Vikan - 08.06.1972, Blaðsíða 26
ATHYGLISVERÐAR NÝJUNGAR
Hér ræöir Vikan viö tvo unga arkitékta, bræð-
urna Helga og Vilhjálm Hjálmarssyni, um
byggingar Menntaskóla Isafjarðar, sem þeir
hafa gert teikningar aö. Þar koma þeir fram
með ýmsar merkilegar nýjungar, svo sem
„kommúnu“vistir og bókasafn, sem verður
miklu virkari miðstöð í skólanum en áður hef-
ur þekkst.
Svo er að heyra að ein meg-
inástæðan til þess, hve mjög
fólk flykkist utan af landi í
þéttbýlið við Faxaflóann til að
setjast þar að, sé sú að mennt-
unaraðstaða er þar öll önnur
og betri en í dreifbýlinu. Mað-
ur skyldi þó ætla að sú ákvörð-
un, sem þegar er tekið að
hrinda i framkvæmd, um bygg-
ingu menntaskóla austan lands
og vestan, væri vel til þess
fallin að draga úr þeirri við-
sjárverðu þróun,- sem orðuð
hefur verið þannig að Reykja-
vik sé ,,að sporðreisa landið".
Við snerum okkur til tveggja
ungra arkitekta, Helga og Vil-
hjálms Hjálmarssona, sem gert
hafa teikningar að Mennta-
skóla ísafjarðar, en bygging’
þess skóla er þegar hafin af
fullum krafti. Skólabyggingin
og þó einkum heimavistin eru
innréttaðar að ýmsu leyti á
nýstárlegan hátt og í því sam-
Úr herbergi f heimavist.
Starfsmenn Teiknistofunnar viS ÓSimtorg. Standandi (taliS frá vinstri)
•ru Vilhjílmur Hjálmarsson, arkitekt, Hilmar Knudsen, verkfrseSlngur,
GuSlaugur Gauti Jónsson, arkitekt, Finnur P. FróSason, húsgagnaarki-
tekt og Sigurbjarni GuSnason, byggingafraSlngur. Sitjandi eru Helgi
Hjálmarsson, arkitekt (til vinstri) og Víflll Oddsson, verkfrseSingur.