Vikan - 08.06.1972, Blaðsíða 5
Biður ekki um ást
Kæri Póstur!
Þannig er mál með vexti að ég
er hrifin af strák. Ég er ellefu
ára en hann er fjórtán ára. Ég
sé hann mjög sjaldan. Ég þekki
hann ekkert. Ég er ekki að biðja
um neitt ástarsamband. Mig
langar aðeins til að þekkja hann.
Ég ætla að taka það fram að ég
er svolítið feimin. Hvað get ég
gert? Vona að þetta bréf lendi
ekki í ruslakörfunni.
Virðingarfyllst, ein í vanda.
P.S. Hvernig eiga Krabbinn og
Steingeitin saman og Krabbinn
og Nautið?
Strákar á hans aldri vilja yfir-
leitt heldur þekkja stelpur á
svipuðu reki, en auðvitað er ekki
samt loku fyrir það skotið að
þið getið orðið góðir kunningj-
ar, ef það er það sem þú sækist
eftir. Vertu bara ófeimin við að
gefa þig á tal við hann þegar
þú sérð hann næst. Hristu af
þér feimnina; þetta er ekkert
voðalegt.
Krabbi og Steingeit eiga yfirleitt
illa saman. Krabbinn er mjög til-
finningasamur og blíðlyndur,
Steingeitin hins vegar fremur
kaldrifjuð. Krabbi og Naut eiga
hins vegar oft vel saman; bæði
eru gefin fyrir einfalt og frið-
sælt líf. Þó er Krabbinn oft of
draumgjarn og viðkvæmur til að
sætta sig vel við sterkar hvatir
og jarðbundið raunsæi Nautsins.
í hálfgerðu
fangelsi
Kæri Póstur!
Ég hef skrifað þér einu sinrii áð-
ur, og ég vona að þú svarir mér.
Þannig er málum háttað að ég á
heima í hálfgerðu fangelsi. Þeg- •
ar ég fer út (sem ég geri sjald-
an) þá er gargað: „Þú kemur
ekki seint heim!" Ég hef einu
sinni verið rekin að heiman! Ég
fór til ömmu minnar sem er
eina manneskjan, sem skilur
mig, ég sagði henni frá öllu
saman. Hún sagði að ég mætti
vera hjá henni, þangað til að
þau (pabbi og mamma) hringdu
og spyrðu hvort ég væri hjá
henni. Daginn eftir hringdi
mamma og bað mig að koma
heim og allt eftir því! Svo þegar
ég byrjaði í skólanum aftur
mátti ég ekki fara út fyrr en að
ég var búin að læra. Þeim datt
ekki til hugar að hjálpa mér.
Og núna fyrir prófin bað ég
pabba að hjálpa mér með reikn-
ing, en hann sagði nei, hann
þurfti að gera eitthvað annað.
Mér finnst ekki leiðinlegt að
læra, en það kemur einhvern
veginn út að ég sé bara að
læra fyrir þau. í rúmt ár hef ég
verið að búa til vísur og nokk-
ur leikrit, sem hafa verið sýnd
í skólanum. En þau sýndu lít-
inn eða engan áhuga á því, ég
átti bara að læra. Það var allt
öðruvísi með afa og ömmu, þau
vildu óð og uppvæg sjá leik-
ritin, en það stóð þannig á að
þau voru boðin í leikhúsið
kvöldið sem leikritið var sýnt.
Jæja, elsku Póstur, ég vona að
þú birtir þetta.
Erna.
P.S. Hvað lestu úr skriftinni?
________A.
(I—*—
Auðvitað er leiðinlegt að for-
eldrar þínir skuli vera svona
hörð og köld við þig og áhuga-
laus um þin áhugamál. Þó er vel
líklegt að þau meini alit hið
bezta með þessu, þeim sé kapps-
mál að þú helgir þig náminu til
að skapa þér öruggan grundvöll
i lífinu. Það er ekki nema rétt
hjá þeim, en auðvitað er frá-
leitt af þeim að sýna þér kulda
og áhugaleysi og reka þig að
heiman — því að mikil má sök-
in vera ef hægt er að gera svo-
leiðis við börnin sin.
Reyndu að sýna þeim þolinmæði
og lempni meðan þú þarft að
búa hjá þeim. Það er þó alltaf
betra en ekkert að afi þinn og
amma skuli sýna þér skilning og
alúð. Kannski þú gætir fengið að
búa hjá þeim einhvern tíma, eða
þá hjá einhverjum vinkonum
þínum innan tíðar, ef foreldr-
arnir skána ekkert.
Skriftin bendir til að þú horfir
víða, sért heldur sjálfráð og
viljir hafa rúmt um þig.
NÝTT FRÁ RAFHA
NÝ ELDAVÉL GERÐ HE6624. A hellur, þar af 1 með stiglausri
stillingu og 2 hraðsuðuhellur, stór ofn, 56 lítra, yfir- og undirhiti
fyrir steikingu og bökun, Ijós í ofni. Fæst með eða án glóðar-
steikar elements (grill). — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð.
V!Ð ÖÐINSTORG - SlMI 10322
/Xo
— Nei, verksmiðian gleymdi ekki að senda þakið, þér gleymduð
að panta það!
23. TBL. VIKAN 5