Vikan - 08.06.1972, Qupperneq 11
„Hættuleg hreinsiefni —* vel merkt ílát er slysavörn“ stendur
á spjaldinu, en þar hanga flöskur með rauðum miðum. Á þeim
miðum Stendur, hvaða efni eru í flöskunum, hver sé framleið-
andinn og sagt er frá styrkleika efnanna og hvort þau séu hrein.
Ef um hættuleg efni er að ræða, hefur Heilbrigðiseftirlitið í
Danmörku gefið út leiðbeiningar um hvernig hafa skuli viðvör-
unarorð og varúðarreglur á slíkum miðum, en skýr ákvæði eru
í Danmörku og víðar um þau mál.
Hér skal tekið fram, að sá sem slík efni hefur undir höndum
verður að gæta þess, að börn nái ekki til þeirra, geyma þau i
læstri hirzlu en ekki nálægt matvælum og lyfjum. En alvarleg
slys hafa orðið í heimahúsum sökum þess, að slík efni hafa verið
tekin í misgripum.
Mjög algengt er a"ð húsgögn s'éu með Varefakta í Danmörku og
í Svíþjóð Er þá meðal annars sagt frá því, úr hvers konar efn-
um húsgögnin eru gerð og hvað húsgögnin þola. Á matborði má
t. d. finna þær upplýsmgar að borðplatan þoli vatn, vínanda og
fitu í 30 mín. En þetta eru mikilvægar upplýsingar, sem neyt-
andinn getur treyst. Ennfremur er sagt frá því, hvernig halde
eigi húsgagninu við. Húsgögnum er einnig gefin einkunn fyrii-
frágang og endingu. Um tvær einkunnir er að ræða — gott —
og — mjög gott — en einungis húsgögn í gæðaflokki mega nota
Varefakta.
Húsgagnaframleiðendur í Danmörku hafa þegar í mörg ár
gæðamerkt framleiðslu sína, en nú hafa þeir síðustu árin merkt
húsgögn sín í samvinnu við Dansk Varedeklarations-nævn og
bætt við upplýsingum um notagildi og eiginleika.
13.
Á íslandi starfa ekki enn sem komið er slíkar vörumerkingar-
nefndir eins og á hinum Norðurlöndunum. Húsgagnaframleiðend-
ur hér á landi hafa þó hafið gæðamerkingar á framleiðslu sína
og eru hér til sýnis húsgögn með íslenzkum gæðamerkjum.
Hægindastólana teiknaði Gunnar Magnússon og eru þeir fram-
leiddir í Nývirki en kollarnir eru framleiddir í Módelhúsgögn.
Neytendasamtök eru starfandi á öllum Norðurlöndunum, hér
er sýnishorn af útgáfustarfsemi þeirra.
Á veggspjaldinu eru sýnishorn af þvottaefnaumbúðum með
Varefakta. Þar er sagt frá því, fyrir hvers konar þvottaaðferð
megi nota þvottaefnið, hvort bleikiefni og ljósvirk efni séu í því,
hvort hafi verið notuð sápu- eða syntetisk efni 1 framleiðslu
þvottaefnisins og ennfremur, hve lútarkennt þvottaefnið er.
Sýningin Vörulýsing—Vörumat hefur einnig verið sýnd á Sel-
fossi og á Blönduósi og það stendur til, að hún verði sýnd víða
um landið, enda er mikilvægt, að við íslendingar kynnum okkur
þessa starfsemi, sem fram fer í nágrannalöndunum okkar. svo
að við drögumst ekki aftur úr, og hver veit, nema við förum
elnhvern tima einnig að merkja framleiðslu okkar og þá er gott
að geta lært af reynslu annarra.
23. TBL. VIKAN 11