Vikan - 08.06.1972, Síða 24
SUMARGETRAUN
VIKUNNAR1972
Getraunin verður i fimm blöSum. Þegaröllfimm blöðin eru komin
— ekki f yrr— sendið þið lausnirnar til VIKUNNAE,
PÓSTHÓLF 533, REYKJAVÍK og merkið umslagið „Sumargetraun”.
VINNINGAR:
1. Háfjallaferð fyrir tvo með Guðmundi Jónassyni.
2. Chopper-reiðhjól frá Fálkanum. 3.-4. EinndaguriLaxáiKjós.
5.-14. Veiðistöng og veiðihjól frá Sportval.
15.-17. Vindsæng frá Sportval. 18. Tjald frá Belgjagerðinni.
19. Svefnpoki frá Belgjagerðinni. 20. -Bakpoki frá Belgjagerðinni.
21. Hitatæki frá Þórði Sveinssyni og Co.
22.-26. Útigrill frá Tómstundahúsinu.
GUÐMUNDUR JÖNASSON er fyrir löngu orðinn
þjóðsagnapersóna. Hann er ekki aðeins frægur hér á landi fyrir
fjallaferðir sinar, heldur einnig viða um lönd. Enginn þekkir
betur óbyggðir Islands en hann og er þvi ekki hægt að kjósa sér
betri og öruggari leiðsögumann. Stærsti vinningurinn i
Sumargetraun Vikunnar er tólf daga háfjallaferð með
Guðmundi Jónassyni. Ferðin er fyrir tvo og skal farin 6., 13. eða
20. ágúst. Ferðaáætlunin litur þannig út i stórum dráttum:
1. dagur: Lagt af stað frá Reykjavik kl. 10 og haldið til
Þingvalla. Siðan er ekið um Kaldadal og stanzað i Reykholti.
Loks verður farið til Hreðavatns og gist þar.
2. dagur: Ekið yfir Holtavörðuheiði, um Húnavatnssýslu og
Skagafjörð og til Akureyrar.
3. dagur: Frá Akureyri verður farið i Vaglaskóg og til
Húsavikur, siðan um Tjörnes til Ásbyrgis og að Hljóðaklettum
og gist þar.
4. dagur: Farið að Dettifossi og siðan i Herðubreiðarlindir og
gist þar.
5. dagur: Farið upp að öskju og gist aftur i
Herðubreiðarlindum.
6. dagur: Farið til Mývatns og gist þar.
7. dagur: Deginum eytt i að skoða hina stórbrotnu
náttúrufegurð Mývatns og gist þar aftur.
8. dagur: Farið til Bárðardals og siðan um Sprengidal og gist i
Nýjadal.
9. dagur: Frá Nýjadal er haldið til Veiðivatna og gist i
þægilegum fjallakofa i Þóristungum.
10. dagur: Farið i Landmannalaugar og Eldgjá skoðuð. Gist i
Landmannalaugum.
11. dagur: Haldið til Heklu, farið að Gullfossi og Geysi og gist
á Laugarvatni.
12. dagur: Frá Laugarvatni er haldið til Hveragerðis, siðan til
Krisuvikur og loks til Reykjavikur
TJALD - SVEFNPOKI - BAKPOKI - allt eru þetta vinningar i
Sumargetrauninni okkar og þeir eru allir frá Belgjagerðinni hf.
Hér er um fyrsta flokks vöru að ræða, enda hefur Belgjagerðin
lagt kapp á að gera útileguútbúnað sinn stöðugt léttari og
meðfæi ilegri, en jafnframt sterkari og endingarbetri. Tjaldið
er þriggja manna Pollux-tjald, en þau eru mjög vinsæl hjá
unglingum. Skátarnir nota þau til dæmis svo til eingöngu.
Svefnpckinn er þannig útbúinn, að hægt er að fletta honum
sundur og hafa hann sem teppi. Einnig er hægt að leggja tvo
poka saman og fá út eina stóra flatsæng. Bakpokinn er rauður að
lit, en slikir pokar njóta nú mikilla vinsælda. Rauði liturinn er
sérstaklega hentugur af öryggisástæðum. Ef ferðalangurinn
týnist, sést hann vel langt úr fjarska - ef hann hefur rauðan poka
á bakinu.