Vikan - 08.06.1972, Side 9
„Oft er flagð undir fögru skinni. Merkingar fataiðnaðarins
athyglisverðar" stendur á þessu spjaldi.
Er það ekki sjálfsagt að kaupandinn fái vitneskju um hvernig
eigi að þvo, strauja eða hreinsa þann fatnað sem hann er að
festa kaup á? Hvort skyrtan hlaupi í þvotti, hvort kápan hrindi
frá sér vatni, hvort sumarkjóllinn upplitist í sólarbirtu, og hvort
liturinn í peysunni þoli svita og þar fram eftir götunum, en allar
slíkar upplýsingar er að finna á Varefaktamiða. Slíkir miðar eru
víða á varningi í fataverzlunum hér á landi t. d. á sænskum karl-
mannaskyrtum, það er því mikilvægt að kaupandinn og seljand-
inn kunni að notfæra sér þann fróðleik. Peysan sem hangir á
veggnum hefur upplitazt af svita.
4.
Sjáið, stelpur! Hér er sængurfatnaður með Varefakta sem ekki
þarf að strauja.
Sýnishorn af gluggatjaldaefnum á íslenzkum markaði með
Varefakta. Aftast er tjald, en það er mikilvægt fyrir kaupand-
ann að fá vitneskju um hve tjaldið er þungt, hvort það hrindir
frá sér vatni, hvort tjaldbotninn sé vatnsþéttur og hvort hætt sé
við að tjaldið fúni.
6.
Hvað er hér um að vera?
23. TBL. VIKAN 9