikum mætti...
— Segðu mér meira, sagði
Slangan biðjandi.
Og þá hófst eitthvað, sem
Daniéle stundum hugsaði til
sem innilegrar vinóttu. En hún
átti einnig eftir að glata því.
Dag nokkurn kom Slangan
inn á bókasafnið, með barða-
stóran hatt og langt sígarettu-
munnstykki í hendinni. Hún
hló og stillti sér upp eins og
sýningarstúlka. Daniéle neyddi
sig til að brosa líka.
— Já, nú er ég að fara, sagði
Slangan.
— Já, sagði Daniéle.
— Skilurðu það ekki, ég er
að fara, ég er frjáls.
Daniéle kreisti fram bros.
Gleði stúlkunnar hefði átt að
vekja gleði hjá henni. En henni
var aðeins unnt að hugsa um
sjálfa sig, hún yrði mjög ein-
mana ...
Slangan hljóp upp um háls-
inn á Daniéle og kyssti hana ó
báðar kinnarnar.
— Hversvegna ekki?
— Ég gef skít í allar bækur,
sagði Slangan. — Allir þessir
náungar sem skrifa bækur eru
skepnur.
Hún sneri sér snarlega við og
ætlaði að fara. En af einhverri
óljósri ástæðu fannst Daniéle
það mjög áríðandi að halda í
hana.
— Fáðu þér sæti, sagði hún.
Stúlkan hikaði, en settist
samt, eins og hún væri hrædd
um að verið væri að lokka sig
í gildru. Hún faldi andlitið í
lófum sér.
— Ég er búin að fá nóg, alveg
nóg, snökti hún.
— Líður þér illa?
— IUa?
Stúlkan reigði höfuðið og hló
hæðnislega. En þetta var upp-
gerðarhlátur, hlátur sem olli
sársauka. Hún horfði á Daniéle
með reiðisvip.
— Ég þrái eitthvað. Þú veizt
ekki hvernig það er að þrá eitt-
hvað.
— Ég get ímyndað mér það.
— Það getur þú ábyggilega
ekki.
— Heldurðu það? spurði
Daniéle. — Heldurðu í raun og
veru að ég þrái ekki neitt?
Slangan hristi höfuðið. Það
var ekki hægt að líkja því sam-
an.
— Þú getur ábyggilega ekki
farist af þrá eins og ég.
— Jæja, sagði Daniéle, sem
nú var orðin reið. — Hvað veizt
þú um það?
— Ég veit að þetta er allt
svo tilgangslaust, sagði Slang-
an og það var einhver angi af
stolti í raddhreimnum. — Það
eina sem ég þrái og vonast eftir
er ferð og aftur ferð og svo
ennþá ein .. . Annað gef ég skít
í!
— Áttu enga vini? spurði
Daniéle.
Augu Slöngunnar urðu dimm.
— Vini mína geturðu kallað
eiturlyfjasalana. Þú værir
ánægð ef þeir væru settir inn.
Stúlkan hristi höfuðið og lok-
aði augunum. En svo birti yfir
svip hennar. — Ég var næstum
drukknuð með þeim einu sinni,
sagði hún.
Daniéle svaraði ekki, en
hlustaði því betur.
— Við biðum eftir bát, sagði
Slangan. — Við sáum hann
nálgast ströndina. Dópið var
niðri í sjónum. Við fleygðum
okkur til sunds... Þá skellti
löggan kastljósum á okkur. Ég
komst á bak við klett, sem stóð
upp úr sjónum, svo ég komst
undan skotunum.
Daniéle skildi ekki allt sem
hún sagði, en það var mikil-
vægast að hlusta. Það var lang
mikilvægast að Slangan fengi
tækifæri til að segja eitthvað
frá sjálfri sér, létta eitthvað á
þessari ofurmannlegu byrði . . .
— Þeir drápu tvo, sagði hún
lágt.
— Hve gömul varstu þá?
— Sextán, sagði Slangan ...
Dominikanasystirin gat kom-
Hefur strax orðið vinsælt á
Norðurlöndum, enda með
afbrigðum stílhreint, þægilegt
og virðulegt. Skoðið þetta
glæsilega sófasett úr ekta leðri.
SKEIFAN
KJÖRGAR-ÐI SÍMI, 16975
44 VIKAN 14. TBL,