Vikan - 08.06.1972, Blaðsíða 4
f Hvað er verið
I að skamma mann?
Tru þetta ekki Sommer-teppiii
v frá Litaveri sem þola allt?Jp
. nirh,i' ~';i‘
Teppin sem endastendast og endast
á stigahús og stóra gó ffieti
Sommer teppin eru úr nælon. Það er sterkasta teppaefnið
og hrindir bezt frá sér óhreinindum. Yfirborðið er með þéttum, lá-
réttum þráðum. Undirlagið er áfast og tryggir mýkt,
síslétta áferð og er vatnsþétt.
Sommer gólf- og veggklæðning er heimsþekkt. Sommer teppjn
hafa staðizt ótrúlegustu gæðaprófanir, m. a. á fjölförnustu
járnbrautarstöðvum Evrópu.
Við önnumst mælingar, lagningu, gerum tilboð og gefum
góða greiðsluskilmála. Leitið til þeirra, sem bjóða Sommer verð og
Sommer gæði.
LITAVER
GRENSÁSVEGI 22-24
SÍMAR: 30280 - 32262
PÓSTURINN
Þegar hann segir hæ
Kæri Póstur!
Mig hefur oft langað að skrifa
þér en ekki lagt í það. En nú
ætla ég að gera það.
Ég er agalega hrifin af strák,
og ég hef verið með honum
tvisvar. En ég er svo feimin
við hann, bara hann. Ég verð
alveg lömuð þegar hann segir
hæ, og ég get ekki sagt meir,
og þá fer hann. Og það fór svo
að ég þorði ekki að tala við
hann á balli, og þá var mér
sagt að hann héldi að ég vildi
ekki þekkja sig. Og var hann
þá með stelpu, sem er alltaf
með mér og vinkonu minni. —
Þetta er yndislegur og fjörugur
strákur og tók hún honum þó
hún viti að ég er alveg að deyja
úr ást. Og nú hata ég hana út
af lífinu. Hún er alltaf með hon-
um þar sem ég er. Hann heldur
að ég sé reið og ég þori ekki
að tala við hann. Elsku Póstur,
getur þú sagt mér hvað ég á
að gera. Á ég að reyna að
hætta að hugsa um hann, eða
á ég að tala við hann? Ég er
svo hrædd um að við verðum
óvinir.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
Það er skiljanlegt að þú sért ill
út í vinkonu þína, en flest fólk
er nú einu sinni svona, eigin-
gjarnt og frekt, sérstaklega þó
hvað snertir viðskiptin við hitt
kynið. Það eina sem þú getur
gert er að stæla þig upp og ná
úr þér feinVninni. Reyndu að
auka sjálfstraust þitt með því að
ná árangri á einhverju sviði, þá
skulum við sjá hvort feimnin
dvínar ekki af sjálfu sér. Þá er
ekki að vita nema þú getir náð
í strákinn aftur — ef þú hefur
þá ennþá áhuga á honum.
Skriftin bendir til þess að þig
vanti sjálfstraust og fótfestu í
lífinu.
Fiskar og Ijón
Kæri Pósfur!
Við þökkum þér innilega fyrir
allt gamalt og gott. Við erum
hér strákur og stelpa (á föstu)
og okkur langar til að vita
hvernig fiskarnir og Ijónið fara
saman.
Með fyrirfram þökk.
Skötuhjúin.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni?
Fiskar og Ijón fara ekki vel sam-
an. Þau skilja hvort annað oft-
ast illa og sjaldan skapast með
þeim gagnkvæm samúð.
Skriftin er heldur snotur, en úr
henni má lesa að þú sért svo-
lítið fljótfær og ef til vill ekki
laus við taugaóstyrk.
Þegar ég var full
Kæri Póstur!
Ég hef skrifað þér áður en ég
er hrifin af strák sem ég á svo-
lítið vont með að kynnast. Hann
heitir Sigurjón og er sextán ára
en ég er fjórtán ára, á fimmt-
ánda ári. Ég hef einu sinni talað
við hann og það var þegar ég
var full. Hann hvorjd reykir né
drekkur en ég ætla mér alltaf
að hætta og það gengur vel. —
Hvernig fara tvíburinn og sporð-
drekinn saman? Hvað lestu úr
skriftinni, er hún slæm? Láttu
þatta litla bréf ekki lenda í
ruslakörfunni.
R. H.
Fyrst þér gengur vel að hætta að
reykja og drekka skaltu fyrir
alla muni hætta því fyrir alvöru:
þú ert langtum of ung fyrir svo-
leiðis.
Ef þú hefur annars áhuga á Sig-
urjóni þeim sem þú minnist á,
þá er ekki óliklegt að þér gangi
betur við hann ef þú afleggur
drykkjuskapinn með öllu. Fyrst
hann er frábitinn eiturlyfjum
(tóbak og áfengi eru að sjálf-
sögðu ekkert annað) sjálfur, er
ekki von að hann hafi áhuga á
smástelpum sem lagztar eru í
svoleiðis.
Tvíburi og sporðdreki eiga ' oft
gott með að vinna saman, sér-
staklega ef um er að ræða sam-
eiginlegt áhugamál sem ekki
beinlínis tilheyrir því hversdags-
legasta. En báðir hneigjast þeir
mjög til gagnrýni og mega gæta
þess að espa ekki hvor annan
upp með því móti. Skriftin er
heldur grófgerð og ekki gott að
lesa neitt úr henni.
4 VIKAN 23. TBL.