Vikan - 08.06.1972, Qupperneq 32
SÓLÓPLATA
MEÐ GUNNARI
ÞÓRDARSYNI
Þetta er skjaldarmerki Trúbrots,
teiknað af Þorsteini Eggertssy’ni
listamanni og þúsundþjalasmið í
Keflavík. Plötumiðinn á „Man-
dala" er svona, og einnig er
reiknað með að hægt sé að líma
þessa miða á skólatöskur og þess
háttar. Það mun vera fjallkonan
sem stendur berstrípuð þarna
efst með bolta fyrir skauti sér og
hefur hún lagt drekana báða að
velli.
Eins og skotið var að hér í
þættinum ekki alls fyrir löngu,
vinnur Gunnar Þórðarson um
þessar mundir að „sólóplötu“ og
er ætlun hans að hún komi út
fyrir næstu jól á vegum Fálk-
ans. Sagði Gunnar nýlega, að
hann hefði hugsað sér að taka
upp fjögur lög fyrir næstkom-
andi mánaðamót í stúdíói Pét-
urs Steingrímssonar og síðan
afganginn í haust, er Pétur
opnar aftur, en í sumar verður
stúdíóinu komið fyrir í viðun-
andi húsnæði í Síðumúlanum í
Reykjavík.
„Mig langar til að losa mig
aðeins úr þessu „grúppuformi“
og sjá hvað ég get einn,“ sagði
Gunnar. „Manni er nauðsyn-
legt að breyta til öðru hvoru.
Einnig langar mig til að hafa
lögin á þessari plötu færri og
lengri, þannig að á hverri síðu
verði ekki nema 3—4 lög. Helzt
langar mig til að gera lög við
ljóð gömlu skáldanna, en eitt-
hvað verður þó eftir mig. Núna
er ég til dæmis að reyna við
einskonar óð til íslenzkrar nátt-
úru.“
Það eru gleðileg tíðindi að
Gunnar vilji lengja lög sin, og
má í því sambandi benda á,
hversu miklu betri hefði til
dæmis „Feel Me“ af Undir
áhrifum og Bergþeyr við
ströndina af Milli lands og
Eyja Árna Johnsen orðið, hefðu
þau tekið yfir heila plötusíðu
livort um sig.
„Anr.ars er ég ekki mikið
farinn að hugsa um þetta,“
sagði Gunnar svo, „við höfum
haft meira en nóg að gera við
að koma Mandala út. Ég er til
að nefna ekkert farinn að
ákveða um hvaða menn ég fæ
með mér og svoleiðis nokkuð.
Þó hef ég verið að láta mér
Hljómsveitin Trúbrot og ólaunaðir framkvæmdastjórar hlutafélag sins „Trúbrot". Rúnar Júlíusson, Magnús
Kjartansson, Gunnar Þórðarson og Gunnar Jökull Hákonarson.
Gunnar Þórðarson: „Vill losa mig
aðeins úr grúppuforminu . . ."
detta í hug til dæmis Arnar
Sigurbjörnsson."
Ef áætlanir standast, fáum
við í hendurnar um næstu jól
sólóplötu með Gunnari Þórð-
arsyni og ætti nafn hans eitt að
tryggja gæðin.
Af hljómsveit hans, Trúbrot,
er annars heldur lítið að frétta
sem stendur. Þeir félagar sögð-
ust hlakka til samkeppninnar
sem þeir ættu nú í og bentu
réttilega á, að hana hefði lengi
vantað. í sumar hafa þeir hugs-
að sér að fara hringferð um
landið og einnig eru þeir þessa
dagana að ganga frá sendingu
til Fantasy- fyrirtækisins í
Bandaríkjunum: senda eintak
af Mandala og er það síðan
Fantasy að ákveða hvoH platan
verður gefin út í Bandaríkjun-
um og Bretlandi. Fieiri fyrir-
tæki munu hafa fengið plötuna
til igrundunar en á meðan plat-
an er gefin út á merki Trúbrots
standa þeir bezt að vígi.
Og auðvitað er önnur plata
farin að gerjast á skrifstofum
hlutfélagsins Trúbrot.
32 VIKAN 23. TBL.