Vikan - 08.06.1972, Page 33
ROOF TOPS -PLATA Á LEIÐINNI OG
GUÐMUNDUR HAUKUR VINNUR AÐ LP
Tveggja laga plata með Roof
Tops er væntanleg á markað-
inn á vegum Fálkans innan
skamms. Heitir annað lagið
„Eitt lítið tár“ og er eftir Guð-
mund Hauk, söngvara hljóm-
sveitarinnar — lítið og fallegt
lag — hitt „Lífið er leikur“,
eftir Vigni Bergmann, mjög
hressilegt rokklag. Báðir text-
arnir eru eftir Guðmund Hauk.
Plata þessi var náttúrlega tek-
in upp í stúdíói Péturs Stein-
grímssonar og þegar þetta er
ritað, í byrjun maí, er upptak-
an komin til London í pressu,
þannig að platan sjálf ætti að
vera að koma á markaðinn.
Ber að fagna því, að plata
með Roof Tops sé væntanleg og
ef til vill getur hún orðið til að
ýta aðeins undir þá félaga, en
eins og menn vita, þá hefur
heldur lítið heyrzt frá þeim
undanfarið og hefur því jafnvel
verið haldið fram, að þeir —
Roof Tops — væru alveg
„dottnir uppfyrir". Ekki er ég
kominn til með að viðurkenna
það, því nauðsynlegt er að gera
sér grein fyrir, að á meðan Roof
Tops er ekki atvinnumanna-
hljómsveit, er ekki hægt að
gera jafn miklar kröfur til
þeirra og annarra, ss. Trúl^ots,
Náttúru, Svanfríðar, íscross og
sjálfsagt einhverra fleiri. En
annars er aldrei að vita hvað
verður um Roof Tops í nánustu
framtíð...
Þá er Guðmundur Haukqr,
söngvari Roof Tops, að vinna
að LP-plötu um þessar mundir,
og verður allt efni plötunnar,
lög & textar, eftir hann sjálfan.
Guðmundur ætlar sér að syngja
allt sjálfur en fá síðan með sér
einhverja „session-menn“ til að
spila það sem hann spilar ekki
sjálfur, en eins og áður hefur
komið fram í þessum þáttum,
þá er Guðmundur liðtækur
píanó- og orgelleikari; reyndar
var hann orgelleikari með
gömludansatríói áður en hann
fór að syngja með Dúmbó í eina
tíð.
Guðmundur Haukur bauð
mér einhverntíma að koma og
hlusta á eitthvað af því sem
hann hafði gert til að setja á
plötuna; var hann þá búinn að
syngja það inn á segulband og
spila sjálfur undir á ýmis hljóð-
íæri. Auðvitað var sú upptaka
hvergi nærri því að vera full-
komin, en þó fullvissaði hún
mig um, að á plötu Guðmund-
ar verður margt mjög skemmti-
legt.
„Ég er sjálfur nokkuð ánægð-
ur með þetta,“ sagði Guðmund-
ur. „Mér þykir þetta skemmti-
legt og hefur þótt mjög gaman
að vinna að þessu. Ef fólk fæst
svo til að hlusta á þessa plötu,
þá tel ég markmiði mínu hafa
verið náð.“
En hvaða markmiði stefndi
Guðmundur þá að?
„Að gera fólk hamingjusamt.
Þetta eru fyrst og fremst meló-
díur og lítið í kringum þær og
ef fólk fæst til að hlusta á þetta
með jákvæðu hugarfari, þá
verð ég ánægður. Þetta er allt
mjög létt og ég held að þarna
sé lítið sem ætti að fara í taug-
arnar á fólki. Auðvitað er til
fólk sem vill ekki nema eitt-
hvað ákaflega þungt og flókið,
en ég er nú einu sinni fyrst og
fremst rokkari og það er nátt-
úrlega það sem platan ber með
sér.“
Guðmundur Haukur vinnur nú að sólóplötu. Hann er að aðalstarfi gagn-
fræðaskólakennari í Kópavogi, en það eru félagar hans í Roof Tops
sem hann er hér að lesa yfir hausamótunum á.
23. TBL. VIKAN 33