Vikan - 08.06.1972, Side 28
skjóli fyrir norð- og norðaust-
anáttum, og veit mót sólu. Suð-
vestan við skólann er íþrótta-
húsið, tengt íþróttasvæði bæj-
arins. Gert er ráð fyrir að
íþróttahúsið verði einnig til af-
nota fyrir bæjarbúa. Ofan við
heimavistarbygginguna er gert
ráð fyrir íbúðum starfsfólks
kennara.
Aðalaðkoma að skóla og
heimavistum er frá hraðbraut-
inni, fyrst í stað frá Torfnes-
vegi. Við gerð teikningar
lágu áætlanir byggingardeild-
ar menntamálaráðuneytisins til
grundvallar. Byggingarnefnd
Menntaskóla ísafjarðar skipa:
Jón Baldvin Hannibalsson,
skólameistari, Jón Páll Hall-
dórsson og Gunnlaugur Jóns-
son, allir frá ísafirði.
Hversu margir nemendur
er gert ráð fyrir að búi í
heimavistunum?
— í heimavistum er gert ráð
fyrir að búi hundrað og fimm-
tiu nemendur, hundrað og
tuttugu í tveggja manna her-
bergjum og þrjátíu í eins
manns herbergjum. Nú er það
ljóst að nemendafjöldi er sí-
breytilegur, hvað snertir fjölda
pilta og stúlkna svo og fjölda
í einstökum bekkjardeildum,
misstórir árgangar. Hinar hefð-
bundnu karla- og kvennavist-
ir geta ekki með góðu móti
leyst þessar síbreytilegu þarf-
ir og var því ieitað að nýjum
leiðum. í stað fjöldavista er
sótzt eftir fámennari heima-
vistum, þar sem svipmót heim-
ilis er ríkjandi. í heimavistar-
byggingunni fullbyggðri verða
fjórtán heimavistareiningar
átta til tólf manna — „komm-
únu“vistir. Þrjár gæzlutnanna-
íbúðir (kennarar) eru í heima-
vistinni, auk þess íbúð mat-
ráðskonu, gesta- og sjúkraher-
bergi. Á hverri heimavist eru
auk herbergja sameiginleg
setustofa, smáeldhús og snyrt-
ing. Höfuðáherzla er lögð á
að heimavistir séu kyrrlátar og
er því enginn gegnumgangur
um heimavistir. Byggingin er
tvær hæðir auk kjallara. í
kjallara er aðalumferðargahg-
ur innanhúss milli heimavist-
areininga og til og frá mötu-
neyti og skóla. Heimavistirnar
eru á mið- og efstu hæð. Inn-
gangar eru frá skólatorginu að
hinum ýmsu heimavistarein-
eingum.
Og mötuneyti?
Það er í heimavistarbygg-
ingunni næst skólanum. Þar er
borðsalur fyrir um hundrað og
fimmtíu manns. Borðsalurinn
er með sjálfsafgreiðslufyrir-
komulagi. Tengt borðsainum er
leik- og setustofa. Úr borðsaln-
um er útsýni yfir bæinn og
norður á Snæfjallaströnd hand-
an við Djúp.
Hvað um aðra þjónustu-
aðstöðu fyrir nemendur?
—- Verzlun, rekin af nem-
endum, er í forsal mötuneytis
en þar verða til sölu helztu
matvæli fyrir heimavistina —
kaffi, mjólk, brauð og fleira.
Verzlunin er tengd aðaleldhúsi
og er hugmyndin sú að öll
kaup verzlunarinnar sé við að-
aleldhús matráðskonu. Mötu-
neytiseldhúsið' er tengt borð-
sal en á neðstu hæðinni er
vöruaðkoma, aðgerðareldhús,
kæli- og frystigeymslur auk
þvottahúss og fleira. Eins og
áður ségir er nemendagangur
á neðstu hæð heimavistarinn-
ar, en þjónar einnig þeim til-
gangi að vera leiðslugöng. Sam-
hitun er fyrir allar byggingar
Menntaskóla ísafjarðar og er
hitahús og spennistöð byggt
við norðurhorn heimavistar-
byggingarinnar. Leiðslugöng
og nemendagangur er einnig
milli heimavistar og skóla. í
aftakaveðrum geta nemendur
þvi farið innanhúss milli
heimavista og skóla. Reiknað er
með að hluti nemenda sem búa
úti i bæ borði í mötuneyti skól-
ans.
Á neðstu hæðinni er einnig
aðstaða fyrir tómstundastörf —-
borðtennis, myndlist, ljós-
myndaaðstaða, poppherbergi
og svo framvegis. Auk þess
tösku- og skíðageymsiur. Þá er
einnig aðstaða fyrir nemenda-
félög skólans, fundarherbergi,
skjalageymsla og fleira, tengt
inngangi sem snýr að bænum,
til sameiginlegra nota fyrir
alla nemendur skólans.
— Er ef til vill haft í huga
að heimavistin geti komið að
notum sem hótel að sumarlagi?
— Já, það var haft í huga
frá upphafi við gerð teikninga,
og á sú breyting — það er að
segja úr heimavist í hótel —
að geta farið fram án nokkurs
aukakostnaðar. Gangaskilrúm,
sem aðgreina heimavistarein-
ingar, eru þá opnuð svo að sam-
felldur gangur myndast á
hverri hæð. Þá er verzlun skól-
ans breytt i afgreiðslu su'mar-
hótels.
Einnig er líklegt að fjölskyld-
ur, ein eða fleiri, óski eftir að
búa í heilli heimavistáreiningu,
átta manns með sér setustofu
og eldhús. Hugmyndin um
fyrsta flokks hótelherbergi með
baðherbergi samrýmast ekki
Framhald á bls. 44.